Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 2  —  2. mál.


Þjóðhagsáætlun



fyrir árið 2000.

(Lögð fram af forsætisráðherra 1. október 1999.)



I. Inngangur og yfirlit um helstu niðurstöður.


    Þróun efnahagsmála á Íslandi hefur verið einstaklega hagstæð undanfarin ár. Saman hefur farið mikill vöxtur, stöðugleiki í verðlagsmálum, næg atvinna og ört batnandi lífskjör. Síðastliðin fjögur ár hefur hagvöxtur verið rúmlega 5% að jafnaði — tvöfalt örari en í helstu viðskiptalöndum — verðbólga hefur verið svipuð og í iðnríkjunum, atvinnuleysi hefur verið bægt frá og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist um ríflega 20%. Þetta hagvaxtarskeið á sér vart hliðstæðu í sögu lýðveldisins.
    Að baki þessari hagstæðu þróun liggja margar ástæður. Mestu máli skipta þó án efa markaðsumbætur og stöðugleiki undangenginna ára. Þessar umbætur, sem miðað hafa að því að efla samkeppni og skýra leikreglur efnahagslífsins, hafa leitt af sér stórfellda framleiðniaukningu. Á sama tíma hefur ríkt stöðugleiki á verðlagssviðinu og ytri skilyrði þjóðarbúsins verið hagfelld. Við þetta bætast miklar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði. Traust efnahagsumhverfi hefur jafnframt glætt vöxt í mörgum öðrum greinum atvinnulífsins. Hagvöxtur síðustu ára hefur því hvílt á breiðum grunni.
    Eins og gefur að skilja eru takmörk fyrir því hversu lengi hagvöxtur getur verið jafn mikill og hann hefur verið hér á landi undanfarin fjögur ár án þess að tefla í tvísýnu stöðugleikanum. Enginn vafi er á því að 5% vöxtur og þar yfir er umfram jafnvægisvöxt til lengri tíma í þróuðu hagkerfi. Það sem gert hefur svona mikinn vöxt mögulegan undanfarin ár er einkum tvennt: annars vegar voru framleiðsluþættir vannýttir áður en hagvaxtarskeiðið hófst og hins vegar framleiðniumskiptin sem fylgdu umræddum markaðsumbótum.

Mynd 1. Verðbólga á Íslandi og í iðnríkjunum 1991–2000.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, september 1999.



    Nú er svo komið að óhjákvæmilegt er að hægja á efnahagsstarfseminni til að koma í veg fyrir að verðbólga fari úr böndum. Eins og verðmælingar síðustu mánaða sýna virðist verðbólga byrjuð að grafa um sig og við því verður að bregðast með markvissum hætti. Þetta verður gert með því að beita ríkisfjármálum og peningamálum til aðhalds. Þannig verður ríkissjóður rekinn með verulegum afgangi á næsta ári og stjórn peningamála verður miðuð við það að tryggja stöðugleikann. Markmiðið verður að ná „mjúkri lendingu“ í efnahagslífinu en í því felst að vaxtarhraðinn fari úr 5% í 2,5%–3% sem er svipaður hagvöxtur og gert er ráð fyrir að meðaltali í iðnríkjunum. Slíkur vöxtur ætti að samrýmast verðstöðugleika og tryggja jafnframt framhald hagvaxtarskeiðsins eins vel og á verður kosið. Það verður hins vegar vandasamt verkefni að finna réttar áherslur í hagstjórn til að

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


ná þessu markmiði.
    Í ljósi aðhaldssamrar efnahagsstefnu eru horfur á mun hægari vexti þjóðarútgjalda á næsta ári og jafnframt er því spáð að útflutningur aukist minna en á þessu ári. Fyrir vikið verður hagvöxtur umtalsvert minni eða 2,7% borið saman við 5,8% eins og stefnir í fyrir þetta ár. Næstu árin þar á eftir er spáð nokkru minni vexti eða um 2% að jafnaði þegar litið er til áranna 2001–2004. Þess ber þó að geta að hér er ekki tekið tillit til nýrra stóriðjusamninga nema stækkunar Norðuráls um 30 þúsund tonn. Ef yfirstandandi samningar við Norsk Hydro leiða til niðurstöðu samkvæmt yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda, Landsvirkjunar og Hydro Aluminium AS frá því í júní síðastliðnum yrði hagvöxturinn auðvitað meiri en þessi spá gerir ráð fyrir.

Mynd 2. Þróun þjóðartekna og þjóðarútgjalda 1990–2004.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Vísitala, 1995 = 100.


    Á þessum forsendum dregur úr þenslu í þjóðarbúskapnum og verðbólga hjaðnar á ný. Þannig er gert ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 2½% frá upphafi til loka næsta árs samanborið við 5% á þessu ári. Það felur í sér að hækkunin milli áranna 1999 og 2000 verði nálægt 4% samanborið við 3,2% milli áranna 1998 og 1999. Í þessu felst að almennar launabreytingar lagi sig að hægari vexti í þjóðarbúskapnum. Á næsta ári er gert ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist einungis um 1–1½% eftir mjög mikinn vöxt undanfarin ár. Atvinna verður áfram yfrin þótt búast megi við að eitthvað slakni á spennu á vinnumarkaði.
    Nauðsyn þess að draga úr vexti umsvifa og eftirspurnar í þjóðarbúskapnum birtist í fleiri myndum. Þannig hefur verið verulegur halli á viðskiptum við útlönd undanfarin ár vegna mikillar einkaneyslu og fjárfestingar. Horfur eru á því að hallinn verði viðvarandi á næstu árum en hann fer þó minnkandi á forsendum þeirrar spár sem hér liggur til grundvallar. Það er mikilvægt að svo verði því halli leiðir til erlendrar skuldasöfnunar sem gerir þjóðarbúið verr í stakk búið til að taka ágjöfum sem gætu birst í sveiflum í þjóðhagslegum skilyrðum.
    Þegar á allt er litið hefur náðst mikill árangur í íslenskum þjóðarbúskap á undanförnum árum. Þessi árangur hefur fleytt Íslandi í hóp þeirra þjóða sem standa fremst í efnahagsmálum á alla mikilvæga mælikvarða í þessum efnum. Ríkisstjórnin mun byggja á þessum grunni með frekari markaðsumbótum og hagstjórn sem miðar að stöðugleika og jafnvægi. Í því skyni verður áfram unnið að sölu ríkisfyrirtækja, eflingu samkeppni og ríkisfjármálum og peningamálum verður beitt til að draga úr eftirspurn og umsvifum. Þannig má framlengja hagvaxtarskeiðið á sama tíma og stöðugleikinn er festur í sessi.
    Hér á eftir er lýst stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Í framhaldi er fjallað um ástand og horfur í þjóðarbúskapnum. Jafnframt fylgja rammagreinar um valin efni, viðauki um hagvöxt í ljósi sögunnar og töfluviðauki.

II. Efnahagsstefnan.


    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 28. maí síðastliðnum eru sett fram markmið efnahagsstefnunnar á næstu misserum og árum. Meginmarkmiðið er að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum, skapa skilyrði fyrir áframhaldandi hagvöxt og auka þjóðhagslegan sparnað. Stöðugt verðlag og bætt samkeppnisstaða íslensks atvinnulífs er forsenda nýrra starfa til að mæta auknu framboði vinnuafls. Stefna í gengis- og peningamálum svo og í fjármálum ríkisins miðast við að ná fram þessum markmiðum.
    Helstu atriði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að því er varðar efnahags- og atvinnumál eru:
     —      Að viðhalda jafnvægi í ríkisfjármálum og lækka skuldir ríkissjóðs með markvissum hætti.
     —      Að vinna áfram að nýskipan í ríkisrekstri.
     —      Að efna til markvissra aðgerða til þess að auka almennan sparnað.
     —      Að endurskoða skattalöggjöfina með það að markmiði m.a. að draga úr jaðaráhrifum og mismunun innan skattkerfisins.
     —      Að halda áfram einkavæðingu ríkisfyrirtækja, einkum þeirra sem eru í samkeppni við fyrirtæki í eigu einkaaðila.
     —      Að auka fjölbreytni atvinnulífs og útflutningsgreina.
     —      Að örva starfsemi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og styðja frumkvöðla í atvinnulífinu.Að treysta undirstöður byggðar í landinu í samræmi við nýsamþykkta þingsályktun um það efni.
     —      Að vinna að sem víðtækastri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið.
     —      Að efna til víðtæks samráðs stjórnvalda við bændur og samtök þeirra um framtíðarskipulag íslensks landbúnaðar til að tryggja hagkvæmni í greininni og skapa þeim sem landbúnað stunda sem besta afkomu.
     —      Að breyta skipulagi orkumála þannig að samkeppni verði innleidd til að auka hagkvæmni og lækka orkuverð.
     —      Að auka veg ferðaþjónustu m.a. með öflugu kynningarátaki á helstu mörkuðum.
     —      Að efla upplýsingaiðnað þannig að til verði ný störf um allt land sem höfða ekki síst til ungs fólks.
     —      Að vinna að því að framsækin atvinnuþróunarstefna geti byggt á frjóu rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi.
     —      Skólastarf verði áfram eflt, einkum starfsnám og verkmenntun á framhaldsskólastigi.
     —      Að endurskoða almannatryggingakerfið svo og samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóðakerfið.

Stefnan í peningamálum.
    
Meginviðfangsefni stefnunnar í peningamálum hefur að undanförnu falist í að skapa aðhald gegn þenslu og vaxandi verðbólguhættu. Jafnframt hefur útlánaþensla og fjármögnun með erlendum lánum til skamms tíma verið áhyggjuefni í ljósi öryggis og stöðugleika fjármálakerfisins í heild. Til að bregðast við þessum aðstæðum hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti sína þrisvar á þessu ári, samtals um 1,5 prósentustig, í framhaldi af 0,3 prósentustiga hækkun í september 1998. Auk þess setti Seðlabankinn að nýju kvöð á lánastofnanir um að þær skyldu ráða yfir ákveðnu lágmarki lausafjár. Skammtímavaxtamunur gagnvart útlöndum hefur í framhaldi af þessu verið um 5½ prósentustig, sem er hærra en nokkru sinni síðan hömlum var að fullu létt af fjármagnshreyfingum á milli Íslands og umheimsins árið 1995. Raunverulegt aðhaldsstig peningastefnunnar jókst þó ekki að sama skapi, þar sem verðbólga hefur aukist. Stýrivextir Seðlabankans voru því lægri í lok sumars en í byrjun árs á mælikvarða raunvaxta.
    Í ljósi vaxandi verðbólgu mun stefnan í peningamálum áfram verða aðhaldssöm. Ákvarðanir um aðgerðir munu að einhverju leyti ráðast af gengi krónunnar, en hækkun þess myndi stuðla að lægri verðbólgu. Um þessar mundir er mikilvægt að slá á verðbólguvæntingar og það takmarkar svigrúm fyrir peningastefnuna að taka tillit til annarra markmiða, svo sem að draga úr viðskiptahalla. Viðskiptahallinn er afleiðing mikillar innlendrar eftirspurnar og ónógs þjóðhagslegs sparnaðar. Hann getur til lengdar grafið undan stöðugleika í gengismálum og því er brýnt að aðgerðir á öðrum sviðum dragi úr hallanum. Þar er aukið framlag hins opinbera til þjóðhagslegs sparnaðar öruggasta og fljótlegasta leiðin, eins og stefnt er að í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
    Sem fyrr segir hefur Seðlabankinn þegar hækkað vexti sína þrisvar á þessu ári. Sá munur var þó á þessum aðgerðum að vaxtahækkunin í febrúar hafði það að leiðarljósi að styrkja gjaldeyrisforða, draga úr innlendri eftirspurn og styrkja þannig undirstöður stöðugleika í gengismálum. Samtímis var tilkynnt um nýja lausafjárkvöð á lánastofnanir. Vaxtahækkanirnar í júní og september beindust hins vegar að því að slá á vaxandi verðbólgu með hækkun á gengi krónunnar. Gengi krónunnar hafði styrkst um meira en 1% síðla september frá vaxtahækkun Seðlabankans um miðjan júní.
    Mikill munur skammtímanafnvaxta hér á landi og í viðskiptalöndum bendir til verulegs peningaaðhalds. Sama má segja um þá staðreynd að skammtímavextir eru nú svipaðir eða hærri en óverðtryggðir vextir til langs tíma. Hins vegar draga auknar verðbólguvæntingar úr aðhaldsstiginu þar sem skammtímaraunvextir verða lægri en ella. Það dregur einnig úr áhrifunum að hækkun skammtímavaxta hefur farið saman við tilhneigingu verðtryggðra langtímavaxta til að lækka, sem einkum kom fram á árinu 1998, en einkaneysla og fjárfesting eru mun næmari fyrir langtímaraunvöxtum en skammtímavöxtum. Meginástæða þessarar þróunar er að líkindum afnám hafta á fjármagnshreyfingar við útlönd sem er smám saman að þrýsta vöxtum hér á landi niður að erlendum vöxtum, en einnig hefur aukinn seljanleiki skuldabréfa á eftirmarkaði stuðlað að lækkun þeirra. Um miðjan september sl. voru verðtryggðir langtímavextir svipaðir og í upphafi ársins en óverðtryggðir vextir hafa hækkað samhliða aukinni verðbólgu og hækkun stýrivaxta Seðlabankans. Hugsanlegt er því að aðhaldsaðgerðir Seðlabankans hafi hamlað gegn frekari lækkun langtímavaxta sem kynt hefði enn meira undir innlendri eftirspurn.
    Vöxtur peninga- og útlánastærða fór stigvaxandi á síðasta ári og á sama tíma snerist lausafjárstaða innlánsstofnana úr því að vera jákvæð í að vera stórlega neikvæð. Þessi þróun hélt áfram í byrjun þessa árs og í febrúar ákvað Seðlabankinn að setja reglur um laust fé lánastofnana. Með reglunum var sett lágmark á lausafjárstöðu lánastofnana sem hlutfall af ráðstöfunarfé þeirra. Aðlögunartíma lauk 21. júlí sl. og er nú gerð sú krafa að lausafjárhlutfallið sé að lágmarki 1,5%.
    Tilgangur þessara reglna er fyrst og fremst sá að stuðla að varkárni í rekstri lánastofnana og að koma í veg fyrir að útlán þeirra og fjárfestingar séu í óhóflegum mæli fjármögnuð með skammtímalánum frá öðrum lánastofnunum og Seðlabankanum. Þá hafa reglurnar óbein áhrif á erlenda skammtímastöðu. Vegna slakrar lausafjárstöðu höfðu reglurnar þau áhrif til skamms tíma að rýra útlánagetu lánastofnana, sem voru að sínu leyti æskileg hliðaráhrif. Hins vegar er ólíklegt að þær muni hafa varanleg áhrif á vöxt útlána, þar sem lánastofnanir munu laga sig að þeim.
    Ljóst var að þessar reglur hefðu ýmsar óæskilegar hliðarverkanir. Sum bréf teljast til lauss fjár en önnur ekki þótt í mörgum tilvikum megi telja að séu auðseljanleg á markaði. Þetta kann að leiða til þess að vaxtarófið brenglist þar sem eignir sem teljast til lausafjár verða eftirsóknarverðari en aðrar. Því var í samstarfi við Fjármálaeftirlitið og lánastofnanir hleypt af stokkunum vinnu við þróun nýrra reglna um laust fé þar sem laust fé og lausafjárskuldir eru metnar með víðtækari hætti. Þróun nýrra reglna er vel á veg komin og hugsanlegt er að þær geti tekið gildi á komandi vetri. Seðlabankinn hyggst þó ekki slaka á þeim varúðarsjónarmiðum sem liggja að baki núverandi reglum.
    Sú gengisstefna, sem fylgt hefur verið, hefur reynst vel hér á landi á undanförnum árum, en hagstæð efnahagsþróun síðustu ára hefur auðveldað framkvæmd stefnu stöðugleika í gengismálum. Ekki eru uppi nein áform um breytingar á hinni formlegu stefnu í gengismálum. Gengið gæti hins vegar hugsanlega hreyfst meira innan vikmarkanna í því skyni að stuðla að lágri verðbólgu og draga úr hættu á að innlendir sem erlendir fjárfestar fari að líta á mjög fast gengi sem óbeina ríkisábyrgð á bak við fjárfestingar á íslenskum fjármagnsmarkaði. Einnig verður áfram fylgst með framvindu gengismála í heiminum, einkum á evrusvæðinu, og áhrifum þeirra á íslenskt efnahagslíf.
    Þjóðhagsáætlun fyrir árið 2000 gerir ráð fyrir að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði hóflegur og verulega dragi úr hagvexti. Gangi þessar spár eftir ætti að draga úr þeirri umframeftirspurn á vöru- og vinnumörkuðum sem nú ógnar verðstöðugleika á Íslandi. Stefnan í peninga- og gengismálum mun áfram mótast af því meginmarkmiði að draga úr þeirri þenslu, sem enn ríkir, og skapa skilyrði til þess að endurheimta þann verðstöðugleika sem verið hefur undanfarin ár.

Stefnan í ríkisfjármálum.
    
Þróun efnahagsmála hér á landi hefur verið hagfelld á flesta mælikvarða á afkomu þjóðarbúskaparins. Staða ríkisfjármála hefur færst til betri vegar að undanförnu og horfur á myndarlegum og vaxandi afgangi á fjárlögum á næstu árum. Jafnframt hefur skuldastaða ríkisins batnað verulega að undanförnu enda hefur hagstæð afkoma ríkissjóðs verið nýtt til þess að greiða niður skuldir og búa þannig í haginn fyrir framtíðina.
    Þessar staðreyndir sýna að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefur skilað umtalsverðum árangri. Jafnframt hefur Ísland skipað sér á bekk með þeim þjóðum sem sýna hvað bestan árangur í efnahags- og ríkisfjármálum að undanförnu. Íslensk stjórnvöld hafa enda fengið jákvæða umfjöllun í skýrslum OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bæði vegna þeirra áherslubreytinga sem orðið hafa í hagstjórn og ýmissa skipulagsbreytinga sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir á mörgum sviðum efnahagslífsins, á fjármálamarkaði, í opinberum rekstri með aukinni áherslu á hagræðingu og markaðsvæðingu, í lífeyrismálum og víðar. Sömu sögu er að segja af þeim fyrirtækjum sem hafa skoðað stöðu íslenskra efnahagsmála með það fyrir augum að meta lánshæfi. Jákvæð umsögn þessara aðila hefur síðan skilað sér með áþreifanlegum hætti í þjóðarbúið í formi lægri vaxta af erlendum lánum.
    Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2000 er lagt fram með hagstæðari niðurstöðu en þekkst hefur hér á landi um mjög langt árabil, hvort sem litið er á tölur um afgang eða þær skoðaðar í hlutfalli við landsframleiðslu. Rekstrarafgangur ríkissjóðs samkvæmt frumvarpinu er áætlaður 15 milljarðar króna, eða sem svarar til 2,2% af landsframleiðslu. Lánsfjárjöfnuður er talinn verða enn hagstæðari, eða tæplega 24 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að fjárlög ársins 1999 voru afgreidd með 2,4 milljarða króna afgangi, en nú er áætlað að endanleg niðurstaða verði nálægt 7½ milljarði, eða um 1,2% af landsframleiðslu. Lánsfjárjöfnuður ársins 1999 er jafnframt talinn verða um 20 milljarðar króna, samanborið við 17 milljarða afgang árið 1998. Samanlagt nemur lánsfjárafgangur áranna 1998–2000 því rúmlega 60 milljörðum króna. Öllu því fjármagni er unnt að verja til uppgreiðslu lána eða til að bæta stöðu ríkissjóðs að öðru leyti.
    Eins og ofangreindar tölur bera með sér er í frumvarpinu lögð megináhersla á að nýta hagstætt árferði til þess að reka ríkissjóð með verulegum afgangi og skapa með því svigrúm til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Þessi stefnumörkun er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá síðasta vori þar sem meðal annars er kveðið á um nauðsyn aðhaldssamrar hagstjórnar og að ríkissjóður skuli rekinn með umtalsverðum afgangi. Við núverandi aðstæður er fátt mikilvægara svo sporna megi gegn viðskiptahalla og þenslu í efnahagslífinu.
    Þótt mikill uppgangur hafi þannig verið í efnahagslífinu að undanförnu er fyllsta ástæða til þess að fara að öllu með gát við stjórn efnahagsmála. Á þessu ári hefur gætt tilhneigingar til aukinnar verðbólgu, sem meðal annars má rekja til hækkunar olíuverðs á alþjóðamarkaði. Auk þess hafa miklar launahækkanir og aukinn kaupmáttur leitt til aukinnar eftirspurnar innan lands, sem aftur hefur leitt til nokkurrar verðhækkunar, ekki síst á fasteignamarkaði. Aukin innlend eftirspurn hefur einnig leitt til umtalsverðs viðskiptahalla frá árinu 1998, en horfur eru á að hann fari minnkandi á næstu árum. Engu að síður er mikilvægt að fylgja áfram aðhaldssamri efnahagsstefnu sem miðar að því að treysta stöðugleika í verðlagi og skapa þannig skilyrði fyrir áframhaldandi hagvexti.
    Við þessar aðstæður eru veigamikil rök fyrir því að treysta stöðu ríkisfjármála enn frekar. Þannig er mikilvægt að sterk staða ríkisfjármála myndi mótvægi við viðskiptahallann og stuðli þannig að auknum þjóðhagslegum sparnaði. Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir auknum þjóðhagslegum sparnaði með ýmsum öðrum hætti, meðal annars með átaki til að efla hinn frjálsa lífeyrissparnað landsmanna. Aðhaldssöm stefna í ríkisfjármálum á árinu 1999 hefur ótvírætt hamlað gegn innlendri eftirspurn. Með fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2000 er gengið enn lengra og gert ráð fyrir helmingi meiri rekstrarafgangi en horfur eru á árið 1999. Veigamikill þáttur í auknu aðhaldi er frestun opinberra framkvæmda á ýmsum sviðum til þess að hamla gegn mikilli þenslu. Jafnframt hefur ýmsum hugmyndum og áformum um ný verkefni verið slegið á frest. Með þessu leggur ríkisvaldið sitt lóð á vogarskálarnar til þess að unnt verði að varðveita efnahagslegan stöðugleika.
    Traust afkoma ríkissjóðs gerir kleift að greiða niður skuldir ríkissjóðs og grynnka á vaxta- og greiðslubyrði næstu ára. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að þessu markmiði. Sú vinna hefur skilað þeim árangri að í stað langvarandi hallareksturs og skuldasöfnunar hafa skuldir ríkissjóðs lækkað um meira en fimmtung af landsframleiðslu frá 1995 til ársloka 1998 og horfur eru á frekari lækkun á þessu og næsta ári. Samkvæmt áætlun fjárlagafrumvarpsins er gert ráð fyrir að skuldahlutfallið verði nálægt 30% í árslok 2000 samanborið við 51% í árslok 1995.

