Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 17:13:53 (3475)

1999-12-18 17:13:53# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[17:13]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta að hlusta á náttúrufarslegar vangaveltur hv. þm. En ég ætla ekki að gera grín að þessum hugmyndum, ég veit að hv. þm. gengur gott eitt til að vilja bæta þann stórfellda skaða sem þarna verður. Ég hef sömuleiðis kynnt mér mjög rækilega líkurnar á því að þarna verði hægt að koma upp hólmum og setja þar þann próteinríka gróður sem gæsin mun sækjast eftir. Ég verð í þessu stutta andsvari að hryggja hv. þm. með því að til þess standa engar vonir að það muni takast enda kemur fram í því svari sem hv. þm. las að þarna er aðeins verið að lofa því að einhverjar tilraunir verði gerðar. Náttúrufræðingar, sem ég treysti betur en náttúrufarslegu mati hv. þm., segja mér að þetta muni því miður vera útilokað.