Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Hér er verið að ræða mál sem er kannski ekki mjög stórt í sniðum og varðar mat á jörðum þegar um ábúðarskipti er að ræða.
Ég tók eftir því í máli hv. þm. Hjálmars Jónssonar, sem mælti fyrir brtt. sem afgreidd var milli 2. og 3. umr., að tekið hefur verið upp orðalag sem ég hafði lagt til við 2. umr. Ég vil lýsa þeirri skoðun minni að ég tel að málið hefði batnað meir ef hv. landbn. hefði tekið tillit til fleiri atriða sem ég lagði til, en ég lagði til að landinu yrði skipt í þrjú umdæmi matsmanna og þar sem í ljós kom við skoðun í landbn. að yfirmöt voru afar fá. Mig minnir að þau hafi aðeins verið þrjú á fjögurra ára tímabili. Einnig lagði ég til að aðeins einn yfirmatsmaður væri skipaður og hann kallaði síðan til aðra því ekki er verkefni meira en það.
Mér finnst í rauninni eins og málið hefur verið sett upp og unnið að menn séu að breyta breytinganna vegna að stórum hluta. Ég get vel tekið undir það að ástæða hefði verið til að fækka matsmönnum og hefði talið nægjanlegt að gera það þannig að landinu væri skipt í þrjú svæði. Ég sé hins vegar að varaþingmaður Frjálslynda flokksins á Vestf., Pétur Bjarnason, hefur tekið undir þá breytingu sem hér var kynnt áðan og ég tek líka undir hana. Hún er efnislega sú sem ég lagði til. Ég mun ekki gera ágreining um málið frekar en tel að málinu hefði verið betur komið í öðrum farvegi.