Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 43  —  43. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um útsendingar sjónvarpsins.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Á hversu mörgum sveitabæjum nást ekki útsendingar sjónvarps? Hvar eru þessir bæir, sundurliðað eftir sýslum?
     2.      Á hversu mörgum bæjum nást útsendingar sjónvarps nú þar sem þær náðust ekki fyrir þremur árum?
     3.      Eru dæmi um að einstökum ábúendum jarða þar sem útsendingar sjónvarps nást nú sé gert að annast fyrir eigin reikning viðhald og endurnýjun móttökubúnaðar?
     4.      Hvaða þéttbýlisstaðir njóta ekki fullnægjandi sjónvarpsskilyrða?