Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 22:10:06 (3586)

1999-12-20 22:10:06# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[22:10]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Ég er ekki þekktur húmoristi, herra forseti, en mér finnst þetta hlægilegt, 1--2% af þessum kostnaði finnst mér ansi lítið.

En að öðru leyti, herra forseti, var mér ekki nákvæmlega kunnugt um að þetta kæmi fram í áliti 2. minni hluta og vil nota tækifærið til að ítreka það í þessum sal vegna þess að hv. þm. Kristján Pálsson hélt því fram í dag að ég hefði meðal annarra þingmanna átt þátt í því að semja það ágæta álit. En auðvitað styð ég það.