Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 02. nóvember 1999, kl. 17:18:02 (989)

1999-11-02 17:18:02# 125. lþ. 17.5 fundur 108#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 125. lþ.

[17:18]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað rétt hjá hæstv. utanrrh., sagan mun leiða það í ljós hver var raunverulegur árangur ferðarinnar og ég vil alls ekki að hæstv. ráðherra skilji orð mín svo að ferðin hafi verið gagnlaus með öllu. Hins vegar vil ég benda á að það ber auðvitað að hafa í huga í hvert skipti, miðað við þær aðstæður sem eru í hverju landi, hvenær best sé að fara þangað í opinberar heimsóknir sem þessar. Forseti Úkraínu, Leoníd Kútsjma, var í framboði til forsetaembættis eins og reyndar mjög margir aðrir. Ég vænti þess að utanrrh. hæstv. hafi hitt hann opinberlega og jafnvel komið fram með honum í fjölmiðlum, ég vænti þess að því hafi verið gerð góð skil. Ég vil líka minna á það, ef mig misminnir ekki, að það voru fulltrúar Úkraínu hjá Evrópuráðinu, sem fyrst fóru fram á það að ferðinni yrði frestað, fram yfir forsetakosningar.