Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 42  —  42. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um samstarf atvinnulífs og skóla á landsbyggðinni.

Frá Svanfríði Jónasdóttur og Einari Má Sigurðarsyni.



     1.      Hvert verður hlutverk menntamálaráðuneytisins í að koma á samstarfi atvinnulífs og skóla á landsbyggðinni um endur- og símenntun, sbr. 9. lið þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999–2001?
     2.      Hvaða skólar gætu átt hlut að slíku samstarfi og hvernig yrði þátttöku þeirra háttað?