Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 84  —  84. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ráðstefnuna Konur og lýðræði.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur.



     1.      Hvað komu fram margar umsóknir frá íslenskum konum eða kvennasamtökum um þátttöku í ráðstefnunni Konur og lýðræði? Óskað er eftir yfirliti yfir umsóknirnar.
     2.      Hvaða erindum var hafnað og hvaða erindi voru samþykkt?
     3.      Mun verða gefin út skýrsla um ráðstefnuna og niðurstöður hennar?


Skriflegt svar óskast.