[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.
Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hjó eftir því áðan í umræðu um stjórn fundarins að hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir sagðist efast um lagalega stöðu þessa máls. Ég hef svona staðið í þeirri meiningu eftir þessa umræðu að ekki væru miklar efasemdir um full réttindi Landsvirkjunar til að fara af stað með þessar framkvæmdir. Þess vegna vil ég spyrja hv. þm.: Um hvað efast hv. þm.?