Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 76 — 76. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um orkuverð til stóriðju, fiskvinnslufyrirtækja og garðyrkjubænda.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hversu hátt er orkuverð til stóriðju, svo sem til álversins í Straumsvík, álversins á Grundartanga og járnblendiverksmiðjunnar, og hver eru heildarorkukaup framangreindra fyrirtækja á ári?
2. Hversu hátt er orkuverð til fiskvinnslufyrirtækja og hver eru heildarkaup þeirra á ári?
3. Hversu hátt er orkuverð til garðyrkjubænda og hver eru heildarorkukaup þeirra á ári?
Skriflegt svar óskast.
Prentað upp.