Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 100  —  99. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um þörf á byggingu leiguíbúða.

Frá Sighvati Björgvinssyni.



     1.      Hvaða upplýsingar liggja fyrir um mat sveitarfélaga og félagasamtaka á þörf á byggingu leiguíbúða?
     2.      Hverjir eru það fyrst og fremst, t.d. flokkað eftir tekjum, fjölskyldustærð og atvinnu, sem háðir eru framboði á leiguhúsnæði til þess að uppfylla húsnæðisþarfir sínar og hver er staða þeirra nú í húsnæðismálum?
     3.      Hver er lánsfjárþörfin svo að fullnægja megi eftirspurn eftir leiguhúsnæði í samræmi við mat sveitarfélaga og félaga sem annast byggingu og rekstur slíks húsnæðis og hvernig hyggst ríkisstjórnin mæta þeirri þörf?


Skriflegt svar óskast.