Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 13:41:45 (1841)

1999-11-18 13:41:45# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[13:41]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Ég hef setið á þingi með hv. þm. Ögmundi Jónassyni alllengi og ég hef ekki orðið var við annað en hann óski eftir því manna helst, manna mest, manna háværast af öllum þingmönnum, að við aukum útgjöld til allra mála, til heilsugæslumála, til velferðar, til menntamála og svo mætti lengi telja. Ég gæti kannski bætt við þetta að við þurfum að auka verulega útgjöld okkar til byggðamála.

Ég tel að við getum ekki staðið undir þeim væntingum sem við sjálfir höfum skapað öðruvísi en að nýta náttúruna og þar á meðal er orkan í fallvötnum landsins. Ég vil halda því fram að við getum ekki mætt þessum óskum sem hv. þm. hefur sjálfur tekið þátt í að búa til á þessu þingi öðruvísi en að nýta til þess þá náttúru sem við byggjum hér.