Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 02. nóvember 1999, kl. 16:22:12 (970)

1999-11-02 16:22:12# 125. lþ. 17.5 fundur 108#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 125. lþ.

[16:22]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það með hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur að það er mikilsvert að við skiptumst á skoðunum um þessi mál og drögum fram þær upplýsingar sem þingmenn búa yfir af reynslu sinni og þekkingu á þessum málum.

Ég hjó eftir því að í ræðu sinni var hv. þm. að leggja raunsætt mat á stöðu EES-samstarfsins. Hún gat þess sérstaklega að líklegt væri að Sviss mundi sækja um aðild að Evrópusambandinu. Mér þætti vænt um að fá nánari upplýsingar um það sem er að gerast í Sviss að því er þetta varðar.