Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 17:39:18 (1529)

1999-11-16 17:39:18# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[17:39]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson skýrði það náttúrlega best með ræðu sinni hvað ég á við með flækjumálflutningi stjórnarinnar, að ég hafi haft áhrif á það eða getað haft áhrif á það einhvern tíma fyrir einhverjum árum hvernig Reykjavíkurlistinn hagaði þessu máli. Við hvað á þingmaðurinn eiginlega? Getur hann skýrt það?