[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.
Frsm. 1. minni hluta iðnn. (Árni Steinar Jóhannsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég geri mér fulla grein fyrir því. Ég hef öll þessi gögn í höndum eins og hv. þm. og ég les það út úr álitunum að hv. þingmenn Kolbrún Halldórsdóttir og Katrín Fjeldsted styðja þetta álit og þar með er kominn meiri hluti fyrir hugsuninni á bak við það. (Gripið fram í.) Í mínum huga er því meiri hluti fyrir álitinu og bréfið styður það álit þannig að ég túlka það svo að það sé hártogun að tala um þrjú álit.