[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.
Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Væri það gott fyrir landið og fyrir byggðaþróun þó það fjölgaði um 500, 600 manns á Austurlandi vegna slíkra fjárfestinga ef það fækkaði um 3.000 áfram annars staðar í landinu? Ég er að tala um það. Hvað er svona sérstakt við íslenskt efnahagskerfi og gerir það að verkum að við getum farið út í stórfjárfestingar í þeim skala sem hér er um að ræða? Aðrar þjóðir þora ekki að gera hið sama. Aðrar þjóðir sem farið hafa í stórfjárfestingar, t.d. Danir varðandi brúargerð o.fl., hafa vandað sig mikið og meira að segja dregið framkvæmdir á langinn til þess að þenja ekki efnahagskerfið og skapa ekki það ,,búmm`` sem við Íslendingar virðumst, samkvæmt því sem maður hefur tilfinningu fyrir hér í þingsalnum, elska út af lífinu. Því meira því betra. Því meiri óstöðugleiki, rask og flutningar því betra.