Ferill 44. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 44 — 44. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um könnun á starfsskilyrðum stjórnvalda.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hverjar eru helstu niðurstöður nefndar sem skipa átti samkvæmt þingsályktun Alþingis frá 2. júní 1998 til að kanna starfsskilyrði stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög við réttarbrotum í stjórnsýslu?
2. Hvenær verður skýrsla nefndarinnar lögð fyrir Alþingi, en samkvæmt framangreindri þingsályktun átti að leggja hana fyrir Alþingi fyrir frestun funda á vorþingi 1999?
3. Hvernig hyggst ráðherra framfylgja niðurstöðum nefndarinnar?