Ferill 61. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 61 — 61. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um langtímaáætlun í jarðgangagerð.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hvað líður undirbúningi að framkvæmd ályktunar Alþingis frá 11. mars sl. um gerð langtímaáætlunar í jarðgangagerð á Íslandi?
2. Mun ráðherra leita eftir því að þingflokkarnir tilnefni menn í þverpólitíska nefnd sem fjalli um þennan mikilvæga málaflokk í samgöngumálum landsbyggðarinnar?