Staðlar fyrir lögreglubifreiðir

Miðvikudaginn 10. nóvember 1999, kl. 13:54:19 (1210)

1999-11-10 13:54:19# 125. lþ. 21.3 fundur 127. mál: #A staðlar fyrir lögreglubifreiðir# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., ÁGunn
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 125. lþ.

[13:54]

Árni Gunnarsson:

Virðulegur forseti. Ég vil vekja athygli á því í þessu sambandi að hér er ekki einungis um bílana að ræða heldur viðhald þeirra. Í þeirri byggðaumræðu sem við höfum staðið í allt frá því um síðustu kosningar vil ég minna á að eðlilegra væri að sjá um viðhald lögreglubílana á stöðunum sjálfum, þ.e. á þeim stöðum úti á landi þar sem lögreglustjóraembættin eru staðsett.