Breyting á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins

Miðvikudaginn 20. október 1999, kl. 13:43:40 (738)

1999-10-20 13:43:40# 125. lþ. 13.2 fundur 54. mál: #A breyting á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins# fsp. (til munnl.) frá forsrh., Fyrirspyrjandi KolH
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 125. lþ.

[13:43]

Fyrirspyrjandi (Kolbrún Halldórsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka skýringu hæstv. forsrh. og ég tel hana fullnægja mér. Það er að því leytinu til gott að heyra hæstv. forsrh. segja að ekki hafi verið um neina gengisfellingu á umhvrn. að ræða eða verksviðum þess sem hvarflaði að mér við lestur þessarar auglýsingar á sínum tíma.

Hins vegar er skondið til þess að vita að á sínum tíma þegar umhvrn. var sett á fót á Íslandi skuli verkefnafæð þess hafa verið það mikil eða erfiðleikarnir við að finna verkefni sem heyrðu undir ráðuneytið, að þess vegna hafi línan um alþjóðasamningana verið sett undir ráðuneytið til þess að línurnar yrðu fleiri.

En mér þykir gott að heyra það frá hæstv. forsrh. að ekki er verið að minnka forsjá hæstv. umhvrh. og hans ráðuneytis á málefnum er tengjast og heyra undir það. Ég þakka því svar hæstv. forsrh.