Stefnan í atvinnumálum.
    
Í atvinnumálum verður áfram unnið að því að treysta stöðu hinna hefðbundnu atvinnugreina. Þannig verður unnið að því að ná sem víðtækastri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið án þess að raska hagkvæmni og stöðugleika í greininni. Í landbúnaði verður efnt til víðtæks samráðs stjórnvalda við bændur og samtök þeirra um framtíðarskipulag íslensks landbúnaðar til að tryggja hagkvæmni í greininni og skapa þeim sem landbúnað stunda sem besta afkomu.
    Mikilvæg undirstaða allra atvinnugreina er aukin menntun og þekking. Það eru einnig forsendur aukinnar fjölbreytni í atvinnulífinu. Upplýsingatækni og rannsóknir gegna hér veigamiklu hlutverki.
    Ein árangursríkasta leiðin til að auka framleiðni íslensks atvinnulífs er að nýta nýjungar í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Ávinningurinn af því er meiri fyrir Ísland en flestar aðrar þjóðir, sökum fjarlægðar frá stórum mörkuðum. Þessi nýja tækni mun nýtast litlum fyrirtækjum einkar vel og draga úr því óhagræði sem stafar af fjarlægð landsins frá erlendum mörkuðum. Ríkisstjórnin telur mikilvægt að umgjörð rafrænna viðskipta sé sem tryggust og að óþarfa lagahindranir standi ekki í vegi fyrir eðlilegri þróun á þessu sviði.
    Þróun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni hefur nú þegar gert framtaksömum mönnum kleift að skapa ný störf á landsbyggðinni, störf sem að öðrum kosti hefðu verið unnin á höfuðborgarsvæðinu. Ríkisstjórnin vill stuðla að áframhaldandi þróun í þessa átt og efla upplýsingaiðnaðinn þannig að til verði ný störf um allt land – ekki síst störf sem höfða til ungs fólks.
    Víðtækar athuganir á vegum OECD á síðustu árum hafa sýnt fram á að verulegan hluta efnahagslegra og þjóðfélagslegra framfara megi rekja beint og óbeint til nýjunga á sviði vísinda og tækni og fjárfestingar í menntun. Hér á landi hefur fjárfesting síðustu 20 ára í menntun og rannsóknum verið að skila sér í ríkum mæli að undanförnu. Íslenskir vísindamenn hafa staðið sig vel í alþjóðlegum samanburði og þátttaka þeirra í alþjóðasamvinnu fer hraðvaxandi. Efnahagsumbætur þær sem ríkisstjórnin hrinti af stað fyrir nokkrum árum hafa leitt til aukins stöðugleika og frelsis á fjármálamarkaði. Það hefur að undanförnu leyst úr læðingi áhættufé sem mjög hefur örvað myndun og vöxt hátæknifyrirtækja og flýtt fyrir hagnýtingu nýrrar þekkingar í atvinnulífinu. Þetta mun eiga sinn þátt í örum hagvexti og atvinnusköpun hér á landi síðustu ár.
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er því lögð áhersla á mikilvægi vísinda- og tækniþekkingar fyrir efnahagslegar og félagslegar framfarir. Gert er ráð fyrir margvíslegum aðgerðum til að efla hlut vísinda- og tæknimenntunar á háskólastigi og ýta undir rannsóknir, þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins til að auka fjölbreytni atvinnuveganna. Ríkisstjórnin mun leita leiða til að endurskipuleggja og samhæfa betur starfsemi rannsókna- og skólastofnana í þágu þekkingaruppbyggingar og þjónustu fyrir atvinnulífið. Jafnframt verður hugað að því að skattareglur og reglur um einkaleyfi og verndun þekkingarverðmæta örvi fyrirtæki til rannsókna- og þróunarvinnu. Einnig mun ríkisstjórnin leita leiða til að efla grunnrannsóknir til að tryggja sem best langtímaþarfir atvinnulífs og þjóðlífs og að hér á landi verði aðstaða til að taka við og meta nýja þekkingu í vísindum og tækni og sinna margvíslegum rannsóknum á sviði félags- og menningarmála. Öflug þátttaka í alþjóðlegu samstarfi, m.a. við önnur Norðurlönd, lönd innan Evrópusambandsins, Bandaríkin o.fl., er mikilvægur þáttur í uppbyggingu vísindalegrar færni, aukinnar virkni og yfirfærslu á alþjóðlegri þekkingu til íslenskra stofnana. Rannsóknarráði Íslands, RANNÍS, hefur verið falið að gera tillögur í þessum efnum til ríkisstjórnarinnar, samræma aðgerðir eftir því sem kostur er og gera með reglubundum hætti menntamálaráðherra og ríkisstjórn grein fyrir stöðu Íslands í þessum efnum.
    Á undanförnum árum hefur verið unnið að margháttuðum skipulagsbreytingum í ýmsum atvinnugreinum, sem hafa að meira eða minna leyti verið undir stjórn hins opinbera. Hér má nefna fjármagnsmarkað, fjarskiptamarkað og raforkumarkað. Fjármagnsmarkaður hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Hann hefur dafnað vel við hagstæð ytri skilyrði og ráðist hefur verið í miklar skipulagsbreytingar sem auka munu samkeppnishæfni hans í vaxandi erlendri samkeppni. Síðan að velheppnaðri hlutafélagavæðingu ríkisviðskiptabankanna og endurskipulagningu fjárfestingarlánasjóðakerfisins lauk hefur verið unnið að því að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum og skrá þau á markaði. Á þessu kjörtímabili er stefnt að því að selja hlutabréf ríkisins í fjármálafyrirtækjum með það að markmiði að ná fram hagræðingu á fjármagnsmarkaði en tryggja um leið virka samkeppni á markaðnum til að ná fram ódýrari þjónustu. Við söluna verður þess gætt að ríkið fái hámarksverð fyrir eign sína í bönkunum.
    Á undanförnum árum hefur skipan raforkumála tekið miklum breytingum víða erlendis. Þessar breytingar hafa í megindráttum falist í því að skilja í sundur þá þætti raforkukerfisins sem eðlilegt þykir að háðir verði sérleyfi og þá þætti þar sem samkeppni verður við komið. Leitast er við að nýta kosti frjálsrar samkeppni, einkum í vinnslu og sölu raforku. Þessar breytingar hafa tekist vel og er það nú skoðun flestra að samkeppnisumhverfi skili að jafnaði bestum árangri í vinnslu og sölu. Ríkisstjórnin hyggst breyta skipulagi orkumála þannig að samkeppni verði innleidd til að auka hagkvæmni og lækka orkuverð. Um leið verði unnið að jöfnun orkuverðs og gæði þjónustunnar jafnframt aukin.
    Skipulagsbreytingarnar á fjármagnsmarkaði, fjarskiptamarkaði og orkumarkaði munu áfram stuðla að aukinni samkeppni í hagkerfinu sem kemur bæði fyrirtækjum og heimilum til góða á næstu árum.

III. Ástand og horfur.


1. Staða og horfur í þjóðarbúskapnum.


1.1 Helstu niðurstöður.
    Undanfarin 4 ár hefur íslenskur þjóðarbúskapur búið við einstaka hagsæld. Nærri lætur að landsframleiðsla hafi vaxið um fjórðung á þessu tímabili. Horfur eru hins vegar á því að á árinu 2000 hægi á vexti þjóðarútgjalda og af þeim sökum verði hagvöxtur á mælikvarða landsframleiðslu nokkuð minni en undanfarin ár eða um 2,7%. Til samanburðar er áætlað að vöxtur landsframleiðslu á árinu 1999 verði um 5,8%. Reyndar má segja að hægari vöxtur þjóðarútgjalda sé forsenda þess að verðstöðugleiki undanfarinna ára verði varðveittur. Verðlagshækkanir hafa verið meiri á þessu ári en um nokkurt skeið og mun meiri en í viðskiptalöndum okkar. Þjóðhagsstofnun spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 5% innan ársins og 3,2% milli áranna 1998 og 1999. Gangi spá um hægari vöxt þjóðarútgjalda eftir er þess hins vegar að vænta að það dragi úr þrýstingi á verðlag. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir því ráð fyrir því að á árinu 2000 hækki vísitala neysluverðs um 2½% frá upphafi til loka árs og nálægt 4% milli áranna 1999 og 2000.
    Aðrar helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
     —      Horfur á vinnumarkaði eru góðar. Reiknað er með að árið 2000 atvinnuleysi verði að meðaltali svipað og á þessu ári eða um 2%.
     —      Áætlanir benda til þess að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hækki um tæplega 5% í ár. Þar sem kjarasamningar á almennum markaði renna út í febrúar ríkir töluverð óvissa um þróun kaupmáttar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist í takt við kaupmátt ráðstöfunartekna í helstu viðskiptalöndum eða á bilinu 1–1½%.
     —      Gert er ráð fyrir að á árinu 2000 hægi á vexti út- og innflutnings. Spáð er að vöxtur útflutnings vöru og þjónustu verði um 2½% og vöxtur innflutnings 2%. Áætlaður vöxtur útflutnings á þessu ári er tæp 8½% og vöxtur innflutnings tæp 3½%. Reiknað er með að lítils háttar rýrnun á viðskiptakjörum á þessu ári gangi til baka á því næsta.
     —      Áfram er gert ráð fyrir miklum halla á viðskiptum við útlönd. Reiknað er með 29 milljarða króna viðskiptahalla á árinu 1999 eða 4½% af landsframleiðslu og að hann verði svipaður á næsta ári. Flest bendir til að halli á viðskiptum við útlönd verði áfram umtalsverður á árunum 2001–2004, en fari þó minnkandi.
     —      Mikill viðskiptahalli endurspeglast í aukningu erlendra skulda þjóðarbúsins. Hrein erlend skuld var um áramót 48,3% af landsframleiðslu. Reiknað er með að þetta hlutfall hækki um 1,5 prósentustig fyrir lok næsta árs.
     —      Allt stefnir í það að afkoma hins opinbera haldi áfram að batna. Áætlað er að tekjuafgangur ríkis og sveitarfélaga verði um 8 milljarðar króna á þessu ári samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar en hann var um 5½ milljarður króna árið 1998. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að tekjuafgangur verði 10½ milljarður króna.
     —      Horfur eru á því að árlegur hagvöxtur verði að meðaltali um 2% á árunum 2001–2004. Þess ber að geta að þessi framreikningur er mjög háður forsendum um ytri skilyrði þjóðarbúsins svo og ýmsum öðrum forsendum, t.d. er varða framleiðniþróun. Þá er í honum ekki gert ráð fyrir neinni viðbótarstóriðju eftir stækkun Norðuráls í 90.000 tonn.

1.2 Yfirlit þjóðhagsspár.
    Áætlað er að vöxtur landsframleiðslu í ár verði 5,8%. Er þetta nokkuð meiri hagvöxtur en áður var gert ráð fyrir. Skýrist það fyrst og fremst af því að ekki er útlit fyrir samdrátt í fjárfestingu frá fyrra ári eins og áður hafði verið reiknað með við lok ýmissa stórra framkvæmda. Þar koma til auknar byggingaframkvæmdir vegna íbúðar-, verslunar- og skrifstofuhúsnæðis. Áætlað er að einkaneysla aukist í takt við aukinn kaupmátt ráðstöfunartekna eða um 6%. Mikill hagvöxtur byggist að hluta á hröðum vexti útflutnings sem skýrist m.a. af auknum útflutningi áls og kísiljárns og auknum tekjum af ferðamönnum. Auk þess hefur hægt mjög á aukningu innflutnings og því vex landsframleiðslan hraðar en þjóðarútgjöld. Viðskiptahalli verður þó áfram mikill eða um 29 milljarðar króna sem samsvarar 4,6% af landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir að jöfnuður þáttatekna verði öllu óhagstæðari í ár en í fyrra vegna aukinna vaxtagreiðslna af erlendum lánum sem leiðir til þess að þjóðarframleiðsla vex hægar en landsframleiðsla eða um 5,2%. Vegna lakari viðskiptakjara en á síðasta ári er áætlað að þjóðartekjur aukist aðeins minna, eða um 4,8%. Verri viðskiptakjör má rekja til lægra verðs á útfluttu áli og kísiljárni auk hækkunar á innfluttri olíu.

Yfirlit þjóðhagsspár.

Magnbreytingar frá fyrra ári, %
1999
m.kr.
Áætlun
1999
Spá
2000
1997 1998
Einkaneysla
395.730 6,0 11,0 6,0 2,5
Samneysla
137.651 3,1 3,7 3,4 2,5
Fjármunamyndun
127.424 10,5 23,4 -0,1 2,1
Þjóðarútgjöld alls
660.806 6,2 12,1 4,0 2,4
Útflutningur vöru og þjónustu
223.439 6,0 2,4 8,3 2,6
Innflutningur vöru og þjónustu
242.350 8,6 22,1 3,4 2,0
Landsframleiðsla
641.894 5,3 5,1 5,8 2,7
Þjóðarframleiðsla
631.952 5,2 6,2 5,2 2,4
Viðskiptakjaraáhrif
- 0,9 1,4 -0,4 0,3
Þjóðartekjur
631.952 6,2 7,7 4,8 2,7
Viðskiptajöfnuður
-29.292 - - - -
% af landsframleiðslu
- -1,4 -5,7 -4,6 -4,2
Breyting kaupmáttar ráðstöfunart. á mann (%)
- 4,5 8,5 4,8 1,3
Breyting neysluverðs (%)
- 1,8 1,7 3,2 3,9

    Spáð er að töluvert dragi úr vexti landsframleiðslu á næsta ári og að hagvöxtur verði um 2,7%. Reiknað er með að það hægi á vexti einkaneyslu með hægari vexti kaupmáttar. Hins vegar er því spáð að í stað samdráttar í ár aukist fjárfesting nokkuð hraðar á næsta ári. Þar gætir helst kaupa og endurbóta á fiskiskipum, áframhaldandi vaxtar í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði og stækkunar Norðuráls. Gert er ráð fyrir að vöxtur þjóðarútgjalda verði 2,4%. Vöxtur landsframleiðslu umfram þjóðarútgjöld skýrist af hraðari vexti útflutnings en innflutnings. Jafnframt er gert ráð fyrir að vöxtur bæði útflutnings og innflutnings verði hægari árið 2000 en í ár. Að vísu er reiknað með svipaðri aukningu í útflutningi sjávarafurða og í ár, en á móti kemur töluvert minni aukning í útflutningi áls. Talið er að gæta muni mettunaráhrifa í innflutningi varanlegra neysluvara og að minna verði flutt inn af rekstrarvörum og fjárfestingarvörum til annarra en stóriðju. Gert er ráð fyrir að viðskiptahalli verði svipaður að krónutölu og í ár en þó öllu lægra hlutfall af landsframleiðslu eða 4,2% í stað 4,6%. Í samræmi við auknar skuldir þjóðarbúsins munu vaxtagreiðslur aukast og halli á jöfnuði þáttatekna vaxa áfram á næsta ári. Af þessum sökum er því spáð að vöxtur þjóðarframleiðslu verði 0,3 prósentustigum lægri en vöxtur landsframleiðslu eða 2,4%. Gert er ráð fyrir að rýrnun viðskiptakjara í ár gangi til baka á næsta ári og þjóðartekjur hækki því öllu meira en þjóðarframleiðslan eða um 2,7%.

1.3 Efnahagshorfur á næstu árum.
    Á undanförnum árum hefur Þjóðhagsstofnun birt áætlun um horfur í efnahagsmálum til næstu ára. Þetta er framreikningur byggður á spá fyrir árið 2000 og gefnum forsendum um ytri aðstæður þjóðarbúsins og stefnu í efnahagsmálum á árunum eftir 2000 og gefur því einungis vísbendingar um það sem koma skal.


    Hagvöxtur hefur verið óvenjumikill hér á landi síðustu ár, en svo virðist sem nú sjái fyrir enda þessa mikla hagvaxtarskeiðs. Framleiðslugeta hagkerfisins er að heita fullnýtt og hagvexti því nokkur takmörk sett á næstu árum.
    Framreikningarnir taka mjög mið af þeim forsendum sem gefnar eru og ná til tímabilsins 2001–2004. Hér eru spár alþjóðastofnana um hagvöxt á næstu árum lagðar til grundvallar. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í OECD ríkjunum nemi um 2,5% að meðaltali og verðbólga mælist um 1,8% á ári frá 2001 til 2004. Minni óvissa ríkir nú um efnahagsþróun á alþjóðavettvangi en um nokkurt skeið. Þó er ljóst að einstök ríki eru komin mislangt í efnahagsuppsveiflunni. Sum búa við hraðan hagvöxt á meðan önnur eru mun skemmra á veg komin.
    Gert er ráð fyrir að mjög dragi úr vexti helstu þjóðhagsstærða á næstu árum þótt ekki sé í þessum framreikningi gert ráð fyrir samdrætti í efnahagslífinu. Þannig er gert ráð fyrir að hagvöxtur á árunum 2001–2004 verði um 2% að meðaltali sem er töluvert minni vöxtur en á árunum 1996–1999 þegar vöxturinn var að meðaltali 5½% og heldur hægir á vexti frá því sem áætlað er á árinu 2000, þegar gert er ráð fyrir 2,7% vexti. Í kjölfar mikillar aukningar í einkaneyslu á undanförnum árum er nú búist við 1½% vexti að meðaltali á ári á tímabilinu frá 2001–2004. Gert er ráð fyrir svipuðum launabreytingum og í helstu viðskiptalöndum okkar, eða á bilinu 3–4%. Þá er búist við að dragi úr verðbólguhraðanum frá því sem gert er ráð fyrir á árunum 1999 og 2000 og verðbólga mælist að meðaltali 2½% á tímabilinu. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann eykst þannig um ríflega 1% á ári.
    Forsendur spárinnar gera ráð fyrir heldur minni vexti samneyslu en á undanförnum árum eða á bilinu 2–2½%. Þá er gert ráð fyrir að í kjölfar mikilla fjárfestinga síðastliðin ár dragi mjög úr vexti fjárfestingar á næstu árum og hann nemi um 2% á ári að meðaltali. Fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu helst þannig nokkuð stöðug frá árinu 2000 og nemur um 19% af landsframleiðslu.
    Þá er gert ráð fyrir að útflutningur vaxi heldur hraðar en innflutningur. Reiknað er með að framleiðsla sjávarafurða aukist um 2% á ári á tímabilinu frá 2001–2004 og að álver Norðuráls verði stækkað um helming og framleiðsla í þeim hluta álversins hefjist á árinu 2001. Þá er gert ráð fyrir vexti í framleiðslu annarra útflutningsafurða. Árlegur vöxtur útflutnings í heild er því áætlaður 2½%. Á móti er gert ráð fyrir minni vexti þjóðarútgjalda en á undanförnum árum og þannig minni vexti innflutnings eða sem nemur 1½–2%. Í kjölfarið er gert ráð fyrir að viðskiptahallinn minnki þegar líða tekur á tímabilið, þótt að meðaltali nemi hann um 3% af landsframleiðslu á tímabilinu frá 2001–2004. Þetta veldur áframhaldandi skuldasöfnun erlendis en búist er við að erlendar skuldir sem hlutfall af landsframleiðslu hækki fram til ársins 2001, en eftir það haldist hlutfallið nokkuð stöðugt eða um 52–53% af landsframleiðslu.
    Gert er ráð fyrir að verð helstu útflutningsafurða þróist í takt við erlent verðlag, að því undanskildu að gert er ráð fyrir heldur meiri hækkun álverðs og verðs kísiljárns, sem er í samræmi við spár alþjóðastofnana. Þannig fara viðskiptakjör batnandi á tímabilinu.
    Með minni umsvifum í efnahagslífinu minnkar spurn eftir vinnuafli og atvinnuleysi eykst. Ekki er þó hér gert ráð fyrir miklum breytingum á atvinnuleysi og reiknað með að það verði 3% að meðaltali. Gera má ráð fyrir að vöxtur í framleiðni vinnuafls minnki á næstu árum, en hann hefur verið mjög mikill í uppsveiflunni. Hér er gert ráð fyrir að hann verði um 1½% sem er svipað og gert er ráð fyrir í nágrannaríkjum okkar.
    Óvissuþættir þessara framreikninga eru margir. Fyrst má telja óvissu um niðurstöður þeirra kjarasamninga sem gerðir verða á næstu árum sem munu hafa mikil áhrif á efnahagsþróun, ekki síst á verðlagsþróun. Þá er alltaf mikil óvissa um framleiðslu sjávarafurða, þótt ýmislegt bendi til að aflabrögð ættu að vera allgóð á næstu árum. Hér er ekki gert ráð fyrir stóriðjuframkvæmdum öðrum en stækkun Norðuráls, en hugsanlegt er að ráðist verði í fleiri stóriðjuframkvæmdir á þessu tímabili.

