Fyrirkomulag fasteignagjalda á landsbyggðinni

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 12:02:55 (1807)

1999-11-18 12:02:55# 125. lþ. 28.9 fundur 135. mál: #A fyrirkomulag fasteignagjalda á landsbyggðinni# fsp. (til munnl.) frá félmrh., Fyrirspyrjandi EKG
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 125. lþ.

[12:02]

Fyrirspyrjandi (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég þakka svör hæstv. félmrh. og góðar undirtektir hv. þm. sem hér hafa talað. Ég er alveg sammála því sem fram hefur komið að sveitarfélögin á landsbyggðinni mega ekki við því að missa niður tekjur sínar. Staðan er einfaldlega svo alvarleg víða úti á landi þar sem fólksfækkun hefur orðið að sveitarfélögin hafa verið að missa mjög miklar tekjur. Ég þekki dæmi um það hvernig þetta hefur leikið sveitarfélögin ákaflega grátt, m.a. í mínu kjördæmi.

Við verðum því að horfa á það raunsætt að það hækkunartilefni sem núna gefst á næsta ári í fasteignagjöldunum verður notað af sveitarfélögunum einfaldlega vegna þess að þau eru í svo alvarlegri stöðu að þau geta ekki sleppt frá sér tekjustofnum sem þau eiga völ á. Auk þess, þó mér sé ekki alveg kunnugt um það varðandi jöfnunarsjóðinn, þá er það a.m.k. þannig í sumum gjaldstofnum að sveitarfélögin þurfa að nota möguleika sína til að leggja á að fullu til þess að eiga möguleika á því að fá fjármuni úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Allt þetta verður til þess að öll pressan er á sveitarfélögin að ná til sín eins miklum tekjum og þau geta.

Ég hefði talið, virðulegi forseti, að við ættum að reyna að leita leiða til að eyða því hækkunartilefni sem fram undan er, um 20% samkvæmt blaðafréttum sem hafa verið að birtast upp á síðkastið. Þetta væri mjög slæmt fyrir íbúa landsbyggðarinnar og væru að mínu mati mjög vond skilaboð ef það gerist á sama tíma og við erum að reyna að leita leiða til að lækka fasteignagjöldin á landsbyggðinni að fasteignagjöldin byrji á því að hækka um 20%.

Ég held að eðlilegt sé, eins og hæstv. félmrh. hefur gert, að fella þetta mál að öðru leyti inn í nefndarstarf þeirrar nefndar sem er núna að endurskoða tekjustofna sveitarfélaganna og ég veit að sveitarstjórnarmenn binda gríðarlega miklar vonir við það starf og ég fagna því frumkvæði sem hæstv. félmrh. sýndi í þessu máli gagnvart sveitarfélögunum.