[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.
Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Fyrr í dag óskaði ég eftir því að fyrirliðar Framsfl. mættu í þingsal til að hægt væri að spyrja þá spurninga. Ég tók eftir því að hæstv. forseta hafði tekist að hafa upp á fyrirliðum Framsfl. og þeir voru mættir í þingsal á tímabili en jafnharðan gerðist það að umræðu um málið var frestað og nú sé ég enga framsóknarmenn í salnum. Ég vil spyrja hæstv. forseta hvort t.d. varaformaður hv. nefndar sé tiltækur og gæti mætt í þingsal. (Gripið fram í.) Hvað sagði hv. þm.? (Gripið fram í: Hér kemur nú ... ) (Gripið fram í: Ég vil að þingmaðurinn snúi sér við og dragi til baka ummæli sín.) Hæstv. forseti sem situr nú í embætti hefur ekki þann status í salnum að hann geti bæði stjórnað fundum, tekið þátt í umræðum og svarað fyrir flokkinn. (ÖS: Hann er nú margra manna maki.) Þó hann sé margra manna maki og ég óska eftir því að fá upplýsingar um hvað dvelji þingmenn Framsfl. sem vilja svara fyrir þessi mál. Ég vonast til þess að geta borið fram spurningar og fengið svör við þeim. Hæstv. ráðherra hefur margoft lýst því yfir í umræðunni, bæði við 1. umr. þessa máls, í blöðum og víðar, og ég hef heyrt það eftir honum og heyrt það honum frá honum, að hann sé að undirbúa sölu á Landssímanum og það sé niðurstaða hans að það eigi að selja grunnnetið með Landssímanum. Ég hef aftur á móti átt tal við ýmsa framsóknarmenn sem segja mér að ekki sé neitt samkomulag um það og ég þarf að fá svör við því.
Hv. varaformaður samgn. er mættur í salinn og hefur loksins fengið tækifæri til að setjast í sæti sitt. Það eru tvær spurningar sem mig langar til þess að spyrja hv. þm., talsmann Framsfl. í þessum málum sem um er að ræða. (Gripið fram í: Tilvonandi ráðherra.) Ja, tilvonandi ráðherra, ég þekki ekki goggunarröðina í Framsfl. eða þingflokki Framsfl. (Gripið fram í: Það er biðlisti.) Þar er mikill biðlisti segir hv. þm. Ég ætla að spyrja tveggja spurninga.
Hæstv. ráðherra samgöngumála hefur lýst því yfir mjög skýrt og skorinort að hann sé að undirbúa sölu og stefni að því að hefja sölu á Landssímanum og talar um það eins og það sé eitthvað sem gerist alveg á næstunni að þessi sala hefjist. Í fyrsta lagi: Hefur Framsfl. samþykkt að þessi sala hefjist og fari fram á næstu dögum eða vikum eða næstunni?
Í öðru lagi hefur hæstv. ráðherra látið það koma fram mjög skýrt að það sé skoðun hans og ætlan að grunnnetið eigi að fylgja með í sölu á Landssímanum. Hefur Framsfl. fallist á þetta fyrirkomulag og er það meiningin að grunnnetið verði selt með þegar Landssíminn verður seldur ef hann verður þá seldur? Hefur Framsfl. lagt blessun sína yfir þær fyrirætlanir sem hæstv. ráðherra lýsir yfir að liggi fyrir hvar sem hann ræðir þessi mál? Þar hefur ekki verið neinn vafi á í hvað stefnir.
Það eru einungis þessar tvær spurningar sem mig langar að fá svar við ef hv. þm., varaformaður nefndarinnar, gæti upplýst þingheim um hvað er á ferðinni.