Frumvörp um fjarskiptamál

Fimmtudaginn 11. nóvember 1999, kl. 10:40:22 (1241)

1999-11-11 10:40:22# 125. lþ. 23.91 fundur 131#B frumvörp um fjarskiptamál# (aths. um störf þingsins), VS
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 125. lþ.

[10:40]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil eindregið hvetja til þess að umræða um frv. um fjarskipti fari fram. Ég bendi á að samkvæmt þingskapalögum á við 1. umr. fyrst og fremst að ræða frv. í heild sinni en ekki í smáatriðum. Aðalvinnan við þetta frv. eins og öll önnur frv. fer fram í nefnd. Sama nefndin fær bæði þessi mál og það eru kannski einhverjir dagar þangað til hitt málið kemur fram. Ég tek undir það með hæstv. samgrh. að ekki veitir okkur af tímanum. Það styttist til jóla og þeirrar viku sem sem hugsuð er til nefndastarfa fyrst og fremst. Ég tel að sú ósk sem hér hefur komið fram, um að fresta þessari umræðu vegna þess að annað mál sem fjallar um svipað efni er ekki komið fram, sé ekki á rökum reist. Ég hvet því eindregið til að við förum í verkið og að ræðum málið nú við 1. umr.