Ferill 41. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 41  —  41. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um fjármagnstekjuskatt.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve miklar voru heildartekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjuskatti við álagningu skatta árin 1998 og 1999 (tekjuárin 1997 og 1998) og hvernig skiptist hann milli bankainnstæðna, verðbréfa, arðs, útistandandi skulda og annarra vaxtatekna?
     2.      Hve miklar vaxtatekjur voru taldar fram á skattframtölum við álagningu skatta 1999 (tekjuárið 1998) og hvernig skiptust þær eftir verðbréfum og inneignum hjá innlánsstofnunum?
     3.      Hve mikill var hagnaður af sölu hlutabréfa samkvæmt álagningu skatta 1999 (tekjuárið 1998)?
     4.      Hve hár var arður af hlutabréfum og skattlagning hans við álagningu skatta árið 1998 annars vegar og árið 1999 hins vegar (tekjuárin 1997 og 1998)?
     5.      Hverjar hefðu skatttekjur ríkissjóðs orðið af arði af hlutabréfum við álagningu skatta fyrir árið 1999 (tekjuárið 1998) ef skatthlutfallið hefði verið það sama og fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts?


Skriflegt svar óskast.