Ferill 40. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 40 — 40. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um samning um raforkusölu til álbræðslu á Reyðarfirði.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur, Þuríði Backman og Árna Steinari Jóhannssyni.
1. Hver er samningsaðili við Landsvirkjun í viðræðum um kaup á raforku til hugsanlegrar álbræðslu á Reyðarfirði?
2. Hvernig stendur undirbúningur að slíkum samningi, út frá hvaða raforkuverði (kr./kWh) er gengið og hver er ráðgerð tenging raforkuverðs við vísitölu álverðs á London Metal Exchange?
3. Frá hvaða virkjunum er ætlunin að afla raforku til fyrsta áfanga álbræðslunnar svo og til síðari áfanga hennar uns náð yrði 480 þúsund tonna framleiðslugetu á ári? Hversu mikil orka (GWh/ári) er ráðgert að komi frá hverri virkjun?
4. Hvaða áhrif hefur óvissa um framtíðarstöðu Landsvirkjunar vegna breyttra laga, eignaraðildar og lögfestingar tilskipunar Evrópusambandsins um raforkumarkað á gerð raforkusölusamninga til stóriðju framvegis, þar á meðal á samninga og skuldbindingar um orkuafhendingu til álbræðslu á Reyðarfirði?
5. Hvernig getur ríkisstjórnin látið kanna „möguleika á því að gera Noral-álfélaginu kleift að kaupa rafmagn frá fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun á samkeppnishæfu orkuverði er ákvarðast af áætlun um kostnað við fjárfestinguna“ (sbr. yfirlýsingu um Noral-verkefnið frá 29. júní 1999) og gefið marktækar yfirlýsingar um orkuafhendingu og orkuverð þegar hvorki er fengin heimild Alþingis fyrir slíkri virkjun né hefur farið fram mat á umhverfisáhrifum slíks mannvirkis?
Skriflegt svar óskast.