[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 125. lþ.
Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég deili ekki við hv. þm. Pétur Blöndal um það og efast ekki um að við getum náð verulegum árangri með því að breyta vinnulöggjöf okkar, með því að þróa vinnulöggjöf okkar og standa vel og skynsamlega að öllum hlutum. Ég er alveg viss um það og við gerum okkur öll grein fyrir því að þannig má ábyggilega skapa mjög mikil verðmæti. En staðan í íslensku efnahagslífi er eigi að síður þannig, þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir vinnuafli, að öllum má vera það ljóst að íslensku framleiðsluatvinnuvegirnir eru í þeirri stöðu að okkur ber að gera allt til að varðveita starfsumhverfi þeirra. Ef þeir standa ekki undir þeim álögum sem á þá eru lagðar þá kemur það harðast niður á fátæku fólki á landinu. Það kemur harðast niður á þeim þjóðfélagshópum sem síst mega við því. Það kemur harðast niður á því fólki sem menn voru að ræða um hér í dag, hinum skuldugu Íslendingum. Þeir eru svo skuldugir að við megum ekki við því að verða fyrir áföllum eins og við urðum fyrir fyrir 12 árum.
Þess vegna er það ósk mín, herra forseti, að þingmenn taki það alvarlega þegar allar bjöllur hringja og öll ljós blikka og sýni í verkum sínum nú á vordögum að það taki ekki fyrir og afgreiði lög sem íþyngja ríkissjóði og atvinnuvegunum. Það var beiðni mín og ósk. Ég get hins vegar verið innilega sammála því að barnauppeldi er sannarlega ekki minnsti þátturinn í farsælu starfi Íslendinga svo sem annarra þjóða. Ég er reiðubúinn að standa með því en við verðum að vera sjálfum okkur samkvæm. Við verðum að sýna fram á hvernig við ætlum að gera hlutina.