Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 29 — 29. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um stöðu Íslands gagnvart rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um umhverfisáhrif.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
2. Hvernig skiptist þessi losun eftir einstökum meginuppsprettum gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum hérlendis?
3. Hverju spá stjórnvöld um heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hérlendis á árunum 2000, 2005 og 2010?
4. Hversu mikilli losun gróðurhúsalofttegunda (CO 2-ígildi) má gera ráð fyrir frá:
a. 480 þúsund tonna álveri á Reyðarfirði,
b. 120 þúsund tonna viðbót við álver Norðuráls á Grundartanga,
c. fjórða og fimmta ofni Íslenska járnblendifélagsins,
d. 50 þúsund tonna magnesíumverksmiðju á Reykjanesi?
5. Hverjir er gert ráð fyrir að beri kostnað af aukinni losun gróðurhúsalofttegunda frá orkufrekum iðnaði, t.d. í formi kaupa á losunarheimildum, sem ekki rúmast innan ákvæða Kyoto-bókunarinnar að því er Ísland varðar?
6. Hvaða samdráttar er að vænta í losun gróðurhúsalofttegunda, sbr. 2. lið, frá meginuppsprettum þeirra hérlendis árin 2000, 2005 og 2010?
7. Hvaða mótvægisaðgerðir eru fyrirhugaðar á sama tíma (2000, 2005 og 2010) og hvernig gætu þær litið út í bókhaldi Íslands samkvæmt ákvæðum rammasamningsins og Kyoto- bókuninni?
Skriflegt svar óskast.