Beiðni um fundarhlé

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 13:55:43 (1619)

1999-11-17 13:55:43# 125. lþ. 27.93 fundur 156#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), Forseti ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[13:55]

Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Það vill þannig til að Halldór Blöndal, forseti þingsins, er ekki í þingsal sem stendur. Hann er við önnur störf úti í bæ en um leið og hann kemur í húsið mun ég koma þeim athugasemdum, sem hér hafa komið fram, á framfæri við hann. Vænti ég nú þess að við getum hafið umræðu á nýjan leik.