2. Alþjóðleg efnahagsmál.


    Þegar horft er til helstu kennileita í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi er nú kyrrara yfir að líta en verið hefur um nokkurt skeið. Fjármálaerfiðleikarnir sem settu svip sinn á framvinduna árin 1997 og 1998 virðast að mestu að baki og við blasir jafnari hagþróun í heimsbúskapnum. Þannig gera alþjóðaefnahagsstofnanir ráð fyrir að hagvöxtur glæðist í Japan og Evrópu á næstu misserum en minnki aftur á móti í Bandaríkjunum. Svipaða sögu er að segja af hagvaxtarhorfum í öðrum löndum. Í flestum tilvikum er reiknað með hægari hagvexti þar sem þenslueinkenni hafa komið fram og örari vexti þar sem illa hefur gengið. Þessi jafnvægisleitni er þemað í spám alþjóðaefnahagsstofnana.

Ástand og horfur í efnahagsmálum í heiminum.
Hlutfallslegar breytingar (%) nema annað sé tekið fram.


1997

1998
Áætlun
1999
Spá
2000
Hagvöxtur
4,2 2,5 2,8 3,4
    Iðnríki
3,2 2,2 2,6 2,6
        Bandaríkin
3,9 3,9 3,7 2,6
        Evrusvæðið
2,4 2,8 2,1 2,8
        Japan
1,4 -2,8 0,2 1,0
    Þróunarríki
5,8 3,2 3,5 4,7
    Nýmarkaðsríki
2,2 -0,2 0,2 2,3
        Rússland
0,9 -4,6 -2,0 –
    Asía
6,6 3,7 5,2 5,3
Alþjóðaviðskipti
9,9 3,6 3,7 6,1
Hráolíuverð
-5,4 -32,1 16,3 4,6
Verðbólga
    Iðnríki
2,1 1,6 1,4 1,8
    Þróunarríki
9,2 10,3 7,0 5,8
    Nýmarkaðsríki
28,2 20,9 40,3 18,5
Vextir, LIBOR, 6 mánaða
    Bandaríkjadollarar
5,8 5,5 5,4 6,0
    Japönsk jen
0,7 0,6 0,1 0,2
    Evra
3,5 3,7 2,8 3,0
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, september 1999.

    Þótt þannig gæti bjartsýni í alþjóðaefnahagsmálum um þessar mundir er rétt að vekja athygli á því að óvissa ríkir um þessar spár eins og jafnan áður. Í því sambandi skiptir líklega mestu máli að sú aðlögun að jafnari vexti sem gert er ráð fyrir kann að verða skrykkjóttari en nú verður séð fyrir. Þannig er t. d. spáð „mjúkri lendingu“ í bandarísku efnahagslífi, þ.e. að jafnt og þétt hægi á efnahagsstarfseminni niður í vöxt sem fær staðist til lengdar. En lendingin gæti auðvitað orðið hörð, t.d. ef verð á hlutabréfum lækkaði snarlega, og þá vaknaði spurningin um hvort eftirspurn og umsvif á evrusvæðinu og í Japan ykjust nægilega mikið og hratt til að vega á móti niðursveiflunni í Bandaríkjunum. Jafnframt gæti mikill viðskiptahalli í Bandaríkjunum leitt af sér snögga lækkun á gengi dollarans. Slík hækkun gæti valdið ýmsum aðlögunarerfiðleikum í heimsbúskapnum við núverandi aðstæður.
    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir nú 2,6% hagvexti í iðnríkjunum á þessu ári og sama vexti á árinu 2000. Þótt vöxturinn í heild breytist ekki verða miklar breytingar milli einstakra ríkja. Til marks um það bera Bandaríkin uppi hagvöxtinn á þessu ári, áætlað er að hann verði 3,7%, en reiknað er með að hann lækki í 2,6% á árinu 2000. Á móti vegur að vöxturinn í Japan er talinn fara úr nánast engu í 1% á næsta ári og á evrusvæðinu er spáð 2,8% vexti í stað 2,1% í ár. Búist er við að hagvöxtur í öðrum ríkjum en iðnríkjunum — þróunarlöndunum og nýmarkaðsríkjum — aukist á ný og því eykst heimsframleiðslan um 3,4% á næsta ári borið saman við 2,8% á þessu ári.
    Verðbólga er innan viðunandi marka í öllum iðnríkjunum um þessar mundir. Þá er miðað við að hún sé innan við 3,0%. Ekki er gert ráð fyrir breytingu í þessum efnum milli áranna 1999 og 2000 þótt spáð sé ívið meiri verðbólgu á næsta ári, eða 1,8% í stað 1,4% á þessu ári. Engu að síður er verðbólga áhyggjuefni í nokkrum ríkjum þar sem þenslu hefur gætt, svo sem í Bandaríkjunum, Noregi og Danmörku. Þá verður Ísland að teljast til þessara landa enda er verðbólga nú meiri hér en í öðrum iðnríkjum.
    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn reiknar með að vextir hækki nokkuð á næsta ári, einna mest í Bandaríkjadollurum. Vaxtahækkunin er þó víðast hvar varla meiri en sem samsvarar aukinni verðbólgu. Töluverður munur verður áfram á vöxtum milli landa. Til að mynda er spáð að sex mánaða Libor vextir í Bandaríkjadollurum verði að meðaltali um 6% á næsta ári, um 3% í evrum og 0,2% í jenum.
    Eins og við er að búast er talið að atvinnuástand muni batna þar sem hagvöxtur færist í aukana og öfugt þar sem hann fer minnkandi. Þegar til iðnríkjanna er litið í heild er hins vegar spáð óbreyttu atvinnuástandi milli áranna 1999 og 2000, eða 6,7% atvinnuleysi. Evrópa sker sig úr í þessu sambandi. Þar er atvinnuleysi víða um eða yfir 10%, en fer að vísu hægt minnkandi með vaxandi hagvexti.
    Að öllu samanlögðu fela þessar horfur í sér hagstæðar ytri aðstæður fyrir íslenskan þjóðarbúskap. Eftirspurn og umsvif munu samkvæmt þessu fara vaxandi á mikilvægum mörkuðum fyrir íslenskar afurðir. Engu að síður er rétt að minna á að óvissa ríkir um ýmsar forsendur þessarar spár.

3. Fjármagnsmarkaður.


3.1 Vextir og gengi.
    Ástand á peningamarkaði, þ.e. markaði með verðbréf með skamman líftíma, endurspeglar jafnan ástand í efnahagsmálum á hverjum tíma. Seðlabankinn notar peningamarkað til vaxtastýringar og á honum fara einnig fram viðskipti vegna tímabundinnar fjármagnsþarfar markaðsaðila. Merki um mikinn uppgang í efnahagslífinu á þessu ári hafa komið skýrt fram í vaxtastigi á peningamarkaði. Seðlabankinn hefur þrívegis á árinu hækkað vexti í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir, fyrst í febrúar um 0,4 prósentustig, þá í júní um 0,5 prósentustig og loks í september um 0,6 prósentustig. Vextir í endurhverfum viðskiptum eru nú 9%. Með þessu móti var leitast við að styrkja gengi krónunnar og draga úr innlendri eftirspurn enda ýmis teikn á lofti um að verðstöðugleika væri ógnað.

Mynd 3. Gengi og vaxtamunur gagnvart útlöndum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Seðlabanki Íslands (vikuleg gögn).



    Vextir annarra bréfa á peningamarkaði hafa fylgt vöxtum í viðskiptum lánastofnana við Seðlabankann. Ávöxtun 3 mánaða ríkisvíxla hefur t.d. hækkað um 1½ prósentustig frá áramótum. Samhliða hækkunum hérlendis hafa skammtímavextir lækkað í mörgum viðskiptalöndum okkar. Skýring þessa er að víða hefur hagvöxtur verið mun hægari en hér á landi og frekar þurft að styðja við innlenda eftirspurn en draga úr henni. Munur 3 mánaða vaxta hér á landi og í viðskiptalöndunum hefur því aukist mjög það sem af er árinu. Var hann 3½ prósentustig í upphafi árs en 5½ prósentustig eftir síðustu vaxtahækkun Seðlabankans. Með hliðsjón af verðhækkunum síðustu mánaða má búast við áframhaldandi aðhaldi í peningamálum.
    Þegar á heildina er litið hafa orðið litlar breytingar á gengi íslensku krónunnar það sem af er ári. Gengisvísitala krónunnar var um áramót rúm 113 stig en um 112½ stig eftir vaxtahækkunina í september. Gengið styrktist tímabundið í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans í febrúar en tók svo að lækka á ný og náði lágmarki í maí þegar gengisvísitalan fór í rúmlega 114½ stig. Raunar var það yfirlýst stefna Seðlabankans við vaxtahækkunina í febrúar að gengið hækkaði ekki að ráði. Spornaði bankinn við hækkun krónunnar með kaupum á gjaldeyri á markaði og jók þannig gjaldeyrisforðann. Gengið hefur styrkst nokkuð eftir vaxtahækkanirnar í júní og september. Mikill vaxtamunur við útlönd ætti að veita krónunni áframhaldandi stuðning.
    Skuldabréfamarkaður, þ.e. markaður með verðbréf til lengri tíma, hefur á árinu einkennst af minnkandi hlutdeild ríkisskuldabréfa og væntingum um frekari uppkaup af hálfu ríkisins. Minna framboð af ríkisskuldabréfum hefur að öðru óbreyttu áhrif til lækkunar vaxta. Hið sama má segja um bætt aðgengi að erlendu lánsfé en erlend lán hafa vaxið mjög hratt.
    Ýmsir aðrir þættir hafa fremur haft áhrif til hækkunar en lækkunar vaxta á verðbréfamarkaði. Þar ber fyrst að telja reglur um lausafjárkvöð á lánastofnanir sem settar voru í mars. Tilgangur reglnanna var að draga úr áhættu í lánakerfinu ekki síst vegna töku erlendra skammtímalána til endurlána. Eðli málsins samkvæmt draga lausafjárreglur úr eftirspurn eftir skuldabréfum (og hækka þ.a.l. ávöxtunarkröfuna) en auka eftirspurn eftir þeim bréfum sem til lauss fjár teljast svo sem ríkisvíxlum til skemmri tíma en 90 daga. Í öðru lagi hafa lífeyrissjóðir leitað í auknum mæli í erlend verðbréf til ávöxtunar á fé sínu og hefur það dregið úr tilhneigingu til lækkunar vaxta á innlendum skuldabréfamarkaði. Í þriðja lagi má nefna að gott efnahagsástand hefur að öðru jöfnu áhrif til aukinnar eftirspurnar eftir fjármagni og þar af leiðandi til hækkunar vaxta.
    Að öllu samanlögðu eru áhrif fyrrgreindra þátta lítt breyttir vextir á verðtryggðum skuldabréfum. Þannig var t.d. ávöxtunarkrafa 5 ára spariskírteina 4,7% um áramót en 4,6% síðla september.
    Auk áðurnefndra áhrifaþátta á verðtryggða vexti þá ræðst ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa af verðbólguvæntingum og af óvissu um verðbólgu enda hefur slík óvissa áhrif á áhættuálag. Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra bréfa umfram verðtryggð bréf hefur aukist í samræmi við verðlagsþróun á árinu. Seint í september var ávöxtunarkrafa 5 ára ríkisbréfa 9¼% en var 7½% um áramót. Þannig hefur „verðbólguálag“ á óverðtryggð bréf vaxið úr 2,7 prósentustigum um áramót í 4½ prósentustig miðað við 5 ára bréf.
    Af ýmsum ástæðum er fremur að vænta lækkunar en hækkunar verðtryggðra vaxta á skuldabréfamarkaði á næstu mánuðum. Í fyrsta lagi má nefna minnkandi framboð ríkisskuldabréfa. Fjármálaráðherra hefur falið Lánasýslu ríkisins að greiða upp ríkisskuldabréf fyrir allt að 7 milljarða króna umfram sölu fyrir áramót og hefur þegar gætt þrýstings til lækkunar vaxta af þessum sökum. Í öðru lagi er aðlögunartímabili lausafjárreglna lokið og ættu þær því ekki að valda frekari þrýstingi til hækkunar vaxta. Í þriðja lagi er ekki ólíklegt að eitthvað hægi á erlendum verðbréfakaupum lífeyrissjóða á síðari hluta ársins og að aukning í hreinni eign þeirra birtist því að töluverðu leyti sem aukin eftirspurn eftir skuldabréfum á innanlandsmarkaði. Slík þróun mundi einnig styðja við gengi krónunnar. Ennfremur er gert ráð fyrir að á næsta ári hægi á hagvexti og ætti því að draga úr vexti almennrar eftirspurnar eftir lánsfé.
    Mikið hefur dregið úr veltu á markaði með ríkisbréf og spariskírteini ríkissjóðs það sem af er ári. Velta ríkisbréfa á VÞÍ var um þriðjungi minni á fyrstu átta mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra og velta spariskírteina um tveimur þriðju hlutum minni. Bent hefur verið á a.m.k. þrjár mögulegar skýringar á svo mikilli veltulækkun: Minna framboð ríkisskuldabréfa, setningu lausafjárreglna og óvissu varðandi uppkaup ríkisskuldabréfa. Telja verður að allar þessar skýringar hafi eitthvert gildi. Samdráttur framboðs ríkisskuldabréfa hefur dregið úr virkni markaðarins en er vart nægjanlegur til að skýra jafn afgerandi minnkun viðskipta og raun ber vitni. Í kjölfar tilkynningar um lausafjárreglur dró úr viðskiptum með ríkisskuldabréf. Markaðsaðilar kunna ennþá að vilja fara varlega þar til ljóst er hvernig lausafjárreglur verða endurskoðaðar og hvenær nýjar reglur taka gildi. Varanleg áhrif lausafjárreglna á veltu á skuldabréfamarkaði ættu að vera lítil sem engin. Það sem mælir gegn afgerandi áhrifum lausafjárreglna á skuldabréfamarkað er að viðskipti með húsbréf hafa aukist í samræmi við aukið framboð þrátt fyrir að færa megi góð rök fyrir því að lausafjárreglur ættu að hafa svipuð áhrif á viðskipti með húsbréf og ríkisskuldabréf. Óvissa vegna uppkaupa á ríkisskuldabréfum ætti hins vegar að koma skýrast fram í viðskiptum með ríkisskuldabréf. Óvissan hefur verið tvenns konar. Annars vegar um magn uppkaupa en einnig um markaðsáhrif þegar vænst er svo mikillar minnkunar á framboði ríkisskuldabréfa. Aukin óvissa birtist m.a. í auknum mun kaup- og sölutilboða í ríkisskuldabréf og hafði munurinn aukist nokkuð fyrir setningu lausafjárreglna. Munur kaup- og sölutilboða húsbréfa hefur hins vegar ekki aukist.

Mynd 4. Staða og velta spariskírteina ríkissjóðs á VÞÍ.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Seðlabanki Íslands, Hagtölur mánaðarins, VÞÍ og Lánasýsla ríkisins (mánaðarleg gögn).



3.2 Hlutabréfamarkaður.

    Lífleg viðskipti hafa verið með hlutabréf það sem af er þessu ári. Fyrstu átta mánuði ársins voru viðskipti með hlutabréf á VÞÍ alls 21,7 milljarðar króna. Utanþingsviðskipti voru á sama tíma 50 milljarðar króna þannig að heildarviðskipti með hlutabréf skráð á VÞÍ fyrstu átta mánuði ársins voru 71,7 milljarðar króna. Þetta er veruleg veltuaukning frá fyrra ári en allt árið 1998 voru viðskipti með hlutabréf á VÞÍ um 12,7 milljarðar króna og heildarvelta skráðra hlutabréfa um 32 milljarðar króna. Þrátt fyrir mikla aukningu er velta sem hlutfall af markaðsvirði enn lítil á alþjóðlegan mælikvarða en þetta hlutfall gefur vísbendingu um hversu virk verðmyndun er á markaði. Síðustu tólf mánuði var veltuhlutfallið um 10% á VÞÍ en 50–85% á hinum Norðurlöndunum. Horfur eru á því að þetta hlutfall haldi áfram að hækka á næstu árum. Áframhaldandi einkavæðing bankanna og annarra ríkisfyrirtækja mun án efa hafa áhrif til hækkunar veltuhlutfallsins. Einnig er ekki ólíklegt að aukið umfang hlutabréfamarkaðarins stuðli að hærra veltuhlutfalli en fjölmörg fyrirtæki eru með áform um skráningu á VÞÍ á næstu misserum. Rafræn skráning eignarhalds á verðbréfum sem fyrirhugað er að hefjist síðar á þessu ári minnkar viðskiptakostnað og mun þ.a.l. stuðla að aukinni veltu. Síðast en ekki síst gæti tenging við viðskiptakerfi erlendra kauphalla orðið vatn á myllu íslensks hlutabréfamarkaðar. Tenging við erlendar kauphallir er nú til athugunar hjá VÞÍ en þróunin í Evrópu og víðar hefur verið til aukins samstarfs kauphalla og samruna viðskiptakerfa þeirra. Slík tenging mundi vafalaust auka áhuga erlendra aðila á íslenska hlutabréfamarkaðinum þegar fram líða stundir. Algengt er á hlutabréfamörkuðum að eignarhlutdeild erlendra fjárfesta í bréfum miðað við markaðsvirði sé veruleg. Til að mynda er þessi hlutdeild um þriðjungur á hlutabréfamarkaðinum í Osló, sem nýlega ákvað að ganga til samstarfs við kauphallirnar í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Erlendir fjárfestar geta því haft töluverð áhrif á veltu og þar með verðmyndun á markaði.
    Fyrstu átta mánuði ársins fjölgaði skráðum félögum um 7 á VÞÍ og eru skráð hlutafélög nú alls 74 talsins. Um miðjan september var heildarmarkaðsvirði skráðra félaga um 310 milljarðar króna en var um 230 milljarðar í byrjun árs. Þessa aukningu markaðsvirðis má að mestu leyti rekja til hækkunar hlutabréfaverðs. Aukið umfang hlutabréfamarkaðarins ber auknu mikilvægi hans í þjóðarbúskapnum glöggt vitni og hlutabréfaeign verður sífellt almennari. Samkvæmt skattframtölum áttu 50 þúsund manns hlutabréf um síðustu áramót og hafði þeim fjölgað um 5.500 frá árinu áður.

