Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 20  —  20. mál.




Beiðni um skýrslu



frá viðskiptaráðherra um endurskoðaða úttekt á stjórnunar- og eignatengslum milli fyrirtækja sem starfa á íslenskum markaði.

Frá Sighvati Björgvinssyni, Ástu R. Jóhannesdóttur, Bryndísi Hlöðversdóttur,


Einari Má Sigurðarsyni, Gísla S. Einarssyni, Guðmundi Árna Stefánssyni,
Guðrúnu Ögmundsdóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur, Jóhanni Ársælssyni,
Kristjáni L. Möller, Lúðvík Bergvinssyni, Margréti Frímannsdóttur,
Rannveigu Guðmundsdóttur, Sigríði Jóhannesdóttur, Svanfríði Jónasdóttur,
Þórunni Sveinbjarnardóttur og Össuri Skarphéðinssyni.


    Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að viðskiptaráðherra feli samkeppnisráði að endurskoða úttekt sína frá því í desember 1994 um stjórnunar- og eignatengsl í íslensku atvinnulífi og leggi hana fyrir Alþingi sem skýrslu. Fyrst verði hafist handa um skoðun á stjórnunar- og eignatengslum í fyrirtækjum sem starfa í verslun, sjávarútvegi og fjármálaþjónustu og Alþingi kynnt niðurstaðan.

Greinargerð.


    Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í samkeppnislögum, nr. 8/1993, var samkeppnisráði ætlað að gera á árunum 1993 og 1994 úttekt á stjórnunar- og eignatengslum milli fyrirtækja sem starfa á íslenskum markaði, leggja hana fyrir viðskiptaráðherra sem síðan skyldi leggja hana fyrir Alþingi sem skýrslu. Samkeppnisráð vann þetta verk eins og fyrir var mælt í lögunum og skilaði skýrslu um viðfangsefnið sem dagsett var 30. desember 1994. Þáverandi viðskiptaráðherra lagði skýrsluna síðan fyrir Alþingi.
    Úttekt þessi var mjög umfangsmikil, tæplega 500 blaðsíður í bókarformi, og veitti ýmsar mjög athyglisverðar upplýsingar um viðskipta-, hagsmuna- og eignatengsl fyrirtækja á íslenskum markaði.
    Með skýrslunni var í fyrsta skipti varpað ljósi á margþætt eignatengsl tiltölulega fárra ráðandi aðila í íslensku atvinnulífi og mörgum varð þá ljós hættan á því að völd söfnuðust á fárra hendur og fákeppni kæmi í stað virkrar samkeppni í mörgum þáttum atvinnulífs.
    Frá því að skýrslan kom út hafa miklar eignatilfærslur orðið milli aðila og verður ekki betur séð en að sumir þeirra aðila og fyrirtækja sem áður voru öflugir og sterkir og áttu ráðandi hlut í mörgum fyrirtækjum, bæði innan einstakra starfsgreina og í mörgum starfsgreinum, hafi enn eflt eignastöðu sína og aukið völd sín. Þingmenn Samfylkingarinnar, sem standa að þessari skýrslubeiðni, telja því tíma til þess kominn að skýrsla samkeppnisráðs frá því í desember 1994 verði endurskoðuð og uppfærð og lögð að því loknu fyrir Alþingi og þar með gerð opinber.
    Gagnrýnin umræða um hættu á valdasamþjöppun í atvinnulífinu, óæskilega mikil ítök fárra félaga og einstaklinga í atvinnustarfseminni og fákeppni byggist á gagnsæi markaðar með hlutabréf og haldgóðum upplýsingum um flókið net fyrirtækjasamsteypa og eignarhaldsfélaga. Skýrsla eins og sú sem samkeppnisráð gerði í árslok 1994 er ómetanlega mikilvægt grundvallaratriði til slíkrar umfjöllunar. Því fara framangreindir þingmenn Samfylkingarinnar fram á að Alþingi kalli nú eftir endurskoðun á þeirri skýrslu sem gerð verði aðgengileg fyrir þing og þjóð.
    Þá hefur glögglega komið fram að sérstaklega miklar breytingar hafa orðið á stjórnum og eignatengslum í fyrirtækjum sem starfa á sviði verslunar, sjávarútvegs og fjármálaþjónustu. Þingflokkurinn telur því æskilegt að endurskoðun samkeppnisráðs hefjist á fyrirtækjatengslum í þeim greinum atvinnulífsins og geri niðurstöður þeirrar athugunar opinberar strax að henni lokinni.