Reykingabann í Alþingishúsi

Fimmtudaginn 07. október 1999, kl. 10:33:43 (142)

1999-10-07 10:33:43# 125. lþ. 5.91 fundur 36#B reykingabann í Alþingishúsi# (aths. um störf þingsins), VS
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 125. lþ.

[10:33]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Eins og þegar hefur komið fram á þessum fundi þá fundaði heilbr.- og trn. nú í morgun. Nefndin fagnar einróma þeirri ákvörðun hæstv. forseta að héðan í frá skuli ríkja reykingabann í Alþingishúsinu.

Okkur fannst fara vel á því að láta þetta koma fram þar sem fyrsti dagurinn er í dag sem ekki verður heimilt að reykja í húsinu. Það þarf kannski ekki að taka það fram en heilbr.- og trn. er reyklaus.