Ferill 34. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 34  —  34. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað veldur því að ekki hefur enn verið lagt fram frumvarp til nýrra laga um mat á umhverfisáhrifum þrátt fyrir skýlaus lagafyrirmæli um að endurskoðun laga nr. 63/1993 færi fram jafnhliða endurskoðun skipulags- og byggingarlaga sem lokið var með lagasetningu vorið 1997?
     2.      Hvenær hyggst ráðherra leggja frumvarpið fram og hvenær er áætlað að lögin öðlist gildi?
     3.      Hvaða þýðingu hafa ákvæði tilskipunar ESB nr. 97/11/EC frá 3. mars 1997, sem Íslandi bar að lögfesta í síðasta lagi 15. mars 1999, fyrir stöðu og framkvæmd laga nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum?