Ferill 38. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 38 — 38. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um einkavæðingu fjármálastofnana.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hve margir keyptu hlut í hlutafjárútboði eftirtalinna aðila á síðasta ári í
a. Landsbankanum,
b. Búnaðarbankanum,
c. Fjárfestingarbanka atvinnulífsins?
2. Hve margir voru hluthafarnir í eftirtöldum fjármálastofnunum í lok hlutafjárútboðs á síðasta ári og hve margir eru þeir núna í
a. Landsbankanum,
b. Búnaðarbankanum,
c. Fjárfestingarbanka atvinnulífsins?
3. Hvert var gengi hlutabréfa í eftirtöldum fjármálastofnunum þegar hlutafjárútboð fór fram á síðasta ári og hvert er gengi hlutabréfa í sömu stofnunum núna (geta skal um gengi og fjárhæðir) í
a. Landsbankanum,
b. Búnaðarbankanum,
c. Fjárfestingarbanka atvinnulífsins?
Skriflegt svar óskast.