Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 46 — 46. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um stefnumótun í málefnum langsjúkra barna.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hverjar eru helstu niðurstöður nefndarinnar sem skipuð var samkvæmt ályktun Alþingis 2. júní 1998, um stefnumótun í málefnum langsjúkra barna, og ljúka átti störfum í upphafi árs 1999?
2. Hvaða lagafrumvörp, sbr. efni ályktunar Alþingis frá 2. júní 1998, sem tengjast stefnumótun í málefnum langsjúkra barna, verða lögð fyrir Alþingi?
3. Hvernig hyggst ráðherra framfylgja niðurstöðum nefndarinnar og hvenær má vænta að þær komist til framkvæmda?