Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 02. nóvember 1999, kl. 18:26:30 (1003)

1999-11-02 18:26:30# 125. lþ. 17.5 fundur 108#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), MÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 125. lþ.

[18:26]

Mörður Árnason (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka greið svör og jákvæð við þessu. Það skiptir ekki máli á þessari stundu hvort ég er sammála þeirri stefnu sem fram kemur hjá hæstv. utanrrh. eða ekki. En hann hefur í nokkrum orðum lýst samningsmarkmiðum sínum við bókunina. Ég fagna því líka að hann er reiðubúinn til samvinnu við stjórnarandstöðuna og við þingheim um þetta efni.

Ég vil minna hann á að ég spurði líka um 3 þús. tonna varðskip og stöðu þess í samhengi við herinn á Keflavíkurflugvelli og vil biðja hann að svara þeirri spurningu líka, enda gefst honum nú tími til þess.