Mynd 5. Mánaðarleg hlutabréfavelta á VÞÍ og


gildi úrvalsvísitölu í lok hvers mánaðar 1997–99.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Verðbréfaþing Íslands.



    Nokkurrar bjartsýni gætti í upphafi árs á hlutabréfamarkaði enda mátti ljóst vera að afkoma skráðra félaga á VÞÍ hafði batnað töluvert á árinu 1998. Hækkaði hlutabréfaverð fram í miðjan apríl en tók þá að lækka. Sérfræðingar á fjármálamarkaði voru á þessum tíma sammála um það að hlutabréfaverð væri orðið mjög hátt eftir miklar hækkanir mánuðina á undan. Þá komu fram vísbendingar um aukna verðbólgu og líklegt er að væntingar markaðsaðila um að Seðlabankinn mundi bregðast við með hækkun stýrivaxta hafi haft einhver áhrif til lækkunar hlutabréfaverðs. Undir lok júnímánaðar tók hlutabréfaverð að hækka hratt á nýjan leik. Afkomuspár fyrir fyrstu sex mánuði ársins sem verðbréfafyrirtæki birtu um það leyti gerðu á heildina litið ráð fyrir verulegri aukningu hagnaðar frá fyrra ári. Afkoma fyrirtækja á VÞÍ á fyrri helmingi ársins var síðan almennt heldur betri en spáð hafði verið sem stuðlaði að frekari hækkun hlutabréfaverðs. Um miðjan september hafði Úrvalsvísitala Aðallista hækkað um tæp 22% frá áramótum og Heildarvísitala Aðallista um 23%.
    Hagnaður þeirra 40 fyrirtækja á Aðallista VÞÍ sem hafa almanaksárið að reikningsári og skiluðu milliuppgjöri bæði á þessu og á síðasta ári var um 7,8 milljarðar króna fyrstu sex mánuði þessa árs. Jókst hann um u.þ.b. 2,4 milljarða króna eða meira en 40% sé miðað við hagnað sömu fyrirtækja fyrri hluta síðasta árs. Árið 1998 jókst hagnaður fyrirtækja á Aðallista um u.þ.b. þriðjung. Sé tekið mið af þessum mikla afkomubata síðustu misseri og stöðu þjóðarbúskaparins í hagsveiflunni er ekki óeðlilegt að hægi á vexti hagnaðar enda benda útreikningar til þess að markaðsaðilar geri ráð fyrir því. Þannig eru nú minni væntingar um árlegan raunvöxt hagnaðar félaga á Aðallista byggðar inn í hlutabréfaverð en um tvenn síðastliðin áramót. Í mati á væntingum um raunvöxt hagnaðar, sem sýnt er á mynd 6, er miðað við heildarhagnað síðustu 12 mánaða sem tölur lágu fyrir um á hverjum tíma. Ennfremur er gert ráð fyrir því að ávöxtunarkrafa á fjárfestingu í hlutabréfum sé 6% umfram ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa til langs tíma.

Mynd 6. Væntingar um vöxt hagnaðar.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



4. Utanríkisviðskipti og greiðslujöfnuður.


4.1 Umhverfi utanríkisviðskipta.
    Á undanförnum misserum hefur verð á hrávörum sveiflast mikið. Eftir töluverða lækkun á verði áls, kísiljárns og olíu á síðasta ári hefur verð þessara vara farið hækkandi á þessu ári. Þessar verðbreytingar hafa haft áhrif bæði á innflutnings- og útflutningshlið íslensks þjóðarbúskapar og leitt af sér sveiflur á viðskiptakjörum. Á árinu 1998 bötnuðu viðskiptakjör vöru og þjónustu um 4,2%, aðallega vegna hækkunar á fiskverði og lækkunar á olíuverði, sem vógu upp lækkun á álverði og verði kísiljárns.

Mynd 7. Raungengi krónunnar miðað við


hlutfallslegt neysluverð og launakostnað.


Vísitölur, 1990 = 100.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Fyrstu sjö mánuði þessa árs lækkaði innflutningsverð á vörum um 1,9% en útflutningsverð lækkaði um 0,1%, sem þýðir að viðskiptakjör vöru fyrstu sjö mánuði ársins bötnuðu um 1,8%. Mikil hækkun olíuverðs á heimsmarkaði að undanförnu er ekki að fullu komin fram í innflutningstölunum, en búist er við að lækkunin frá fyrra ári gangi að verulegu leyti til baka á þessu ári. Hækkun olíuverðs má rekja til samkomulags OPEC ríkjanna í mars um að draga úr olíuframleiðslu og loforða nokkurra olíuframleiðenda utan OPEC um að gera slíkt hið sama. Gert er ráð fyrir að innflutningsverð olíu verði að meðaltali um 5% hærra á næsta ári en í ár og er þá ekki reiknað með hækkunum á heimsmarkaði umfram þær sem þegar eru orðnar. Ekki er búist við mikilli breytingu á fiskverði á þessu ári, eða 0,5% hækkun milli ársmeðaltala. Álverð lækkaði nær stöðugt í fyrra og náði lágmarki í upphafi þessa árs. Þrátt fyrir að álverð hafi hækkað að undanförnu er gert ráð fyrir að meðalverð þessa árs verði lægra en meðalverð síðasta árs. Sömu sögu er að segja um verð á kísiljárni. Í heild er því búist við að viðskiptakjör vöru og þjónustu verði um 1% lakari í ár en á síðasta ári. Á næsta ári er gert ráð fyrir að lækkunin gangi til baka og viðskiptakjör batni um 1%.
    Einn mikilvægasti mælikvarði á umhverfi utanríkisviðskipta er raungengi, en raungengi miðað við neysluverðsvísitölu mælir hversu hátt verðlag er hér á landi miðað við helstu viðskiptalönd okkar, mælt í íslenskum krónum. Raungengi var mjög stöðugt á árunum 1995 og 1996, en hækkaði á árinu 1997 um 1% og um 1½% í fyrra. Á þessu ári er gert ráð fyrir svipaðri hækkun raungengis og á síðasta ári, eða 1½%. Raungengi miðað við launakostnað hefur hækkað mun meira vegna launahækkana hér á landi umfram launahækkanir í helstu viðskiptalöndunum. Á þennan mælikvarða hækkaði raungengið um 2½% á árinu 1997 og um 4½% á árinu 1998. Á þessu ári er gert ráð fyrir að raungengi miðað við launakostnað hækki um ½%.

4.2 Vöruútflutningur.
    Fyrstu sjö mánuði þessa árs hefur vöruútflutningur aukist um 8,3% á föstu verði. Útflutningur sjávarafurða í heild hefur dregist saman um 1,8% á þessu tímabili. Útflutningur á afurðum landfrystingar, síldarsöltunar og saltfiskverkunar hefur dregist saman. Á hinn bóginn hefur útflutningur á afurðum sjófrystingar, skreiðarverkunar og fiskmjölsverksmiðja aukist. Mest er þó aukning í útflutningi á ferskum og kældum fiski. Þrátt fyrir samdrátt í útflutningi það sem af er ári, er búist við að framleiðsla sjávarafurða aukist um 2% fyrir árið í heild.
    Útflutningur á landbúnaðarafurðum hefur aukist töluvert það sem af er þessu ári, eða um nær 30%, en er þó einungis 1½% af útflutningi á tímabilinu.
    Útflutningur á iðnaðarvörum hefur aukist um ríflega 25% á fyrstu sjö mánuðum ársins. Þar munar mestu um meiri útflutning á áli, aðallega vegna aukinnar framleiðslu Norðuráls. Fyrir árið í heild er búist við að álframleiðsla aukist um 27½%. Útflutningur á kísiljárni hefur nánast staðið í stað það sem af er ári, en búist er við töluverðri aukningu fyrir árið í heild, eða yfir 30%. Framleiðsla kísiljárns í fyrra var með minna móti vegna niðurskurðar á umframorku og á þessu ári verður þriðji ofn kísiljárnverksmiðjunnar tekinn í notkun. Töluverð aukning er einnig í útflutningi á iðnaðarvörum eins og veiðarfærum, rafeindavogum og vélum til fiskverkunar.
    Verðmæti útfluttra skipa og flugvéla er töluvert meira það sem af er þessu ári en á því síðasta. Í fyrra nam verðmæti útfluttra skipa og flugvéla 2,3 milljörðum króna á árinu öllu en það sem af er þessu ári hafa verið flutt út skip og flugvélar að verðmæti 3½ milljarður króna og búist við að upphæðin nemi 5 milljörðum fyrir árið í heild.
    Á árinu 1999 er búist við að útflutningsframleiðslan aukist um 8% að magni frá árinu 1998 á meðan spáð er aukningu vöruútflutnings í heild um 9,7% frá fyrra ári. Horfur eru á töluvert minni vexti vöruútflutnings á árinu 2000. Búist er við að framleiðsla sjávarafurða aukist um 2,5%. Sömu aukningar er vænst í álframleiðslu, en reiknað er með að kísiljárnframleiðsla aukist um ríflega 40% milli áranna 1999 og 2000 vegna gangsetningar þriðja ofns Íslenska járnblendifélagsins. Þá er búist við að önnur útflutningsframleiðsla aukist um 7,5%. Í þessu felst að útflutningsframleiðsla í heild aukist um 4,1% á árinu 2000, en vegna minni útflutnings skipa og flugvéla vaxi vöruútflutningur í heild um 2,2% á árinu 2000.

4.3 Vöruinnflutningur.
    Vöruinnflutningur hefur vaxið hröðum skrefum síðustu árin og í fyrra jókst vöruinnflutningur um 22,3% frá fyrra ári. Á þessu ári hefur innflutningur haldið áfram að vaxa, en þó mun hægar en undanfarin ár.
    

Mynd 8. Mánaðarleg þróun almenns innflutnings 1996–99.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Vísitala, 1990=100.


    Vöruinnflutningur fyrstu sjö mánuði ársins var um 3,6% meiri að magni en á sama tíma í fyrra. Munar þar mest um mikinn innflutning á bifreiðum en hann jókst um 27% miðað við sama tíma í fyrra. Innflutningur á öðrum neysluvörum jókst um ríflega 7% á sama tíma.
    Í kjölfar mikilla fjárfestinga í stóriðju undanfarin ár hefur innflutningur fjárfestingarvara lítið aukist það sem af er ári, eða sem nemur 1,7%. Á hinn bóginn hefur innflutningur á skipum aukist um nær helming það sem af er ári samanborið við sama tíma í fyrra. Innflutningur á flugvélum er svipaður og í fyrra, en Flugleiðir keyptu eina vél til landsins á fyrri hluta árs í fyrra og einnig á þessu ári.
    Innflutningur á eldsneyti hefur aukist um 10% það sem af er ári og munar mestu um mikinn innflutning á gasolíu sem er 20% meiri í ár en á fyrstu sjö mánuðum ársins í fyrra. Á hinn bóginn hefur innflutningur almennra rekstrarvara dregist saman fyrstu sjö mánuði ársins samanborið við sama tíma í fyrra.
    Fyrir árið í heild er nú gert ráð fyrir að almennur vöruinnflutningur aukist um einungis ½% að magni milli áranna 1998 og 1999 og búist er við að vöruinnflutningur í heild vaxi um 2,1% á árinu 1999, samanborið við 22,3% vöxt í fyrra. Á komandi ári er gert ráð fyrir að almennur innflutningur dragist saman um 1–1½% og spila þar saman mettunaráhrif vegna mikils innflutnings varanlegra neysluvara að undanförnu, minni vöxtur innflutnings fjárfestingarvara til annarra en stóriðju og minni vöxtur innflutnings rekstrarvara. Vegna innflutnings skipa, flugvéla og stækkunar Norðuráls verður vöxtur vöruinnflutnings í heild nálægt 1%.

4.4 Þjónustujöfnuður.
    Þjónustuviðskipti Íslendinga hafa aukist ár frá ári. Í fyrra jukust þjónustutekjur um 13% að magni, en á þessu ári er búist við aukningu sem nemur 5½%. Hröð aukning þjónustutekna hefur þó ekki skilað sér í hagstæðari þjónustujöfnuði þar sem vöxtur þjónustugjalda hefur verið enn hraðari. Á síðasta ári jukust þjónustugjöld um 21½% og á þessu ári er gert ráð fyrir aukningu sem nemur 6½%. Halli var á jöfnuði þjónustuviðskipta á síðasta ári sem nam hálfum milljarði króna og á þessu ári er gert ráð fyrir versnandi þjónustujöfnuði, eða sem nemur eins milljarðs króna halla. Gert er ráð fyrir að úr vexti þjónustutekna og -gjalda dragi á komandi ári og þjónustutekjur vaxi um 3½% á meðan þjónustugjöld vaxi um 4½% og halli á þjónustuviðskiptum við útlönd verði nær óbreyttur frá fyrra ári.

4.5 Ferðaþjónusta.
    Erlendum ferðamönnum heldur áfram að fjölga hér á landi og gera má ráð fyrir að á þessu ári komi um 256 þúsund erlendir ferðamenn til landsins sem er rúmlega 10% aukning frá því í fyrra. Á árinu 1998 voru heildartekjur af erlendum ferðamönnum 26,3 milljarðar króna en í ár er gert ráð fyrir að þessar tekjur verði u.þ.b. 28½ milljarður sem samsvarar 5½% hækkun að raungildi milli ára. Þrátt fyrir verulegar árstíðasveiflur í komum erlendra ferðamanna til landsins benda tiltækar upplýsingar til að veruleg fjölgun sé á erlendum gestum utan háannatíma. Á árinu 1990 var hlutfall þeirra ferðamanna sem kom á tímabilinu frá byrjun maí til ágústloka 64% en í ár er áætlað að þetta hlutfall verði 57%.

Mynd 9. Fjöldi erlendra ferðamanna.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þannig er meðaltalsaukning í fjölda erlendra ferðamanna á tímabilinu 1990–1998 um 7% á fyrsta ársfjórðungi og rúmlega 8% á þeim fjórða. Aukningin á öðrum og þriðja ársfjórðingi er á bilinu 5–6%. Í ár sýna gistináttaskýrslur 14% aukningu í fjölda gistinátta fyrstu fjóra mánuði ársins borið saman við sama tíma í fyrra. Á sama tíma jókst fjöldi ferðamanna um 16%. Gera má ráð fyrir að á árinu komi rúmlega 254 þúsund Íslendingar frá útlöndum og er það 12% aukning frá í fyrra. Áætluð útgjöld Íslendinga erlendis á árinu eru 31½ milljarður króna sem er um 10½% raunhækkun frá fyrra ári.

4.6 Jöfnuður þáttatekna.
    Jöfnuður þáttatekna er jafnan neikvæður vegna vaxtagreiðslna af erlendum skuldum. Við breytt uppgjör á viðskiptahalla sem Seðlabankinn tók upp á síðasta ári er tekið tillit til metinnar ávöxtunar verðbréfaeignar Íslendinga erlendis og hliðstæðra tekna erlendra aðila hérlendis. Meðal annars vegna þessa lækkaði halli þáttatekna úr 10½ milljarði króna á árinu 1997 í tæplega 7 milljarða króna á árinu 1998. Á þessu ári er gert ráð fyrir að jöfnuður þáttatekna verði neikvæður um 9,9 milljarða króna og rúmlega 12 milljarðar króna á árinu 2000. Aukinn halli er aðallega tilkominn vegna mikils viðskiptahalla að undanförnu og aukinna vaxtagreiðslna hans vegna.

4.7 Viðskiptajöfnuður.
    Á árunum 1993–1995 var viðskiptajöfnuður jákvæður þrjú ár í röð, í fyrsta sinn frá stofnun lýðveldisins. Á þessum árum var mikill afgangur á vöruskiptum við útlönd, eða á bilinu 12–20 milljarðar króna sem náði að vega upp miklar vaxtagreiðslur vegna erlendra lána. Á árinu 1996 fór afgangur á vöruskiptum við útlönd niður í 1,2 milljarða og niður í 250 milljónir á árinu 1997. Á árinu 1998 urðu síðan mikil umskipti þegar halli á vöruskiptum við útlönd var 25 milljarðar króna. Halla þennan má að hluta rekja til mikils innflutnings vegna framkvæmda við stóriðju, en einnig til mikils innflutnings neysluvara, enda nam aukning einkaneyslu 11% á árinu 1998. Viðskiptahallinn í heild nam 33½ milljarði króna á árinu 1998, sem svarar til 5,7% af landsframleiðslu þess árs. Ekki er búist við miklum umskiptum á þessu ári þar sem gert er ráð fyrir að vöruskiptahallinn nemi 17,9 milljörðum króna og viðskiptahallinn 29 milljörðum króna sem svarar til 4,6% af landsframleiðslu. Á komandi ári er búist við að útflutningur vaxi hraðar en innflutningur og vöruskiptahallinn fari í 15,2 milljarða króna en viðskiptahallinn verði svipaður, eða 29 milljarðar króna, sem jafngildir 4,2% af landsframleiðslu ársins 2000. Í þessu sambandi er rétt að nefna að gert er ráð fyrir töluverðum innflutningi skipa og flugvéla á næsta ári.

Mynd 10. Viðskiptajöfnuður 1980–2000.


Hlutfall af landsframleiðslu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


4.8 Fjármagnshreyfingar.
    Viðskiptahalli undanfarinna ára ber það með sér að heildarútgjöld þjóðarinnar eru meiri en tekjur hennar. Hallann verður að fjármagna með erlendu fé. Hrein erlend skuld þjóðarbúsins hefur því vaxið hratt síðastliðin tvö ár og hækkað sem hlutfall af landsframleiðslu þrátt fyrir mikinn hagvöxt. Hlutfall hreinnar skuldar af landsframleiðslu jókst úr 46,1% árið 1997 í 48,3% í fyrra og reiknað er með frekari hækkunum í ár og á næstu árum. Erlend fjármögnun getur tekið á sig ýmsar myndir. Um getur verið að ræða beina fjárfestingu erlendra aðila og verðbréfakaup þeirra hér á landi umfram beina fjárfestingu og verðbréfakaup Íslendinga erlendis eða lántöku innlendra aðila erlendis umfram endurgreiðslur erlendra lána. Með öðrum orðum: ef viðskiptajöfnuður er neikvæður verður fjármagnsjöfnuður að vera jákvæður. Undanfarin tvö ár hefur ríkissjóður greitt upp erlend lán. Einnig hafa verðbréfakaup Íslendinga erlendis aukist langt umfram fjármagnsinnstreymi til landsins vegna kaupa á innlendum verðbréfum. Aðrar fjármagnshreyfingar hafa því vegið bæði upp á móti þessum hreyfingum og viðskiptahallanum. Að nokkrum hluta hefur verið um að ræða beinar fjárfestingar erlendra aðila hér á landi en mest af þessum hreyfingum fæst þó skýrt með lántökum innlánsstofnanna og annarra aðila erlendis. Mikill vaxtamunur og stöðugt gengi íslensku krónunnar hefur gert slíkar lántökur hagstæðar og þannig hvatt til fjármagnsinnstreymis af þessu tagi. Fyrstu sex mánuði ársins var fjármagnsjöfnuður jákvæður um 16½ milljarð króna samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabankans. Nettó fjármagnsútstreymi vegna verðbréfakaupa var rúmir 5 milljarðar. Þá jukust ýmsar eignir erlendis um 22 milljarða króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,7 milljarða króna og var 31 milljarður króna um mitt ár. Á móti kemur nettó bein fjárfesting erlendra aðila hér á landi sem nam 6 milljörðum króna og nettó lántaka erlendis sem nam 38 milljörðum króna.

5. Atvinnuvegir.


5.1 Framleiðsla og framleiðni.
    Þegar fjallað er um framleiðslubreytingar eða hagvöxt í þjóðarbúskapnum á líðandi ári eða fyrir nýliðin ár hefur venjan verið sú að líta á útgjaldahlið þjóðarbúsins, þ.e. neyslu og fjárfestingu að teknu tilliti til vöru- og þjónustuviðskipta við útlönd, og þannig hefur niðurstaða fengist um framleiðsluna. Framleiðslan hefur því verið áætluð með óbeinum hætti, það er með því að áætla útgjöld og birgðabreytingar. Hins vegar er einnig unnt að áætla hana með beinum hætti, þ.e. að áætla framleiðslu í einstökum atvinnugreinum líkt og gert er í framleiðsluuppgjöri þjóðhagsreikninga. Gallinn við þessa aðferð er hins vegar sá að upplýsingar um einstakar atvinnugreinar liggja mun seinna fyrir en um útgjöldin. Miðað við núverandi tilhögun skýrslusöfnunar er það ekki fyrr en lokið er úrvinnslu úr ársreikningum fyrirtækja að fá má mynd af framleiðslubreytingum eftir einstökum atvinnugreinum og framleiðslunni í heild. Á grundvelli ýmissa annarra vísbendinga, svo sem um útflutning og veltubreytingar samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum og almennar verðbreytingar, má þó fara nokkuð nærri um framleiðslubreytingar helstu atvinnuvega. Þessar breytingar eru síðan vegnar saman eftir hlutdeild einstakra atvinnuvega í landsframleiðslu. Í eftirfarandi töflu er leitast við að áætla framleiðsluna eftir atvinnugreinum og eru niðurstöður bornar saman við útgjaldahlið.

