Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 93  —  92. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um miðstöð sjúkraflugs á Akureyri.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hver eru viðhorf ráðherra til tillagna um að gera Akureyri að miðstöð sjúkraflugs, annars en þyrluflugs, og efla um leið Fjórðungssjúkrahúsið og Háskólann á Akureyri og fleiri stofnanir á svæðinu sem miðstöð landsbyggðarlækninga/hjúkrunar?
     2.      Hefur farið fram athugun á þessum kosti af hálfu ráðuneytisins og ef svo er, hverjar eru niðurstöðurnar?