Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 49  —  49. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um verkefni sem unnt er að sinna á landsbyggðinni.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hafa verkefni fjármálaráðuneytis eða undirstofnana og fyrirtækja þess sem unnt er að sinna á landsbyggðinni verið skilgreind, sbr. 6. lið í þingsályktun um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999–2001?
     2.      Hvenær er gert ráð fyrir að ,,tillögur þar að lútandi sem meðal annars geri ráð fyrir að möguleikar upplýsingatækninnar verði nýttir til hins ýtrasta“ verði lagðar fram?