Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 17:20:43 (1942)

1999-11-18 17:20:43# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[17:20]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Þingmaðurinn veit nákvæmlega hvað ég er að segja. Ég ætla að gera það fyrir hann að segja það einu sinni enn: Það er verið að nota þetta mál, þetta góða mál í þinginu, sem snýr að öllum nefndum, í blekkingavef stjórnarliðanna. Það er það sem verið er að gera og ég mun ekki orða það meir.