Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 18:54:54 (3499)

1999-12-18 18:54:54# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[18:54]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu beina þingmenn orðum sínum til forseta og það tel ég að hv. þm. hafi gert þó svo ég vissi að þær þakkir sem hann flutti voru ekki forseta ætlaðar heldur þeim sem hér stendur og vil ég endilega að þar fari ekki neitt á milli mála. Ég vil þakka þær undirtektir sem ég fékk frá hv. þm.