Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 75 — 75. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lagabreytingar í kjölfar hækkunar sjálfræðisaldurs.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða efnisbreytingar þarf að gera á lögum í kjölfar hækkunar sjálfræðisaldurs og hvaða áhrif munu þær hafa á kjör og aðbúnað barna á aldrinum 16–18 ára og aðstandenda þeirra?
2. Hvenær stendur til að leggja nauðsynlegar lagabreytingar fyrir Alþingi, sbr. 1. lið, og hvaða útgjöld munu þær hafa í för með sér?
Skriflegt svar óskast.