Ferill 39. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 39 — 39. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um starfsemi kjarnorkuendurvinnslustöðvanna í Dounreay og Sellafield.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hefur ráðherra áreiðanlegar upplýsingar um það hversu lengi bresk stjórnvöld áforma að halda áfram rekstri kjarnorkuendurvinnslustöðvanna í Dounreay og Sellafield?
2. Hvað hyggjast íslensk yfirvöld gera til að þrýsta á um að losun geislavirkra efna í hafið umhverfis Sellafield verði hætt?
3. Hefur ráðherra leitað eftir upplýsingum um hvað eigendur Dounreay-stöðvarinnar hyggist gera til þess að auka öryggi hennar í samræmi við ábendingar breskra heilbrigðisyfirvalda og skosku umhverfisverndarstofnunarinnar sem fram komu á síðasta ári?
4. Hvaða ráðstafanir hafa íslensk stjórnvöld gert til að fylgjast með magni teknesíum-99 í hafinu umhverfis Ísland á næstu árum?
5. Hefur þjóðréttarleg staða Íslendinga verið könnuð með tilliti til þess tjóns sem mengun af völdum teknesíum-99 gæti valdið íslenskum sjávarútvegi?
6. Hafa íslensk stjórnvöld undir höndum upplýsingar um siglingaleiðir þeirra skipa sem flytja geislavirkan úrgang til og frá Sellafield?
7. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því á vettvangi norrænnar samvinnu að Svíar hætti að senda kjarnorkuúrgang til endurvinnslu í Sellafield?