Áætlaðar framleiðslubreytingar eftir atvinnugreinum.
Frá fyrra ári, %.

1997 1998 1999
Landbúnaður
0,0 3,5 0,0
Fiskveiðar og -vinnsla
-1,1 -5,6 2,9
Iðnaður án fiskvinnslu
2,9 7,5 7,8
Rafmagns-, hita- og vatnsveitur
6,5 11,0 10,0
Byggingarstarfsemi
14,6 15,0 8,0
Verslun, veitinga- og hótelrekstur
6,2 10,0 5,0
Samgöngur og önnur þjónusta
6,1 4,9 3,6
Starfsemi hins opinbera
3,1 3,0 3,4
Samtals
4,7 5,2 4,8
Til samanburðar:
    Magnbreyting landsframleiðslu
5,3 5,1 5,8
    Framleiðnibreyting
2,8 2,4 2,5

    Þessi þrjú ár er talið að landsframleiðslan hafi vaxið um 4½–5% á ári samkvæmt vísbendingum um framleiðslubreytingar í einstökum atvinnugreinum en útgjaldauppgjörið sem jafnan er miðað við sýnir nokkru meiri vöxt eða 5–6%. Líðandi ár er fjórða árið í röð sem sýnir hagvöxt um eða yfir 5% og er þetta mun meiri vöxtur en verið hefur hérlendis um langt árabil og einnig langt yfir meðaltali OECD-ríkjanna en meðalhagvöxtur þeirra árin 1997–99 er áætlaður 2½%. Til þess að ná þessum mikla hagvexti hérlendis hefur þurft nokkru fleira fólk og er talið að ársverkum hafi fjölgað um 2–3% á ári. Þessi aukning nemur tæpum helmingi af aukningu hagvaxtar og samkvæmt því hefur framleiðni vinnuaflsins aukist umtalsvert þessi ár, eða um það bil 2½% á ári.
    Vöxturinn er misjafn eftir greinum og í ljós kemur að á árunum 1997 og 1998 óx framleiðslan mest í byggingarstarfsemi, orkubúskap, verslun og þjónustu einkaaðila. Aftur á móti varð samdráttur í sjávarútvegi bæði árin. Talið er að í ár verði vöxturinn nokkru jafnari eftir greinum en vísbendingar eru þó enn af skornum skammti.
    Út frá þessum tölum og vægi einstakra atvinnugreina í landsframleiðslu má fá nokkra hugmynd um framlag einstakra atvinnugreina til aukningar landsframleiðslunnar þessi ár.

Áætluð hlutdeild einstakra atvinnugreina í hagvexti, %

1997 1998 1999
Landbúnaður
0,0 0,1 0,0
Fiskveiðar og –vinnsla
-0,2 -0,8 0,4
Iðnaður án fiskvinnslu
0,4 0,9 1,0
Rafmagns-, hita- og vatnsveitur
0,3 0,5 0,5
Byggingarstarfsemi
1,0 1,1 0,6
Verslun, veitinga- og hótelrekstur
0,8 1,4 0,7
Samgöngur og önnur þjónusta
2,0 1,6 1,2
Starfsemi hins opinbera
0,4 0,4 0,4
Samtals
4,7 5,2 4,8


    Samkvæmt þessu virðist mega rekja meira en helming hagvaxtarins á árinu 1997 og 1998 til verslunar og þjónustu án hins opinbera. Vísbendingar um líðandi ár benda til þess að vöxtur framleiðslunnar verði borinn uppi af fleiri atvinnugreinum en verið hefur.

5.2 Afkoma.
    Um langt árabil hefur Þjóðhagsstofnun reist afkomuathuganir sínar á úrtaksathugunum úr skattframtölum fyrirtækja. Þessar athuganir hafa verið byggðar á 1.600 til 1.800 fyrirtækjum úr velflestum atvinnugreinum og var einkum byggt á stórum og meðalstórum fyrirtækjum. Nú er að verða á þessu breyting því skattayfirvöld eru að taka í notkun staðlað skattframtal fyrir flesta rekstraraðila. Hafa þau nú að mestu komið í stað úrtaksathugana Þjóðhagsstofnunar. Árið 1997 var fyrsta árið sem efni lá fyrir um samkvæmt þessari nýju heimild og var gerð grein fyrir niðurstöðum í síðustu Þjóðhagsáætlun. Enn sem komið er liggja ekki fyrir fyrstu niðurstöður úr staðlaða skattframtalinu fyrir árið 1998 en þeirra er að vænta fljótlega og verður þá gerð grein fyrir þeim.
    Aftur á móti hefur áður verið gerð grein fyrir afkomu þeirra fyrirtækja sem skráð voru á Verðbréfaþingi Íslands á liðnu ári. Þar kom í ljós að hagnaður 36 fyrirtækja nam 9,1 milljarði eða 5,5% af tekjum en árið áður hafði hagnaður þessara sömu fyrirtækja verið 5% af tekjum. Afkoma þessara fyrirtækja batnaði því ótvírætt á árinu 1998 frá fyrra ári en þó verður að telja hæpið að þessi breyting sé vísbending um heildina.
    Til þess að fá nokkra mynd af afkomuþróuninni á árinu 1999 hefur Þjóðhagsstofnun tekið saman yfirlit yfir afkomu 61 fyrirtækis á Verðbréfaþingi Íslands á fyrri hluta árs 1999 og til samanburðar sama tímabil og sömu fyrirtæki 1998, sjá töflu hér að neðan. Yfirlitið nær til þeirra fyrirtækja sem höfðu skilað árshlutareikningum til Verðbréfaþingsins fyrir ágústlok 1999 og hafa almanaksárið að reikningsári.
    Nærri lætur að þessi 61 fyrirtæki nái til fjórðungs af áætlaðri heildarveltu atvinnurekstrarins. Heildarvelta þessara fyrirtækja var 136 milljarðar króna á fyrri hluta þessa árs og hafði aukist um tæp 9% frá sama tíma í fyrra. Í heild batnaði afkoma þessara fyrirtækja um 1,9% af tekjum á fyrri hluta ársins samanborið við sama tíma í fyrra og reyndist hagnaður af reglulegri starfsemi vera 7% af tekjum. Að teknu tilliti til óreglulegra tekna og gjalda og tekju- og eignarskatta varð hagnaður tímabilsins nokkru lægri eða 6% af tekjum. Þrátt fyrir þennan bata á heildina litið versnaði afkoma sjávarútvegs verulega og afkoma iðnaðar lítillega. Á móti bættu verslun og fjármálafyrirtæki stöðu sína og tap Flugleiða af reglulegri starfsemi varð mun minna en á fyrri hluta árs 1998.

Rekstraryfirlit 61 fyrirtækis á Verðbréfaþingi Íslands á fyrri hluta árs 1998–99.

Fjöldi fyrirtækja Rekstrartekjur, m.kr. Hagnaður af
reglulegri starfsemi
m.kr. % af tekjum
Sjávarútvegur:
1998
15 24.590 2.577 10,5
1999
15 23.358 1.685 7,2
Iðnaður:     
1998
11 9.924 491 4,9
1999
11 10.687 460 4,3
Verslun:     
1998
11 53.851 457 0,8
1999
11 59.910 1.088 1,8
Samgöngur:
1998
3 20.996 -1.096 -5,2
1999
3 21.981 -264 -1,2
Fjármálastofnanir:
    1998
16 12.103 4.035 33,3
1999
16 15.792 6.583 41,7
Þjónusta:     
1998
5 3.630 196 5,4
1999
5 4.595 292 6,3
Samtals:     
1998
61 125.095 6.659 5,3
1999
61 136.323 9.844 7,2

    Afkomutölur fyrirtækja á Verðbréfaþingi ná til takmarkaðs fjölda fyrirtækja og byggja á niðurstöðum bókhaldsins fyrir liðinn tíma. Til þess að fá mynd af heildinni allt árið er einna nærtækast að framreikna niðurstöður ársreikninga 1997 til 1998 og 1999 og er þá byggt á grundvelli bestu vitneskju um þróun heildarstærða eins og þær eru áætlaðar í þjóðhagsáætlun. Þá er einkum átt við breytingar launa, verðlags og hagvaxtar. Niðurstöður þessara áætlana fyrir atvinnureksturinn í heild 1997–99 eru sýndar í meðfylgjandi töflu.
    Vert er að leggja áherslu á að spáin fyrir árið 1999 byggir á lauslegu mati. En á grundvelli þessarar spár og sambærilegum tölum fyrri ára má ætla að hagur atvinnurekstrarins muni verða svipaður á þessu ári og í fyrra. Hreinn hagnaður á árinu 1999 er nú áætlaður rösk 3% af tekjum en þá er eftir að taka tillit til tekju- og eignarskatta. Í krónum nemur hagnaðurinn um 34 milljörðum en til samanburðar var hann áætlaður tæpur 31 milljarður á liðnu ári. Undanfarin fjögur ár, 1995–98, hefur hagnaðurinn verið á bilinu 3¼–3¾% af tekjum.
    Annar mælikvarði á afkomu atvinnurekstrar er hagnaðurinn í hlutfalli við eigið fé, þ.e. arðsemi eigin fjár, eftir greiðslu tekju- og eignarskatta. Á þennan mælikvarða litið er arðsemin á árinu 1999 nú áætluð 5½%, en var á bilinu 5–5½% á árunum 1996–98. Arðsemin fór yfir 6% árið 1995, en var 4½% árið 1994.

Lauslegt mat á hagnaði atvinnurekstrar 1997–99 í milljörðum króna.

1997 Áætlun 1998 Áætlun 1999 %-breytingar
1997–98 1998–99
Rekstrartekjur
865,3 957,8 1048,1 10,7 9,4
– Aðföng
592,3 655,6 717,4 10,7 9,4
= Vergar þáttatekjur
273,0 302,2 330,7 10,7 9,4
– Laun og eigin laun
182,4 204,8 225,5 12,3 10,1
– Afskriftir
45,1 49,3 52,6 9,4 6,6
– Vextir
15,9 17,1 18,1 7,5 5,8
Hreinn hagnaður fyrir tekju- og eignarskatta
29,6 30,9 34,4 4,5 11,3
% af rekstrartekjum
3,4 3,2 3,3
Eigið fé í atvinnurekstri í árslok
370 410 440
Arðsemi eigin fjár
5,2 5,4 5,5

    Á grundvelli helstu niðurstaðna úr þjóðhagsspá fyrir árið 2000 má fá nokkra mynd af líklegri afkomu atvinnurekstrar á komandi ári. Niðurstöður þessara áætlana benda til þess að hagnaður atvinnurekstrarins verði áþekkur eða lítið eitt betri en á þessu ári. Sama er að segja um arðsemi eigin fjár. Vert er þó að leggja áherslu á að þessar niðurstöður byggja meðal annars á forsendum þjóðhagsspár um launaþróun á árinu 2000 og eru afar næmar fyrir breytingum á henni.

Mynd 11. Hreinn hagnaður atvinnurekstrar


og arðsemi eigin fjár.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þær afkomuáætlanir sem hér hefur verið lýst má einnig nota til þess að meta greiðsluafkomu atvinnurekstrarins, þ.e. hverju atvinnureksturinn skilar til fjárfestinga. Greiðsluafkomuna má skilgreina sem hreinan hagnað að viðbættum afskriftum en að frádregnum fjárfestingum ársins og tekju- og eignarsköttum. Ætla má að á árinu 1998 hafi reksturinn skilað um 80 milljörðum króna til þess að mæta fjárfestingum atvinnurekstrarins á árinu auk tekju- og eignarskatta. Þessa tvo liði má hins vegar áætla rétt tæpa 100 milljarða króna, þannig að sé litið á atvinnureksturinn í heild má ætla að um 20 milljarða króna vanti á að greiðsluafkoman hafi verið á sléttu. Þess ber þó að geta í þessu sambandi að stóriðjuframkvæmdir vega þungt í fjárfestingum ársins og þær nema álíka eða litlu hærri fjárhæð en greiðsluhallinn í heild. Þær eru aftur á móti að verulegu leyti fjármagnaðar með sérstökum lántökum eða framlögum eigenda en ekki nema að óverulegu leyti af fé úr rekstri. Að teknu tilliti til þessa má því ætla að á árinu 1998 hafi hinn almenni atvinnurekstur ekki þurft að auka skuldir sínar þegar á heildina er litið.
    Spár fyrir árið 1999 benda til nokkurs samdráttar í fjárfestingum atvinnurekstrarins eftir mikinn vöxt undanfarin ár. Nú er talið að fjármunamyndun atvinnurekstrarins verði um 2 milljörðum króna minni en 1998 og með hliðsjón af því er greiðsluhallinn áætlaður um 10 milljarðar í stað 20 milljarða árið áður. Skuldir atvinnurekstrarins í heild ættu því að aukast sem þessu nemur.

5.3 Laun og hagnaður.
    Þegar landsframleiðslan hefur verið lækkuð um óbeina skatta en framleiðslustyrkjum bætt við fæst hugtak sem nefnt er vergar þáttatekjur. Þessum tekjum er síðan skipt upp milli launþega og þess sem fjármagnið ber úr býtum. Í hlut launþega koma laun og launatengd gjöld en það sem fjármagnið ber úr býtum er hagnaður atvinnurekstrarins og þá er átt við hagnað áður en afskriftir, vextir eða arður hafa verið dregin frá. Í þessari framsetningu eru beinir skattar hvorki dregnir frá launum né hagnaði.

Mynd 12. Verg hlutdeild fjármagns í þátta-


tekjum á Íslandi og í öðrum löndum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Niðurstöður útreikninga fyrir atvinnurekstur á Íslandi 1990–99 eru sýndar á meðfylgjandi mynd en þar er hagnaðarhlutfallið birt, þ.e. hlutfall hagnaðar af vergum þáttatekjum, og til samanburðar eru sýndar tölur fyrir OECD í heild á sama tíma, auk Noregs og Danmerkur. Rétt er að hafa nokkurn fyrirvara um sambærileik þessara talna, sérstaklega á það við um samanburð á launahlutfallinu milli landa en síður um mat á sveiflunum. Öðru fremur er vandinn tengdur mati á reiknuðum launum sjálfstætt starfandi atvinnurekenda en hvað Ísland varðar þá hafa laun þeirra verið áætluð þau sömu og hjá launþegum í sömu atvinnugrein en það er sama aðferð og OECD hefur beitt.
    Eins og vænta mátti og fram kemur á myndinni sveiflast hagnaðarhlutfallið mun meira á Íslandi en í OECD löndunum í heild. Hins vegar kemur í ljós þegar litið er á einstök lönd innan OECD að töluverðar sveiflur koma fram í hlutfallinu. Á myndinni eru sýndar tölur fyrir Danmörk og Noreg og þótt þar komi fram talsverðar sveiflur jafnast þær ekki á við tölurnar fyrir Ísland, með þeirri undantekningu þó að lækkun hagnaðarhlutfallsins í Noregi undanfarin tvö ár er meiri en í öðrum löndum sem samanburðurinn nær til.
    Á þessum áratug komst hlutfallið hæst hér á landi á árinu 1994 en varð lægst árið 1991. Áætlanir benda til þess að hlutfallið hafi lækkað á liðnu ári og sömu þróunar gæti í ár. Athyglisvert er að sama má segja um þróunina í ýmsum öðrum löndum OECD.

5.4 Fjárfesting atvinnuveganna og erlend fjárfesting.
    Fjárfesting atvinnuveganna fór minnkandi frá 1987 allt fram til ársins 1995 þegar hún náði lágmarki, og nam einungis 7,4% af landsframleiðslu. Á árinu 1996 urðu mikil umskipti þegar hafist var handa við þær stóriðjuframkvæmdir sem nú sér fyrir endann á. Fyrst var hafist handa við að stækka álver ÍSAL í Straumsvík, síðan hófst bygging álvers Norðuráls á Grundartanga og að lokum stækkun Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Jafnframt var lagt í virkjanaframkvæmdir til að tryggja þessum orkufreka iðnaði rafmagn til framleiðslu.
    Á árunum 1996–98 óx fjárfesting atvinnuveganna um nálægt 150%, eða sem nemur að meðaltali 35% á ári þessi þrjú ár. Mest var aukningin vegna byggingar og stóriðjuvera og tengdra virkjanaframkvæmda, en á árinu 1998 tók einnig að gæta aukningar í fjárfestingu í öðrum greinum, eins og fiskveiðum, hitaveituframkvæmdum, byggingastarfsemi og samgöngum.
    Á árinu 1998 nam fjárfesting atvinnuveganna 15% af landsframleiðslu og hafði því tvöfaldast sem hlutfall af landsframleiðslu frá árinu 1995. Á þessu ári er gert ráð fyrir dálitlum samdrætti í fjárfestingu atvinnuveganna, eða sem nemur 3,5%. Framkvæmdum vegna álvera er lokið og framkvæmdum vegna stækkunar járnblendiverksmiðju lýkur á þessu ári og því gætir samdráttar í fjárfestingu í þeim greinum. Á hinn bóginn er töluverður vöxtur í byggingu íbúðarhúsnæðis, byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis og kaupum á tölvu- og skrifstofubúnaði. Á næsta ári er gert ráð fyrir að fjárfesting atvinnuveganna aukist um 3,2%. Veruleg aukning er í fjárfestingu í fiskveiðum, aðallega vegna smíði nokkurra stórra tog- og nótaskipa erlendis sem væntanleg eru til landsins á næsta ári. Mikið hefur verið um breytingar á eldri fiskiskipum síðustu árin og gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Þá gætir einnig aukinnar fjárfestingar í samgöngum, fjarskiptum og skrifstofubúnaði. Einnig er í áætluninni gert ráð fyrir stækkun álvers Norðuráls úr 60 þúsund tonna framleiðslugetu í 90 þúsund tonn á næsta ári. Að undanskildum framkvæmdum við stækkun Norðuráls er áætlað að fjárfesting atvinnuveganna dragist saman um 2,5% á næsta ári í stað 3,2% aukningar. Hugsanlegt er að samningar takist um byggingu álvers við Reyðarfjörð og samkvæmt tímaáætlun mundu þær framkvæmdir hefjast á næsta ári.
    Samhliða aukinni fjárfestingu atvinnuveganna hefur fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri aukist hratt. Fjárfesting erlendra aðila er að stórum hluta í ál- og járnblendiverksmiðjum. Fjármunaeign erlendra aðila jókst lítið sem ekkert á árinu 1995, en eftir það tók hún að vaxa, um 4,8 milljarða króna á árinu 1996, 10,7 milljarða á árinu 1997 og 7,8 milljarða á árinu 1998. Fram til þessa hefur fjárfesting erlendra aðila nánast eingöngu verið í stóriðju, en að undanförnu hafa erlendir aðilar í auknum mæli fjárfest í öðrum greinum, eins og verslunar-, þjónustu- og tæknifyrirtækjum.

Mynd 13. Fjárfesting atvinnuveganna


1980–2000.


Vísitala, 1990=100.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Með opnum fjármagnsmarkaða, þróun hlutabréfamarkaðar og almennum efnahagsaðstæðum og skattaumhverfi líku því sem er í nágrannaríkjum okkar má búast við því að fjárfesting erlendra aðila hér á landi aukist jafnt og þétt á næstu árum og dreifist jafnframt á fleiri atvinnugreinar en nú er.

5.5 Afli.
    Þjóðhagsstofnun reiknar með að heildarafli landsmanna verði um 1.780 þúsund tonn á árinu 1999 samanborið við 1.680 þúsund tonn árið 1998. Aukningin liggur aðallega í því að loðnuaflinn er talinn aukast um 50 þúsund tonn og fari úr 750 þúsund tonnum í 800 þúsund tonn. Þá er gert ráð fyrir að um 9 þúsund tonn af þorski og um 11 þúsund tonn af rækju veiðist utan Íslandsmiða.
    Á föstu verði er gert ráð fyrir að afli aukist um 1%. Áætlað er að þorskafli aukist um 10,7% og afli af öðrum botnfiski aukist um 9,4%. Gert er ráð fyrir að samdráttur í öðrum afla verði 19% á föstu verði. Þar af minnkar rækjuafli um 33,8% og loðnuafli um 14%.
    Miðað við fyrstu átta mánuði ársins lítur út fyrir einhvern samdrátt frá fyrra ári í hráefniskaupum innlendrar fiskvinnslu á botnfiski af erlendum fiskiskipum. Sama er að segja um kaup á loðnu og kolmunna af erlendum veiðiskipum.
    Af rúmlega 110 þúsund tonna loðnuafla, sem þegar hefur verið landað á sumarvertíðinni, komu um 32 þúsund tonn úr erlendum skipum og af um 60 þúsund tonna kolmunnaafla komu um 10 þúsund tonn úr erlendum skipum. Þetta er 30% minni löndun loðnu- og kolmunnaafla úr erlendum skipum en á sama tíma á síðasta ári.

