Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 32  —  32. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um kampýlóbaktersmit á Íslandi.

Frá Sighvati Björgvinssyni.



     1.      Hve mörg tilvik af kampýlóbaktersýkingum hafa greinst á Íslandi á ári sl. tíu ár?
     2.      Hvað má ætla að margir hafi sýkst miðað við fjölda greindra sýkinga?
     3.      Hve lengi má ætla að sýking valdi veikindum að meðaltali og hversu oft hefur kampýlóbaktersýking leitt til alvarlegs heilsuskaða eða sjúkrahúsvistar?
     4.      Hvaða matvæli á íslenskum neyslumarkaði hafa sannanlega valdið kampýlóbaktersmiti?
     5.      Eru dæmi um að innflutt matvæli, svo sem kjúklingar eða annað kjöt, hafi greinst með kampýlóbaktersmit?
     6.      Hvað segja þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á uppruna kampýlóbaktersmits um smithættu frá afurðum einstakra framleiðenda eða sláturleyfishafa?
     7.      Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til þess að verja almenning fyrir sýkingarhættu af völdum kampýlóbakter? Hvað telur ráðherra að kampýlóbaktersmit þurfi að greinast í háu hlutfalli tekinna sýna frá einstökum framleiðanda eða sláturleyfishafa til þess að grípa þurfi til aðgerða og til hvaða aðgerða ber þá að grípa? Telur ráðherra t.d. koma til greina að stöðva framleiðslu framleiðenda eða sláturleyfishafa þar sem kampýlóbaktersmit hefur greinst langt yfir eðlilegum mörkum?
     8.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að matvæli sem greinast með kampýlóbaktersmit verði tekin af íslenskum markaði?


Skriflegt svar óskast.