Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 82 — 82. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um auglýsingar og auglýsingagerð.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hver hefur annast auglýsingar og auglýsingagerð fyrir Lánasýslu ríkisins og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa sl. sjö ár?
2. Hefur auglýsingagerðin verið boðin út?
3. Hver er kostnaðurinn af þessum auglýsingum, aðgreint eftir árum, hjá hvorum aðila fyrir sig?
Skriflegt svar óskast.