Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 37  —  37. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um áhrif stórrar álbræðslu á fámennt samfélag.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hefur verið leitað eftir áliti félagsmálaráðuneytisins á þeirri fyrirætlan stjórnvalda að reisa risaálbræðslu í fámennu samfélagi á Austfjörðum?
     2.      Hefur ráðuneytið kynnt sér áhrif og afdrif stóriðjufyrirtækja í fámennum byggðarlögum í grannlöndum okkar, m.a. í Noregi og Skotlandi?
     3.      Hver er skoðun ráðherra á nefndri ráðagerð hérlendis, sbr. 1. lið?