Afli og aflaverðmæti 1999–2000.


Breyting aflaverðmætis á föstu verði 1999–2000, %
Afli, þús. tonn
Áætlun 1999 Spá 2000
Þorskur
269 269 0
Annar botnfiskur
277 253 -8,7
Síld
95 100 17,4
Íslandssíld
202 202 0
Loðna
800 1.043 39,1
Humar
1,5 1,5 0
Rækja
42 42 0
Hörpudiskur
8 10 22,5
Kolmunni
75 75 0
Annað
8 8 0
Botnfiskur
546 523 -4,0
Annar afli
1.230 1.480 17,8
Samtals
1.776 2.003 1,5

    Afli af fjarmiðum varð nokkru meiri árið 1998 en árið áður og áætla má að útflutningsverðmæti þess afla hafi verið 8 milljarðar króna sem er 1 milljarði meira en árið 1997. Gert er ráð fyrir að samanlagt útflutningsverðmæti afla af fjarmiðum á árinu 1999 verði um 8 milljarðar króna. Að teknu tilliti til allra þessara þátta gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að útflutningsframleiðsla sjávarafurða á árinu 1999 aukist um 2% frá árinu 1998.
    Sjávarútvegsráðuneytið hefur úthlutað veiðiheimildum fyrir nýhafið fiskveiðiár að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar. Í áætlunum sínum gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að afli kvótabundinna tegunda á Íslandsmiðum verði í samræmi við ákvarðanir sjávarútvegsráðuneytisins en þó að teknu tilliti til ónýttra aflaheimilda sem flytjast á milli ára. Varðandi veiðar sem ekki eru háðar kvóta er byggt á reynslu undanfarinna ára.
    Gert er ráð fyrir að þorskafli af Íslandsmiðum á nýbyrjuðu fiskveiðiári verði 260 þúsund tonn sem er hið sama og á síðasta fiskveiðiári. Reiknað er með að annar botnfiskafli dragist saman um 8,7%. Þá er gert ráð fyrir að annar afli aukist um 17,8%, þar af loðnu- og síldarafli um 30% en rækjuafli standi í stað.
    Að öllu samanlögðu gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að framleiðsla sjávarafurða á milli áranna 1999 og 2000 aukist um 2,5%. Þessi áætlun er þó með þeim fyrirvara að úthafskarfaveiðar verði óbreyttar frá því sem nú er en um það ríkir nokkur óvissa.

6. Vinnumarkaður.


6.1 Atvinnuþátttaka og atvinna.
    Árið 1999 hefur einkennst af mikilli eftirspurn eftir vinnuafli og hefur atvinnuþátttakan ekki verið meiri síðan 1990.
    Niðurstöður úr atvinnukönnunum Hagstofu Íslands og Þjóðhagsstofnunar sýna vaxandi eftirspurn eftir vinnuafli. Hagstofa Íslands skilgreinir atvinnuþátttöku þannig að sá sem vinnur meira en eina klukkustund í viðmiðunarvikunni telst þátttakandi, sem og þeir sem eru án atvinnu en eru virkir í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka miðast við aldursbilið 16–74 ára. Samkvæmt þessari könnun var atvinnuþátttakan 82,3% á árinu 1998 og hafði aukist um 1,3 prósentustig frá fyrra ári. Í síðustu könnunum Hagstofunnar hefur atvinnuþátttakan mælst með mesta móti.
    Atvinnukannanir Þjóðhagsstofnunar byggjast á mati á fjölda ársverka samkvæmt launamiðum og upplýsingum launagreiðenda og ná til aldurshópsins 15–65 ára. Samkvæmt könnuninni fjölgaði ársverkum um 3.900 á milli áranna 1997 og 1998 eða um 3,2%.. Mat á atvinnuþátttöku fæst með því að bæta fjölda atvinnulausra við fjölda ársverka. Samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofnunar var atvinnuþátttakan 77,1% árið 1998 og hafði þá vaxið um 1,4 prósentustig frá árinu 1995.
    Atvinnukannanir Þjóðhagsstofnunar á þessu ári hafa gefið til kynna meiri vilja atvinnurekenda til að fjölga starfsfólki en sambærilegar kannanir í fyrra. Þessar kannanir sýna þó mikið misvægi eftir landshlutum, þar sem viljinn til að bæta við starfsfólki er eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Á árunum 1997 og 1998 vildu atvinnurekendur bæði á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu fjölga starfsfólki. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að störfum fjölgi um 3.900 ársverk eða sem nemur 3,0% af vinnuafli á árinu 1999 og að atvinnuþátttaka verði meiri en á árinu 1998, eða um 77½%. Á árinu 2000 er áætlað að atvinnuþátttakan verði svipuð og á þessu ári, sem þýðir fjölgun um 1.100 ársverk.
     Framboð á íslenskum vinnumarkaði hefur aukist vegna fjölgunar fólks á vinnualdri og vegna þess að hærra hlutfall þessa fólks er nú á vinnumarkaði. Aukið framboð má einnig rekja til fleiri erlendra starfsmanna. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru gefin út 777 ný tímabundin atvinnuleyfi á sjö fyrstu mánuðum ársins samanborið við 673 á sama tímabili síðasta árs. Hingað til hafa einkum fiskvinnsla, málmsmíði, hótel og heilbrigðisstofnanir leyst skort á vinnuafli með því að ráða fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins. Nú eru vísbendingar um að fleiri greinar leiti eftir vinnuafli út fyrir svæðið til að leysa úr bráðri vinnuaflsþörf. Áætlað er að íbúum landsins fjölgi um 1.700 vegna millilandaflutninga á þessu ári og að vinnuframboð aukist fyrir vikið um 1.000 manns.
    Í samanburði við lönd innan OECD er atvinnuþátttakan mikil á Íslandi. Einungis í Danmörku, Noregi og Sviss er atvinnuþátttakan meiri en þar var hún í kringum 80% á árinu 1998. Að meðaltali var atvinnuþátttakan 67% í löndum ESB og um 77% í Bandaríkjunum.

6.2 Atvinnuleysi.
    Atvinnuleysi hefur minnkað hratt að undanförnu. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi verði að meðaltali 2% á þessu ári. Hefur það lækkað um 3 prósentustig frá árinu 1995 er það náði hámarki og hefur ekki verið minna síðan árið 1991.
     Á síðasta ári voru 3.788 manns atvinnulausir að meðaltali allt árið en það samsvaraði 2,8% af fólki á vinnumarkaði. Þetta er töluverð fækkun frá árinu 1997 þegar atvinnuleysi mældist 3,9%. Atvinnuleysi hefur minnkað frekar á þessu ári. Ef bornir eru saman fyrstu sjö mánuðir áranna 1998 og 1999, þá hefur atvinnuleysi að meðaltali minnkað úr 3,2% í 2,1%.
    Það sem af er árinu 1999 hefur atvinnulausum fækkað í öllum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu var 2,3% mannaflans án atvinnu á fyrstu sjö mánuðum ársins 1999, eða 1.926 manns, samanborið við 3,1% á sama tímabili í fyrra. Á landsbyggðinni dró einnig úr atvinnuleysi á fyrstu sjö mánuðum ársins, en þó ekki eins mikið. Mældist atvinnuleysi 1,8%, eða rúmlega 1.000 manns, samanborið við 2,4% af mannaflanum á sama tímabili í fyrra. Hlutfallslega mest dró úr atvinnuleysi á Vesturlandi eða um 41%, en minnst á Vestfjörðum eða um 1% enda var atvinnuleysi lægst í þeim landshluta á síðasta ári.
    Fyrstu sjö mánuði ársins voru að meðaltali 1,4% karla og 3,0% kvenna á vinnumarkaði án atvinnu. Á sama tímabili í fyrra var atvinnuleysi 1,8% meðal karla og 4,1% meðal kvenna. Atvinnuleysi hefur minnkað í öllum aldurshópum en þó mest meðal ungs fólks. Í aldurshópnum 16–24 ára var atvinnuleysið um 6% á árinu 1998, en var komið niður í 3,9% í aprílkönnun Hagstofunnar.
    Oft er erfitt fyrir þá sem verið hafa lengi atvinnulausir að fá vinnu aftur. Á atvinnuleysistímum er hætt við að hlutfall þeirra sem verið hafa án atvinnu lengi fari vaxandi. Árið 1990 höfðu 20% atvinnulausra verið án vinnu í sex mánuði eða lengur. Frá þeim tíma jókst þetta hlutfall til ársins 1997 og var þá komið í 27% en lækkaði í 22,9% í fyrra. Í samanburði við önnur lönd innan OECD er þetta hlutfall lágt, einungis Noregur er með lægra hlutfall meðal evrópskra aðildarríkja. Ætla má að það sé vísbending um að atvinnuleysið hafi ekki náð að skjóta eins föstum rótum hér á landi og það hefur gert í öðrum þróuðum ríkjum. Á árinu 1998 var atvinnuleysi hvergi minna en hér á landi meðal OECD ríkjanna. Að meðaltali nam atvinnuleysið 9,7% á meðal aðildarríkja OECD í Evrópu og áætlað er að það minnki í 9,5% á þessu ári.
    Atvinnuhorfur virðast vera nokkuð bjartar það sem eftir er þessa árs og á næsta ári. Ljóst er að mörgum stórum verkefnum er nú lokið eða er að ljúka, en ný verkefni eru hafin eða eru að hefjast. Í því sambandi má nefna fyrirhugaða stækkun Norðuráls og áætlanir um nýtt verslunarhúsnæði. Almenn spurn eftir vinnuafli verður áfram mikil á næsta ári.
    Þjóðhagsstofnun spáir að atvinnuleysi verði að meðaltali 2% í ár og verði svipað á næsta ári. Spá OECD fyrir árin 1999 og 2000 gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði hvergi lægra í aðildarríkjunum. Fyrir OECD í heild er spáð 7,0% atvinnuleysi á árunum 1999 og 2000.

6.3 Byggðaþróun.

    Byggðaþróun í landinu einkennist nú af því að til landsins flytur fleira fólk en frá því og straumur fólks af landsbyggðinni heldur áfram. Staða landshlutanna í atvinnumálum er mismunandi. Sums staðar eru áform um nýja starfsemi og framkvæmdir en annars staðar er stöðnun.


Búferlaflutningar milli landa.
    Á fyrri hluta ársins 1999 fluttu fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því. Þetta hefur ekki gerst síðan 1992 en brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta eru tæplega fjögur þúsund á þessum áratug. Brottfluttum Íslendingum heldur áfram að fækka en aðfluttum fjölgar. Framhald er á aukningu á fjölda aðfluttra erlendra ríkisborgara til landsins en fjöldi brottfluttra helst nokkurn veginn stöðugur. Ef svo heldur sem horfir má ætla að á þriðja þúsund manns með erlent ríkisfang flytji til landsins í ár. Áætlað er að fjölgun íbúa landsins vegna millilandaflutninga nemi um 1.700 manns.

Mynd 14. Búferlaflutningar milli landa 1989–99.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.


Búferlaflutningar innan lands.
    Búferlaflutningar innan lands það sem af er árinu 1999 benda til að þeir séu mjög í sama fari og fyrri ár og að brottfluttir umfram aðflutta af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins verði álíka margir og árið 1998. Þó hafa orðið nokkrar breytingar á flutningum milli svæða. Viðsnúningur er á Suðurlandi frá brottflutningi í að flutningar innan lands eru nokkurn veginn í jafnvægi. Brottflutningur innan lands hefur aukist mest á Norðurlandi eystra og það stefnir í að fækkun vegna innan landsflutninga á Vestfjörðum og Austurlandi verði meiri en árið 1998 eða um 3% af íbúafjölda. Mismunur brottfluttra og aðfluttra stefnir í 2,8% af íbúafjölda Norðurlands vestra og 2,1% af íbúafjölda austurkjördæmisins. Annars staðar er hann minni. Allir landshlutar bæta við íbúafjölda með aðflutningi fólks frá útlöndum. Á landsbyggðinni er þar mest um erlent fiskverkafólk og flóttamenn að ræða.

Mynd 15. Búferlaflutningar á fyrra


árshelmingi 1999, eftir landssvæðum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.


Íbúaþróun á höfuðborgarsvæðinu.
    Íbúum á höfuðborgarsvæðinu mun að öllum líkindum fjölga meira á yfirstandandi ári en nokkru sinni. Hlutfallslegur vöxtur mannfjölda gæti orðið meiri en hann hefur orðið í áratug. Náttúruleg fjölgun á svæðinu er áætluð rétt tæplega 1%. Mismunur aðfluttra og brottfluttra í innan landsflutningum er áætlaður um 1.750 manns eða rétt rúmlega 1% viðbót við mannfjölda. Því til viðbótar er nú áætlað að til svæðisins flytjist frá útlöndum rúmlega 1.100 fleiri en þeir sem fara utan. Það er viðbót um 0,7%. Að samanlögðu má því reikna með að fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu í ár verði allt að 4.500 manns eða 2,7%. Svo mikill hlutfallslegur vöxtur hefur ekki átt sér stað síðan 1988 en þá var mikill aðflutningur fólks frá útlöndum. Sú fjölgun leiddi af sér spurn eftir 1.700–1.800 íbúðum og fjölgun á vinnumarkaði sem nam um 2.300 ársverkum. Þetta er mikil breyting frá því sem var fyrir 2 árum. Á árunum 1993 til 1997 drógu millilandaflutningar úr fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu en árið 1998 snerist dæmið við.

Staða atvinnuþróunar á landsbyggðinni.
    Þróun og staða einstakra landshluta er mjög mismunandi. Þannig er uppgangur og aukning starfa á flestum stöðum á Vesturlandi, sérstaklega á Akranessvæði og í Grundarfirði. Hið sama á við um vesturhluta Suðurlandsundirlendisins og Suðurnes. Bæði þessi svæði njóta nálægðarinnar við höfuðborgarsvæðið og á Vesturlandi eru að koma fram áhrif samgöngubótarinnar sem Hvalfjarðargöngin eru og stóriðjunnar á Grundartanga. Í mörgum héruðum hafa ekki orðið umtalsverðar úrbætur í atvinnumálum. Víða eru hins vegar uppi áform um ný fyrirtæki og framkvæmdir. Nefna má orkuframkvæmdir og stóriðju á Austurlandi, raforkuframkvæmdir og fjárfestingar í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og áform um nýtingu háhita í S-Þingeyjarsýslu, á Suðurlandi og Suðurnesjum. Í Eyjafirði eru byggingaráform fyrir iðnað, þjónustu, verslanir og skrifstofur. Í Skagafirði standa fyrir dyrum fjárfestingar í ferðaþjónustu, iðnaði og fiskeldi sem gætu skapað um 40 störf, öll í útflutningsframleiðslu.
    Alls staðar á landsbyggðinni hafa átt sér stað miklar skipulagsbreytingar í atvinnulífinu sem sums staðar hafa leitt til fækkunar starfa. Á Vestfjörðum hafa nær 300 störf í fiskvinnslu verið lögð niður en 50–60 komið í staðinn, auk um 70 nýrra starfa í upplýsingaiðnaði. Þar hefur einnig átt sé stað endurskipulagning í þjónustugreinum. Fækkun starfa í fiskvinnslu á sér stað víðar. Nokkuð er um nýjungar í atvinnulífinu sem hafa leitt til fjölgunar starfa svo sem í upplýsingaiðnaði og ferðaþjónustu en einnig í iðnaði. Víðast er skortur á vinnuafli, einkum fólki með menntun og þjálfun. Atvinnuleysi hefur minnkað og allmargir á atvinnuleysisskrá eru í hlutastörfum. Sums staðar hafa fyrirtæki lagt í þjálfunarverkefni til að bjóða því fólki vinnu sem erfiðast hefur átt með að fá atvinnu í kjölfar skipulagsbreytinga. Ástandið er verst í þeim sveitabyggðum sem háðastar eru sauðfjárrækt og liggja langt frá öðrum atvinnumöguleikum.

7. Verðlag.


    Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,9%. Er þetta mesta 12 mánaða hækkun vísitölunnar í nærri 6 ár. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir því að vísitalan hækki um 5% innan þessa árs. Til samanburðar hækkaði vísitala neysluverðs um einungis 1,3% á árinu 1998. Þrátt fyrir að hækkun verðlags sé nokkuð meiri en spár höfðu gert ráð fyrir kemur þessi þróun ekki á óvart. Ýmis teikn hafa verið á lofti um nokkurt skeið sem bent hafa til aukinnar verðbólguhættu. Eftirspurn hefur vaxið mun hraðar en afkastageta þjóðarbúsins þrátt fyrir mikinn framleiðnivöxt og betri nýtingu framleiðsluþáttanna, vinnuafls og fastafjármuna. Vexti eftirspurnar hefur að nokkru leyti verið mætt með auknum innflutningi. Þetta hefur dregið úr þrýstingi á verðlag innan lands en jafnframt leitt til mikils viðskiptahalla. Engu að síður var á árinu 1998 farið að gæta verðhækkana á innlendum liðum neysluverðsvísitölunnar en þá hækkuðu þeir um 3,5%. Hagstæð þróun innflutningsverðlags hélt þá aftur af verðlagshækkunum en á árinu 1998 lækkaði verðlag erlendra vara um 3,2%. Hafði sú lækkun bein áhrif til um 1% lækkunar neysluverðsvísitölunnar. Með áframhaldandi vexti eftirspurnar var ljóst að þrýstingur á verðlag innlendra liða neysluverðsvísitölunnar mundi aukast enn frekar og ekki mætti mikið út af bera til þess að verðstöðugleika yrði ógnað.
    Verðhækkun á húsnæði vegur þungt í hækkun neysluverðsvísitölunnar síðastliðna tólf mánuði en húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað ört vegna mikillar eftirspurnar. Húsnæðisliður vísitölunnar hefur hækkað um 12,8% á tímabilinu sem veldur 1,5% hækkun neysluverðs. Verð á innlendum vörum hefur hækkað um 4,3% og verð innlendrar þjónustu svipað eða um 4,4%. Bensínverð hefur hins vegar hækkað um 17,3%, sem veldur 0,7% hækkun vísitölunnar. Einnig hafa innfluttar matvörur hækkað töluvert í verði eða um 6,6%. Verð annarra innfluttra vara en bensíns og matvara hefur hins vegar hækkað lítið sem skýrist m.a. af stöðugu gengi krónunnar og lítilli verðbólgu í viðskiptalöndum okkar. Því er meðaltalshækkun allra innfluttra neysluvara síðastliðna tólf mánuði töluvert minni en hækkun innlendra liða vísitölunnar eða 3,1%.

Mynd 16. Breytingar á vísitölu neysluverðs 1990–99.


    Þjóðhagsstofnun spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 3,2% á milli áranna 1998 og 1999 og 5% frá upphafi til loka árs 1999. Þá er gert ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 2½% frá upphafi til loka ársins 2000, en það felur í sér um 4% hækkun milli áranna 1999 og 200

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


0. Spáin gerir ráð fyrir stöðugu gengi og um 1½% verðbólgu í helstu viðskiptalöndum. Reiknað er með nokkuð minni framleiðnivexti á milli ára en undanfarin ár eða 1½% sem er svipaður framleiðnivöxtur og OECD gerir ráð fyrir í aðildarríkjunum. Í launaforsendu spárinnar er reiknað með lítið eitt minni kaupmáttaraukningu en í ríkjum OECD enda hefur kaupmáttur vaxið mjög ört hér á landi undanfarin ár. Kjarasamningar renna út á næsta ári og veldur það nokkurri óvissu um launa- og verðlagsþróun.
    Spá Þjóðhagsstofnunar er í takt við spár annarra sérfræðinga en þær gera ráð fyrir 4,7–5,1% verðbólgu frá upphafi til loka árs 1999. Væntingar um aukna verðbólgu koma einnig fram í hækkun verðbólguálags á óverðtryggð ríkisbréf eins og kemur fram í kaflanum um fjármagnsmarkaði, en það er nú um 4½ prósentustig sé miðað við 5 ára ríkisskuldabréf samanborið við 2,7 prósentustig um sl. áramót.

8. Heimilin.


8.1 Kjaramál og launaþróun.
    Á útmánuðum 1997 voru gerðir kjarasamningar til þriggja ára. Samningar á hinum almenna vinnumarkaði eru í gildi til 15. febrúar næstkomandi en flestir samningar opinberra starfsmanna renna út í lok október árið 2000. Óvissa um niðurstöðu samninganna setur nokkurt mark á launa- og verðbólguspá þjóðhagsáætlunar fyrir árið 2000.
    Kaupmáttarþróun á samningstímabilinu hefur verið hagstæð og miðað við launavísitölu hefur kaupmáttur launa hækkað um rúm 15% til júlí 1999. Eina samningsbundna almenna launahækkunin á þessu ári varð í upphafi ársins ýmist 3,5% eða 3,65%. Kjarasamningar Sambands íslenskra bankamanna áttu að renna út þann 1. september sl., en samningar tókust í júní um framlengingu þeirra til loka ársins 2000. Samningurinn fól í sér 0,3% hækkun við undirskrift og 80 þúsund króna eingreiðslu og þá kveður samningurinn á um 3,5% hækkun þann 1. janúar nk. Þá felldi Kjaradómur úrskurð um laun í maí og kjaranefnd hefur fellt ýmsa úrskurði á árinu, en undir Kjaradóm og kjaranefnd heyra allt að 1.000 opinberir starfsmenn. Nokkrir aðlögunarsamningar hjá hinu opinbera voru og gerðir á fyrri hluta ársins, en aðeins örfáir samningar eru enn ófrágengnir.
    Á þessu ári er útlit fyrir að launavísitalan hækki um tæp 7%. Nokkuð hefur dregið úr hækkunum hennar á undanförnum mánuðum og hefur hún mælt 0,1% hækkun milli mánaða sem er ívið minna en áður var reiknað með. Miðað við að verðbólgan verði 3,2% eins og hér er spáð felur hækkun launavísitölu í sér að kaupmáttur launa hækki u.þ.b. 3½% frá 1998 til 1999.
    Gagngerar breytingar hafa verið gerðar á launakönnun Kjararannsóknarnefndar og vegna viðamikils undirbúnings þessara breytinga varð hlé á útgáfustarfsemi nefndarinnar um nokkurt skeið. Nú hefur nefndin gefið út upplýsingar um laun og launaþróun á almenna vinnumarkaðnum fyrir 4. ársfjórðung 1998 og 1. ársfjórðung 1999. Niðurstöður Kjararannsóknarnefndar sýna meiri hækkanir en launavísitala Hagstofunnar fyrir almenna markaðinn sem nemur 1 prósentustigi. Gefur þetta til kynna að launavísitalan feli í sér vanmat á launahækkunum á almenna markaðnum, en úrtak Hagstofu er mun minna en það sem Kjararannsóknarnefnd notar.
    Eins og fyrr segir verða kjarasamningar lausir á næsta ári og skapar það óvissu um kjaraþróun. Örðugt er að spá fyrir um niðurstöður kjarasamninga. Spá um launa- og kaupmáttarþróun á næsta ári verður því byggð á forsendu sem tekur mið af framreikningi OECD um launa- og kaupmáttarþróun á almennum markaði í helstu viðskiptalöndum okkar sem sýnd er í eftirfarandi töflu.
    Niðurstaðan er sú að launahækkanir í viðskiptalöndunum verði 3,5% að meðaltali frá 1999 til 2000. Nokkur munur er á einstökum löndum og ræður þar miklu að í þeim löndum þar sem góður gangur hefur verið í efnahagslífinu, svo sem í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum, er gert ráð fyrir launahækkunum umfram meðaltal eða á bilinu 4,2–5,3%. Kaupmáttur launa í viðskiptalöndunum mun samkvæmt þessu yfirliti aukast um 1,7% að meðaltali. Með vísan til þessa og þekktra breytinga á næsta ári er því miðað við 5% launahækkun milli 1999 og 2000.

Áætlaðar launa- og verðlagsbreytingar í viðskiptalöndunum 1999–2000, %.

Gengisvog Launabreyting Verðbólga Kaupmáttur
Bandaríkin
24,1 4,2 1,8 2,4
Bretland
13,4 4,3 2,4 1,9
Frakkland
4,6 2,3 1,1 1,2
Kanada
1,4 2,9 2 0,9
Ítalía
2,1 2,5 1,5 1,0
Japan
5,4 -0,9 -0,6 -0,3
Þýskaland
13,8 2,4 1,2 1,2
Danmörk
9,2 5,3 2,6 2,6
Finnland
1,2 3,5 1,5 2,0
Noregur
8,3 4,3 2,3 2,0
Svíþjóð
3,9 3,7 1 2,7
Belgía
1,5 2,6 1,4 1,2
Sviss
2,4 1,8 0,8 1,0
Holland
4,5 3,3 2 1,3
Portúgal
1,4 4 2,3 1,7
Spánn
3,0 2,5 2,2 0,3
Meðaltal viðskiptalanda
100,0 3,5 1,7 1,7
Heimild: OECD Economic Outlook, júní 1999.

    Hafa verður í huga að laun hafa hækkað til muna meiri hér á landi en í viðskiptalöndunum á undanförnum árum, eða um 23½% árin 1997–99 samanborið við 11,3% ytra. Kaupmáttur hefur á þessum árum aukist um 15,7% hér á landi en um rúm 6% í viðskiptalöndunum. Að baki þessari hagstæðu þróun hefur legið veruleg framleiðniaukning á Íslandi umfram það sem orðið hefur í viðskiptalöndunum. Þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir að framleiðni aukist svipað og í viðskiptalöndunum á næsta ári eða 1½% og svigrúm til launahækkanna verður því minna en ella.

8.2 Ráðstöfunartekjur.
    Tölur um staðgreiðsluskyldar tekjur, þ.e. launatekjur, reiknuð laun, bætur almannatrygginga, lífeyrir m.m., fyrstu sjö mánuði ársins sýna hækkun um rúmlega 10% frá sama tímabili í fyrra. Vísbendingar eru um að launatekjurnar hafi hækkað ívið meira eða um allt að 11%. Við samanburð launatekna og launavísitölu verður að hafa í huga að launavísitölunni er ætlað að sýna þróun dagvinnulauna meðallaunþega en launatekjurnar taka til allra launa og allra launþega. Breytingar launateknanna fela þannig í sér hækkun dagvinnulauna, breytingar á yfirvinnu og fjölgun launþega. Í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir að ársverkum (ígildi fulls starfs) fjölgi um 3% frá 1998 til 1999. Þá er einnig ástæða til að ætla að vinnutími hafi lengst hjá mörgum stéttum. Greiðslur Tryggingastofnunar vegna lífeyris og bóta eru um 7½% hærri á fyrstu sjö mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.
    Tekjuskattshlutfall var lækkað um 1 prósentustig eða úr 27,41% í 26,41% í upphafi ársins. Á hinn bóginn hækkaði meðalútsvar í staðgreiðslu um 0,32% af tekjum, þannig að staðgreiðsluhlutfall er 38,34% sem er lækkun um 0,68 prósentustig. Persónuafsláttur var lækkaður lítillega, en skattleysismörkin hækkuðu í 60.848 kr. á mánuði, sem er hækkun um 1,6%. Hafa ber í huga að iðgjald til lífeyrissjóðs er nú að fullu frádráttarbært frá tekjum til skatts og þá er 2% iðgjald af viðbótarlífeyrissparnaði frádráttarbært hjá þeim sem spara með þeim hætti. Tekjur ríkissjóðs af tekjusköttum einstaklinga hafa aukist umtalsvert á þessu ári því mikil tekjuhækkun hefur vegið upp lækkun skatthlutfallsins. Þar sem persónuafsláttur hækkar minna en tekjurnar þyngist skattbyrði beinna skatta nokkuð á þessu ári.
    Að öllu samanlögðu er hér reiknað með að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hækki um tæplega 5% á þessu ári. Í fyrri spá var gert ráð fyrir að kaupmáttur hækkaði ívið meira, eða um 5½%, en endurskoðun spárinnar stafar af meiri verðbólgu og af þyngri skattbyrði en reiknað var með. Mikil óvissa er um framvindunina yfir á næsta ár. Miðað við 5% hækkun launa, 1% fjölgun starfa og um 4% verðbólgu má gera ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hækki um 1–1½% á næsta ári.

8.3 Einkaneysla og sparnaður.
    Margt bendir til þess að einkaneysla landsmanna aukist verulega á yfirstandandi ári. Áætluð aukning kaupmáttar ráðstöfunartekna milli áranna 1998 og 1999 er tæplega 6% í heild og óbreyttur eða minnkandi sparnaður heimila bendir til þess að einkaneyslan aukist í takt við þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna eða nokkuð umfram hana. Þannig sýna tölur um veltu fyrstu sex mánuði ársins 6% magnaukningu í atvinnugreinum sem tengjast einkaneyslu svo sem verslun, þjónustu og samgöngum. Í öðru lagi má nefna aukningu innflutnings á neysluvörum á tímabilinu frá janúar til júlí 1999 miðað við sama tíma 1998, sem í heild nam 12% á föstu verðlagi. Innflutningur á mat- og drykkjarvörum til heimilisnota jókst um 5½% og innflutningur nokkurra annarra neysluvara svo sem heimilistækja, fatnaðar, lyfja, áfengis og tóbaks jókst um 7½% að magni frá fyrra ári. Einnig má benda á 27% aukningu innflutnings fólksbifreiða fyrstu sjö mánuði ársins 1999.
    Ferðalög landsmanna hafa aukist mjög á árinu en meðaleyðsla í hverri ferð virðist lækka með fjölgun ferða enda fara margir fleiri en eina ferð árlega. Samkvæmt greiðslujafnaðartölum á fyrra árshelmingi 1999 jukust útgjöld Íslendinga í útlöndum um 10½% miðað við sama tímabil 1998. Miðað við þær tölur og spár fyrir seinni árshelming 1999 stefnir í að útgjöldin verði í ár tæplega 12% hærri en í fyrra.
    Aukning á kreditkortanotkun heimila fyrstu sjö mánuði ársins er veruleg sem gefur vísbendingu um aukna neyslu. Heildarveltan jókst um 19% á föstu verði 1999, þar af 17% innan lands. Færslufjöldinn jókst heldur minna þannig að meðalúttekt hækkar nokkuð. Debetkortanotkun jókst enn meira eða um rúmlega 20% en þar gætir enn áhrifa kerfisbreytingar frá tékkanotkun sem minnkaði um 3% á sama tíma. Debetkort voru í maílok 251.800 og hefur fjölgað um 14,2% frá sama tíma í fyrra en um 3,5% frá áramótum. Á síðasta ári fjölgaði kreditkortum um 2,4% og voru í lok síðasta árs 167.048 talsins. Í lok apríl var fjöldi kreditkorta 166.728 og hafði þannig fækkað nokkuð frá áramótum.
    Að öllu samanlögðu er nú áætlað að einkaneyslan muni aukast um 6% milli áranna 1998 og 1999. Meðfylgjandi tafla sýnir hlutfallslega skiptingu einkaneyslunnar á síðasta ári samanborið við árið 1990 ásamt magnbreytingu einstakra liða árin 1994–1999.

Mynd 17. Þróun helstu liða í einkaneyslu 1980–99.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Vísitölur, 1990 = 100.


    Eins og undanfarin ár eru það einkum kaup á varanlegum neysluvörum sem bera uppi aukningu einkaneyslunnar. Kaup á þessum vörum eru talin aukast um 15% á árinu og vega þar kaup á einkabifreiðum hvað þyngst. Mikil aukning er einnig í útgjöldum vegna kaupa á húsgögnum, heimilistækjum, ferðalögum, menntun og afþreyingu. Á undanförnum árum hefur vægi þessara þátta sömuleiðis farið vaxandi á sama tíma og vægi matvæla, drykkjarvara, fatnaðar og húsnæðiskostnaðar hefur farið hlutfallslega lækkandi.
    Á næsta ári er því spáð að einkaneyslan aukist töluvert minna en í ár eða um 2,5% m.a. vegna þess að talið er að kaupmáttaraukning verði töluvert minni og þess vænst að neyslulán til heimila aukist minna en árið 1999. Þá er talið að gæta muni mettunaráhrifa í kaupum á varanlegum neysluvörum svo sem heimilistækjum og einkafarartækjum. Kaup á þessum vörum hafa aukist mjög frá árinu 1994 þegar núverandi hagvaxtartímabil hófst.
    Ekki eru vísbendingar um að sparnaður heimilanna hafi aukist í fyrra og ekki heldur horfur á að hann aukist á þessu ári. Aðgengi heimilanna að lánsfé hefur batnað mjög á undanförnum árum og skuldir heimilanna hafa vaxið í kjölfarið. Þannig námu skuldir heimilanna 443 milljörðum króna í árslok 1998, sem er hækkun um 57 milljarða frá árinu áður, eða um 15%. Bráðabirgðatölur um skuldastöðu heimilanna við innlánsstofnanir á fyrri árshelmingi 1999 sýnir 30% aukningu umfram verðbólgu miðað við sama tímabil í fyrra. Skuldaaukningin er einkum í skuldum öðrum en húsnæðisskuldum, en þó hafa íbúðalán aukist mjög mikið samfara aukinni eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði og miklum verðhækkunum á húsnæðismarkaðinum. Skuldir heimilanna jukust lítillega sem hlutfall af ráðstöfunartekjum milli áranna 1997 og 1998, en útlit er því fyrir því að þetta hlutfall hækki nokkuð á þessu ári.

Einkaneysla 1990–99.

Hlutfallsleg skipting, % Magnbreyting frá fyrra ári, %
Bráðab. Áætl.
1990 1998 1994 1995 1996 1997 1998 1999
Matur, drykkjarvara og tóbak
25,5 20,9 -0,3 1,7 3,4 1,5 6,1 4,4
Fatnaður
7,8 7,0 7,6 5,0 4,0 4,0 10,4 4,0
Húsnæði, ljós og hiti
17,6 14,5 1,5 1,5 2,0 1,1 1,0 1,0
Húsgögn, húsbúnaður, heimilishald og
heimilistæki
7,9 8,5 7,1 5,1 8,2 7,6 17,2 4,1
Lyf og læknishjálp
1,7 2,0 4,1 3,0 4,0 1,8 5,2 3,3
Flutningatæki og samgöngur
13,8 18,1 -1,4 13,3 13,9 14,6 16,9 13,6
Tómstundaiðja, skemmtanir, menntun
og menningarmál
10,3 11,9 4,9 5,2 6,0 8,3 15,6 6,2
Ýmsar vörur og þjónusta
11,8 13,4 5,5 7,7 5,3 7,9 13,1 5,4
Einkaneysla innan lands alls
96,5 96,3 2,4 4,9 5,6 5,7 10,2 5,7
Útgjöld Íslendinga erlendis
7,5 7,8 -3,1 -0,8 10,5 9,8 21,0 10,6
Útgjöld útlendinga á Íslandi
3,9 4,0 6,7 11,3 -4,8 3,2 16,8 5,4
Einkaneysla alls
100,0 100,0 1,9 4,2 6,4 6,0 11,0 6,0
Þar af:
    Óvaranlegar neysluvörur
40,4 35,7 -0,7 3,1 3,9 3,1 6,6 4,4
    Hálfvaranlegar neysluvörur
13,6 13,0 6,3 5,5 4,1 5,2 12,2 5,3
    Varanlegar neysluvörur
10,6 15,2 5,7 12,3 21,1 17,1 25,9 15,1
    Þjónusta
35,4 36,1 3,5 4,6 3,6 5,0 7,7 3,3

    Áætlanir Seðlabanka um fjáreignir benda til að fjáreignir heimila hafi vaxið umfram skuldir undanfarin tvö ár eftir margra ára aukningu skulda umfram eignir árin þar á undan. Þessar áætlanir gefa til kynna að hreinn sparnaður heimilanna, þ.m.t. lífeyrissjóðir, gæti hafa numið 5–6% af landsframleiðslu árið 1998, en 1–1½% árin 1993 og 1994.

8.4 Húsnæðismarkaður.
    Í fyrra var reiknað með að íbúðabyggingar myndu aukast um 5% á árunum 1998 og 1999. Nýjar upplýsingar benda til að vaxandi umsvif í íbúðabyggingum séu seinna á ferðinni en upphaflega var reiknað með. Þannig varð engin aukning í nýbyggingum á íbúðarhúsnæði á árinu 1998 en gert er ráð fyrir að fjárfesting í íbúðarhúsnæði muni aukast um 8% í ár og aftur um 5% á því næsta. Þessa töf má vafalítið rekja til mikilla fjárfestinga á öðrum sviðum og skorts á iðnaðarmönnum.
    Kaupmáttaraukning undanfarinna ára og litlar nýbyggingar hafa leitt til vaxandi viðskipta með eldra húsnæði. Upplýsingar um verðþróun undanfarna mánuði gefa til kynna verulega umframeftirspurn eftir íbúðarhúsnæði og þá sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Þannig eru raunverðshækkanir á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu töluvert umfram almennar verðhækkanir. Á hinn bóginn má ætla að verð íbúðarhúsnæðis hafi lækkað eða staðið í stað utan höfuðborgarsvæðisins.

Mynd 18. Raunverð íbúðarhúsnæðis


á höfuðborgarsvæðinu, 1990–99.


Vísitala 1990=100.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



9. Hið opinbera.


    Allt bendir til þess að afkoma hins opinbera haldi áfram að batna í ár og á því næsta. Áætlaður tekjuafgangur ársins 1999 nemur um 8 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar. Árið 1998 varð tekjuafgangur af búskap hins opinbera sem nam 5½ milljarði króna en það var í fyrsta skipti frá byrjun 9. áratugarins sem hið opinbera skilaði verulegum tekjuafgangi. Á árinu 2000 er gert ráð fyrir 10½ milljarðs króna tekjuafgangi.

Mynd 19. Tekjur, gjöld og skuldir


hins opinbera 1980–2000.


Hlutföll af landsframleiðslu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Uppgjör Þjóðhagsstofnunar á búskap hins opinbera fylgir þjóðhagsreikningastaðli Sameinuðu þjóðanna. Veigamesti munurinn á því uppgjöri og ríkisreikningi er að hagnaður af sölu eignarhluta ríkisins í félögum er ekki færður til tekna í uppgjöri þjóðhagsreikninga heldur færður á endurmatsreikning. Þá eru afskrifaðar skattakröfur vegna gjaldþrots ekki færðar til gjalda heldur á endurmatsreikning og að hluta til lækkunar tekna. Að síðustu má nefna að einungis eru færðar til gjalda þær viðbótar lífeyrissjóðsskuldbindingar sem tengjast launagreiðslum ársins.

9.1 Ríkisfjármál.
    Á fjárlögum þessa árs var þriðja árið í röð stefnt að tekjuafgangi á búskap A-hluta ríkissjóðs eða um 2½ milljarði króna á rekstrargrunni. Vegna meiri hagvaxtar og meiri launahækkana en ráð var fyrir gert við gerð fjárlaga stefnir nú í 5 milljarða króna hagstæðari afkomu. Tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar 10 milljörðum króna hærri en í fjárlögum ársins, sem skýrist einkum af meiri tekjuskatti einstaklinga og fyrirtækja og af meiri tekjum af veltusköttum, svo sem virðisaukaskatti og vörugjöldum. Á gjaldahlið er reiknað með að útgjöldin aukist um 5 milljarða króna umfram fjárlög meðal annars vegna aukinna launaútgjalda og rekstrar- og neyslutilfærslna.
    Í uppgjöri Þjóðhagsstofnunar á fjármálum ríkissjóðs sem eins og áður sagði fylgir þjóðhagsreikningastaðli Sameinuðu þjóðanna er áætlað að tekjuafkoma ríkissjóðs verði jákvæð um 10½ milljarð króna á árinu 1999 eða 1,6% af landsframleiðslu. Þetta er nokkuð hagstæðari niðurstaða en árið á undan er tekjuafkoman nam rúmum 9 milljörðum króna. Þá er reiknað með að tekjur ríkissjóðs mælist 28,6% af landsframleiðslu sem er um 0,2 prósentustigum lægra hlutfall en árið á undan og útgjöldin um 27,0%, sem er 0,3 prósentustigum lægra hlutfall en árið 1998.

Mynd 20. Afkoma ríkissjóðs 1980–2000.


Hlutfall af landsframleiðslu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Með hliðsjón af fjárlögum ársins 2000 er gert ráð fyrir að tekjuafkoma ríkissjóðs verði nokkuð betri á næsta ári eða rúmlega 12½ milljarður króna á árinu samkvæmt uppgjörsstaðli Þjóðhagsstofnunar. Þá er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs lækki um ½ prósentustig af landsframleiðslu og útgjöldin um 0,8 prósentustig.

