Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil sannarlega ekki gera lítið úr þinglegri meðferð yfir höfuð. Það vil ég ekki gera. En ég tel þetta mál vera ,,malplaserað`` hér fyrir þinginu. (Gripið fram í: Hvað er það?) ,,Malplaserað``, fyrirgefið að ég skuli sletta, þ.e. vitlaust staðsett. Ég tel það betur staðsett þar sem leikreglurnar gera ráð fyrir að það eigi að vera og leikreglurnar gera ráð fyrir að það sé staðsett hjá skipulagsstjóra. Það eru mörg ár síðan við ákváðum þær leikreglur. Og það hefur sýnt sig að fólkið úti í samfélaginu er sátt við þær leikreglur og er sammála því að málið fari í þann farveg. Ég var ekki að gera lítið úr þinglegri meðferð.