[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.
Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Eigum við samt ekki að reyna að gera hlutina af einhverju viti? Það er alveg rétt að hluti af þenslunni í efnahagskerfi okkar er vegna dellufjárfestinga á höfuðborgarsvæðinu í verslunarhúsnæði og ýmsu öðru. En ég bið menn að hugleiða eitt: 275 þús. manna þjóð er að ráðast í framkvæmdir sem kynnu að kosta um 200 milljarða kr. Þær upphæðir hafa verið settar fram. Menn ætla að gera þetta á sama tíma og þeir ætla að selja, markaðsvæða og selja Landsvirkjun, Landsbankann, Búnaðarbankann og Landssímann. Hvar ætla menn að taka alla þessa peninga? Ég bara spyr. Halda menn að lífeyrissjóðirnir hrökkvi til? Menn eru að tala um það í alvöru að þeir ætli að leita að þessu fjármagni hér innan lands. Menn kunna að fá eitthvað af þessu fjármagni erlendis frá í sjálft álverið, en virkjanirnar ætla þeir að fjármagna hér innan lands.