9.2 Fjármál sveitarfélaga.
    Í áætlunum um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að tekjuhalli þeirra verði nokkru minni í ár en í fyrra eða ríflega 2½ milljarður króna sem er um 4½% af tekjum þeirra. Til samanburðar er áætlaður tekjuhalli ársins 1998 um 3,8 milljarðar króna eða 7% af heildartekjum. Talið er að heildartekjur sveitarfélaga nemi um 60 milljörðum króna á þessu ári og heildarútgjöld þeirra ríflega 62 milljörðum króna eða 9,7% af landsframleiðslu.
    Samkvæmt lauslegum framreikningi má áætla að tekjuhalli sveitarfélaganna verði ríflega 2 milljarðar króna á næsta ári og að hlutfall tekna sveitarfélaga af landsframleiðslu mælist svipað og í ár en að útgjöld þeirra lækki lítillega á sama mælikvarða.

Fjármál sveitarfélaga 1997–2000.

Í milljörðum króna Hlutfall af landsframleiðslu, %
1997 1998 1999 2000 1997 1998 1999 2000
Heildartekjur
48,2 53,7 59,8 63,1 9,1 9,2 9,3 9,2
Heildarútgjöld
51,2 57,5 62,5 65,3 9,7 9,8 9,7 9,5
Tekjuafgangur
-3,0 -3,8 -2,7 -2,2 -0,6 -0,6 -0,4 -0,3

9.3 Fjármál hins opinbera.
    Áætlanir benda til að tekjuafkoma hins opinbera verði jákvæð um 8 milljarða króna á þessu ári eða sem nemur 1,2% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoma ársins 1998 5½ milljarður króna eða 0,9% af landsframleiðslu. Áætlaðar heildartekjur hins opinbera eru 239½ milljarður króna sem er um 6% hækkun að raungildi frá fyrra ári miðað við neysluverð. Áætluð heildarútgjöld eru 231½ milljarður króna sem er ríflega 5% raunaukning frá síðasta ári.
    Síðustu þrjú árin hafa útgjöld hins opinbera mælst svipuð á mælikvarða landsframleiðslunnar. Vegna verulegra launahækkana opinberra starfsmanna hefur hlutfall samneyslunnar af landsframleiðslu þó stigið nokkuð og mælist í ár 21½%. Vaxtaútgjöld hafa hins vegar lækkað verulega sem hlutfall af landsframleiðslu vegna lækkunar á skuldum hins opinbera. Rekstrartilfærslur og útgjöld til fjárfestinga hafa sömuleiðis farið lækkandi mælt á þennan kvarða en þó ekki í sama mæli.
    Með hliðsjón af fjárlögum og áætlunum um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að tekjuafkoma hins opinbera árið 2000 verði jákvæð um 10½ milljarð króna í tekju- og útgjaldauppgjöri þjóðhagsreikninga eða sem svarar til um 1½% af landsframleiðslu samanborið við 1,2% í ár. Reiknað er með að tekjur hins opinbera verði 251½ milljarður króna eða 36,7% af landsframleiðslu, sem felur í sér lækkun um 0,6 prósentustig frá árinu 1999. Einnig er gert ráð fyrir að útgjöld lækki sem hlutfall af landsframleiðslu og verði rúmlega 241 milljarður króna eða 35,1% af landsframleiðslu samanborið við 36,1% í ár. Þessi hlutfallslækkun skýrist fyrst og fremst af lítilli aukningu útgjalda annarra en samneyslu. Samneyslan eykst um 2½% að raungildi milli ára og verður svipað hlutfall af landsframleiðslu og árið 1999 eða 21½%. Útgjöld eins og vaxtaútgjöld og fjárfestingarútgjöld halda áfram að lækka sem hlutfall af landsframleiðslu.

Yfirlit um fjármál hins opinbera 1998–2000.
Milljarðar króna.

Brb.
1998
Áætlun
1999
Spá
2000
Hlutfall af VLF, %
1998 1999 2000
Heildartekjur
219,2 239,3 251,5 37,4 37,3 36,7
    1. Skatttekjur
206,8 226,7 239,4 35,2 35,4 34,9
    2. Aðrar tekjur
12,5 12,6 12,1 2,1 2,0 1,8
Heildarútgjöld
213,7 231,4 241,1 36,4 36,1 35,1
    1. Samneysla
124,1 137,6 147,7 21,2 21,5 21,5
        — þar af afskriftir
3,5 3,7 3,9 0,6 0,6 0,6
    2. Önnur útgjöld
93,0 97,6 97,3 15,8 15,2 14,2
Tekjuafgangur
5,5 7,9 10,4 0,9 1,2 1,5

    Áætlun fjárlaga um lánsfjárþörf nær til ríkissjóðs, lánasjóða hins opinbera og ríkisfyrirtækja. Samkvæmt þessum áætlunum var gert ráð fyrir að hrein lánsfjárþörf þessara aðila í ár yrði 2 milljarðar króna. Nú benda nýjar áætlanir til þess að lánsfjárþörf þessara aðila verði mun meiri en áformað var eða rúmlega 9 milljarðar króna. Mestu munar þar um aukna lánsfjárþörf opinbera húsnæðiskerfisins, sem fer um 13 milljörðum króna fram úr áætlun. Lánsfjárafgangur A-hluta ríkissjóðs er nú áætlaður 20½ milljarður króna eða 4 milljörðum króna meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Þá er áætlun um ríflega 7 milljarða króna lánsfjárþörf annarra opinberra aðila talin standast.
    Heildarskuldir hins opinbera, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, eru áætlaðar ríflega 275 milljarðar króna á árinu 1999 sem er 42,8% af landsframleiðslu. Þá er reiknað með að hreinar skuldir þess verði 172,4 milljarðar króna eða 26,9% af landsframleiðslu. Erlend lán eru tæplega helmingur heildarskulda hins opinbera.

Hrein lánsfjárþörf opinberra aðila 1998–2000.
Milljarðar króna.

Útkoma 1998 Áætlun 1999 Breyting frá fyrra ári Spá
2000
Hrein lánsfjárþörf, alls
5,3 9,1 3,8 3,4
    — Ríkissjóður A-hluti
-16,8 -20,5 -3,7 -23,9
    — Húsnæðiskerfið
15,0 22,4 7,4 18,6
    — Aðrir opinberir aðilar
7,1 7,2 0,1 8,7
Hrein lánsfjárþörf % af VLF
0,9 1,4 0,5 0,5



Viðauki.

Hagvöxtur á Íslandi í ljósi sögunnar.


    Á síðustu 100 árum hafa Íslendingar færst úr hópi fátækustu þjóða Evrópu í hóp ríkustu þjóða heims. Þegar spurt er um skýringar á þessari lífskjarabyltingu 20. aldar er komið við kviku íslenskrar nútímasögu.
    Miklu máli skiptir að á 19. öld naut Ísland góðs af vaxandi eftirspurn eftir fiski í Evrópu og nálægðinni við Bretland sem sóttist eftir matvælum og hráefnum frá vanþróaðri löndum og miðlaði til þeirra ódýrum varningi og nýjungum í atvinnuefnum. Íslendingar tóku að beina æ stærri hluta af framleiðslu sinni til útflutnings og við það efldist markaðsbúskapur í landinu. Flutningar fólks úr sveitum í bæi og breytt atvinnuskipting sem þeim fylgdi, aukin verkaskipting og sérhæfing starfa leiddu til hagkvæmari nýtingar á vinnuafli og fjármagni og örvuðu hagvöxt. Afnám vistarbands og önnur aðlögun samfélagsstofnana að markaðsbúskap verkuðu í sömu átt. Um aldamótin fóru Íslendingar að hagnýta sér fiskimiðin svo um munaði með því að taka upp nútímatækni í sjávarútvegi. Síðan þá hafa Íslendingar jafnan verið duglegir að tileinka sér nýja tækni sem hefur verið uppspretta mikils hagvaxtar á 20. öld. Skortur á fjármagni var þó athafnalífi lengi fjötur um fót en ríkisvaldið gegndi mikilvægu hlutverki bæði við útvegun fjármagns og mótun fjármálakerfisins. Þá varð það Íslendingum til happs að þeir nutu tiltölulega hagstæðra viðskiptakjara á 20. öld, ólíkt mörgum öðrum hráefnaframleiðendum. Loks má nefna að þjóðin var nokkuð vel menntuð á evrópskan mælikvarða og auðveldaði það henni að tileinka sér tækni og nýjungar úr atvinnulífi annarra landa. Allir þessir þættir áttu þátt í því að móta nútímalegt hagvaxtarþjóðfélag á Íslandi.
    Miðað við tuttugustu öldina virðast fyrri aldir kyrrstæðar. Auðvitað urðu breytingar á hagkerfi landsmanna fyrr á tíð en stöðugleikinn var meira áberandi en breytingarnar. Traustir mælikvarðar á þróun lífskjara eru ekki til um eldri tíma. Þó má nefna að lítil sem engin varanleg fólksfjölgun frá hámiðöldum fram á 19. öld bendir til þess að ekki hafi orðið róttækar breytingar á framleiðslukerfinu eða lífskjörum fólks. Ýmsar vísbendingar eru um að lífskjör hafi jafnvel versnað á 17. og 18. öld, m.a. urðu hungursóttir tíðari en fyrr á tímum. Af þeim takmörkuðu rannsóknum sem til eru á líkamshæð Íslendinga má álykta að þeir hafi verið lægri vexti á 18. öld en á öðrum tímum.
    Öldum saman höfðu Íslendingar framfæri sitt af höfuðatvinnuvegunum tveim, landbúnaði og sjávarútvegi. Atvinnuhættir og tækni breyttust ekki að ráði fram á 19. öld og festust fáar aðrar nýjungar en prjónaskapur í sessi. Lítið fjármagn var bundið í atvinnutækjum, ræktun lands var takmörkuð en treyst var á það sem náttúran gaf af sér. Í slíkum náttúrubúskap höfðu landsmenn nóg að bíta og brenna þegar árferði var gott en sultu heilu hungri þegar árferði var slæmt. Öryggisþröskuldur samfélagsins var mjög lágur. Félagskerfið örvaði ekki framleiðslu vegna þess að flestir bændur voru leiguliðar sem bjuggu við ótrygga ábúð og þungar álögur af hendi landeigenda. Verslunarfyrirkomulagið var á löngum tímabilum óhagstætt landsmönnum en kjör í utanlandsverslun skiptu miklu máli vegna þess að sumar nauðsynjavörur gátu bændur ekki framleitt sjálfir svo sem færi, öngla og ljái.

Verg landsframleiðsla á mann í nokkrum löndum Evrópu 1870–1990.
Jafnvirðisgildi bandarískra dollara 1990 skv. Geary-Khamis aðferð.

Ísland Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Bretland V-Evrópa
1870 1.000 1.927 1.107 1.303 1.664 3.263 1.969
1913 2.054 3.764 2.050 2.275 3.096 5.032 3.482
1929 2.507 4.883 2.639 3.158 3.869 5.255 4.358
1938 2.868 5.544 3.486 3.945 4.725 5.983 4.685
1945 5.298 4.874 3.350 3.665 5.568 6.737 4.099
1952 5.074 6.691 4.540 5.284 6.996 6.987 5.836
1973 11.470 13.416 10.768 10.229 13.494 11.992 12.527
1982 15.973 14.969 13.226 13.825 15.055 12.826 14.489
1990 18.038 17.953 16.604 16.897 17.695 16.302 17.474
Heimildir: Angus Maddison, Monitoring the World Economy 1820–1992. OECD (Paris, 1995), bls. 23, 172, 194–97.
Guðmundur Jónsson, Hagvöxtur og iðnvæðing. Þróun landsframleiðslu á Íslandi 1870–1945. Þjóðhagsstofnun (væntanleg).

    Á fyrstu áratugum 19. aldar fóru atvinnuhagir Íslendinga smám saman að batna. Árferði var tiltölulega hagfellt eftir 1820 og bændur fóru að selja meira af afurðum sínum á erlenda markaði enda fékkst gott verð fyrir ull og tólg fram undir miðja öldina. Sjósókn jókst einnig og var það ekki síst því að þakka að Íslandskaupmenn fóru að verka saltfisk og selja á markaði í Suðurlöndum. Rétt fyrir miðja öldina var saltfiskur orðin helsta útflutningsafurð Íslendinga. Saltfisköldin stóð í blóma fram á fjórða áratug 20. aldar þegar markaðir drógust stórlega saman vegna kreppu, viðskiptaerfiðleika og borgarastyrjaldar á Spáni.
    Þrátt fyrir nokkurn hagvöxt og vaxandi fólksfjölda fram eftir 19. öld urðu engar grundvallarbreytingar á hagkerfinu. Þjóðhagsreikningar sýna að árið 1870 var Ísland í hópi fátækari landa Evrópu og stóð nær löndum Suður- og Austur-Evrópu í lífskjörum en löndum Vestur-Evrópu. Landsframleiðsla á mann var þá um 1000 Bandaríkjadalir á verðlagi ársins 1990 eða aðeins helmingur af meðaltali 12 Vestur-Evrópulanda (sjá töflu). Ein helsta tækninýjungin sem fram kom á 19. öldinni voru þilskipin og er tímabilið 1870–1905 jafnan kallað skútuöldin. Afli þilskipa nam þó aldrei meira en tæpum 40% af heildarafla þegar mest var í upphafi 20. aldar.
    Á síðustu áratugum 19. aldar hófst iðnvæðing á Íslandi. Venjulega er upphaf íslensku iðnvæðingarinnar tengt vélvæðingu sjávarútvegs skömmu eftir aldamót en iðnvæðing var fólgin í fleiru en tækninýjungum. Breytingar urðu á atvinnuskiptingu landsmanna löngu áður en vélvæðing kom til sögunnar. Sjávarútvegur var í sókn og sjávarbyggðir efldust frá því snemma á 19. öld. Eftir miðja öldina steðjuðu ýmis vandræði að landbúnaði, m.a. fjárkláði og offjölgun í sveitum, sem ýttu undir fólksflutninga eftir 1870. Margir lögðu leið sína til Vesturheims en vaxandi fjöldi leitaði sér framfæris í sjávarútvegi, verslun og öðrum þjónustugreinum. Gífurlegir fólksflutningar úr sveitum, þéttbýlismyndun, vöxtur borgaralegra atvinnugreina og aukin verkaskipting stuðluðu að meiri og hagkvæmari framleiðslu til sjávar og sveita. Íslendingar voru að hverfa frá hinu gamla búskaparlagi landbúnaðarsamfélagsins og snúa sér eindregið að markaðsframleiðslu, sérstaklega með því að stórauka verslun við útlönd. Utanlandsverslunin gaf þjóðinni færi á að hagnýta miklu betur en áður verðmætustu auðlindina, fiskimiðin.
    Upp úr aldamótum hófst vélvæðing í sjávarútvegi er farið var að setja vélar í fiskibáta og flytja inn gufuknúna togara. Vélvæðingin gekk yfir næstu áratugina fram til 1930 en um það leyti var árabátaútgerðin að syngja sitt síðasta og seglskip horfin úr fiskiskipaflotanum. Hin stórvirku veiðitæki leiddu til meiri afkastaaukningar en áður hafði þekkst, fiskafli jókst úr tæpum 80 þúsund tonnum 1901 í meira en 400 þúsund tonn árið 1930 á meðan vinnuafli við fiskveiðar og -vinnslu fjölgaði úr 5.900 manns í 9.800 manns eða um tvo þriðju hluta. Vöxtur sjávarútvegs örvaði aðra atvinnuvegi, ekki síst byggingarstarfsemi, verslun og aðra þjónustu.
    Allar þessar breytingar stuðluðu að auknum og varanlegum hagvexti og segja má að um og eftir 1890 hafi nútímalegt hagvaxtarsamfélag haldið innreið sína á Íslandi. Árin fram að fyrri heimsstyrjöld voru mikið framfaraskeið í efnahagslífi og var þá nær samfelldur hagvöxtur. Ísland gerði betur en að fylgja þróaðri löndum Evrópu eftir, það tók að saxa á forskot þeirra. Á tímabilinu 1890–1913 óx landsframleiðsla á mann að meðaltali um ríflega 2% á ári samanborið við 1½% í Vestur-Evrópu. Árið 1913 nam landsframleiðsla á mann á Íslandi tæpum 60% af meðaltali landsframleiðslu Vestur-Evrópuþjóða.
    Heimsstyrjöldin fyrri batt enda á tiltölulega friðsælt framfaraskeið í Evrópu og í hönd fór tímabil mestu sundrungar og eyðileggingar heimssögunnar, markað af heimsstyrjöldunum tveim. Framfarir urðu samt á mörgum sviðum íslensks efnahagslífs, vélvæðing breiddist út til fleiri atvinnugreina, framleiðsla á raforku jókst allnokkuð, ræktunarbúskapur með hjálp dráttarvéla og tilbúins áburðar ruddi sér til rúms í landbúnaði og síldveiðar urðu stór þáttur í sjávarútvegi. Þessi nýmæli dugðu þó ekki til að halda uppi svipuðum hagvexti og í Vestur- Evrópu. Þrátt fyrir nokkurn hagvöxt á þriðja áratugnum drógust Íslendingar aftur úr öðrum Vestur-Evrópuþjóðum á tímabilinu 1913–1929. Í kreppunni miklu jókst landsframleiðsla hins vegar hraðar eða um 1½% á móti tæplega 1% í Vestur-Evrópu. Hagvöxtur var þó minni á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum.

Mynd 21. Landsframleiðsla á Íslandi og Vestur-Evrópu 1870–1990.


Jafnvirðisgildi bandarískra dollara 1990.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Heimsstyrjöldin síðari markar alger þáttaskil í hagsögu Íslands því þá drógu Íslendingar aðrar Evrópuþjóðir uppi í lífskjörum. Á meðan þjóðarbúskapur flestra ríkja dróst saman og beið jafnvel mikinn hnekki skapaði styrjöldin svo hagstæðar aðstæður fyrir Ísland að hagvöxtur varð þar meiri en í nokkru landi Evrópu. Landsframleiðsla á mann jókst að jafnaði um ríflega 9% á ári 1938–1945 og eru því stríðsárin síðari einhver mestu hagvaxtarár sem um getur á Íslandi. Í stríðslok voru Íslendingar komnir í hóp tekjuhæstu þjóða heims. Af ríkjum Evrópu voru þjóðartekjur aðeins hærri í Bretlandi og Svíþjóð.
     Þrátt fyrir gífurlegar fjárfestingar í sjávarútvegi og landbúnaði varð afturkippur í þjóðarbúskapnum á fyrstu árunum eftir stríð. Fiskveiðiþjóðir við Atlantshaf efldu sjávarútveg að nýju eftir stríð og verndarstefna í landbúnaði og fiskveiðum sótti í sig veðrið í Evrópu. Aukaverkanir góðærisins voru einnig að koma betur í ljós þar sem verðlag hafði hækkað miklu meira en í helstu viðskiptalöndum. Stjórnvöld gripu til víðtækra viðskiptahafta og útflutningsstyrkja í því skyni að að rétta halla á viðskiptum við útlönd og bæta hag útflutningsgreina. Samdráttur var í efnahagslífi fram til 1952 en þá tók atvinnulíf að vaxa ört að nýju. Heita má að tímabilið 1952–1982 hafi verið nokkuð samfellt vaxtarskeið ef undan er skilinn mikill afturkippur 1967–1968 þegar síldveiðar brugðust. Árlegur hagvöxtur á mann var tæp 4% á Íslandi en rúm 3% í Vestur-Evrópu á tímabilinu 1952–1982. Þetta gerðist þrátt fyrir mikla verðbólgu og lausatök við stjórn efnahagsmála lengst af tímabilinu. Hinn mikla hagvöxt má að stórum hluta þakka stækkun fiskveiðilögsögunnar og sífellt öflugri og þróaðri fiskveiðiflota.
    Á níunda áratugnum lauk hinu einstaka vaxtarskeiði eftirstríðsáranna og við tók stopull hagvöxtur og jafnvel samdráttur. Árlegur meðalvöxtur landsframleiðsla á mann var aðeins rúmlega ½% á tímabilinu 1982–1993 sem rekja má að stórum hluta til samdráttar í fiskafla. Þrátt fyrir það var landsframleiðsla yfir meðaltali Vestur-Evrópuríkja í lok áratugarins. Miklar skipulagsbreytingar urðu í atvinnulífi á þessum tíma og jafnframt fór fram róttækt endurmat á hagstjórn fyrri ára þar sem leitað var markaðslausna í meira mæli en áður hafði tíðkast. Þessar breytingar lögðu grundvöll undir hagþróun tíunda áratugarins.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.