Ferill 52. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 105  —  52. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar um reglugerðir á grundvelli 16. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996.

     1.      Hvaða starfsgreinar hafa nú löggildingu samkvæmt reglugerðum á grundvelli 16. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996?
    Löggiltum iðngreinum er skipað í iðngreinaflokka svo sem hér segir:

Bygginga- og mannvirkjagreinar:
húsasmíði
húsgagnabólstrun
húsgagnasmíði
málaraiðn
múraraiðn
pípulagnir
veggfóðrun
Farartækja- og flutningsgreinar:
bifreiðasmíði
bifvélavirkjun
bílamálun
Hönnun, listir, handverk:
feldskurður
glerslípun og speglagerð
gull- og silfursmíði
hattasaumur
hljóðfærasmíði
kjólasaumur
klæðskurður karla
klæðskurður kvenna
leturgröftur
myndskurður
skósmíðaiðn:
    skósmíði
    skóviðgerð
steinsmíði
söðlasmíði
úrsmíði     
Matvæla- og veitingagreinar:
bakaraiðn
framreiðsluiðn
kjötiðn
kökugerð
matreiðsla
mjólkuriðn
Málm-, véltækni og framleiðslugreinar:
blikksmíði
flugvélavirkjun
málmsteypa
mótasmíði
netagerð
rennismíði
skipa- og bátasmíði
stálsmíði:
    stálskipasmíði
    stálvirkjasmíði
    málmsuða, sérgrein
vélvirkjun:
    kæli- og frystivélavirkjun, sérgrein
Náttúrunýting:
skrúðgarðyrkja
Rafiðngreinar:
símsmíði
rafeindavirkjun
rafveituvirkjun
rafvélavirkjun
rafvirkjun
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar:
bókband
ljósmyndun:
    almenn ljósmyndun
    persónuljósmyndun
prentsmíð
prentun
Þjónustugreinar:
hársnyrtiiðn
snyrtifræði
tannsmíði
     2.      Hvers vegna hafa ekki verið settar reglugerðir á grundvelli laganna fyrir þær starfsgreinar sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerð nr. 560/1995?
    Fyrirspyrjandi vísar hér til reglugerðar nr. 560/1995, um löggiltar iðngreinar, námssamninga, sveinspróf og meistararéttindi, sem afnumin var með setningu reglugerðar nr. 280/1997, um námssamninga og starfsþjálfun, án þess að ný ákvæði hafi þá verið sett í reglugerð um hvaða starfsgreinar skyldu teljast löggiltar.
    Nú hefur ný reglugerð, nr. 648/1999, um löggiltar iðngreinar, verið sett á grundvelli 16. gr. laga nr. 80/1996, um framhaldsskóla. Undirbúningur að setningu reglugerðarinnar hefur verið býsna viðamikill og tengst gildistöku ýmissa ákvæða nýrra framhaldsskólalaga, störfum samstarfsnefndar um starfsnám á framhaldsskólastigi, skipun starfsgreinaráða o.s.frv. Vegna þess hversu breytingar á reglugerð af þessu tagi geta verið viðkvæmar var þess vandlega gætt af hálfu menntamálaráðuneytisins að tryggja sem víðtækast samráð við starfsgreinaráðin, þar sem sitja fulltrúar atvinnurekenda og launþega í iðngreinum, samstarfsnefnd framhaldsskólastigsins og iðnaðarráðuneytið. Drögin voru m.a. send öllum starfsgreinaráðum til umsagnar og tók það ferli langan tíma. Ýmis álitamál komu upp varðandi fjölda iðngreina og heiti þeirra. Við bættist óvissa vegna þeirrar ákvörðunar að iðnaðarráðuneytið tæki að sér reglugerðina um löggiltar iðngreinar og iðnaðarráðherra lagði fram frumvarp þess efnis sl. vor, en það hlaut ekki afgreiðslu. Eftir að ljóst var orðið að ekki yrði af nauðsynlegri breytingu á iðnaðarlögum, ákvað menntamálaráðherra að setja reglugerð í samræmi við 16. gr. framhaldsskólalaga. Þá var enn eftir að útkljá vafamál varðandi heiti einnar iðngreinar, símsmíði. Niðurstaða um það náðist ekki fyrr en í byrjun október.

     3.      Hver er lagaleg og fagleg staða þeirra starfsgreina sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerðinni eftir að hún féll úr gildi gagnvart ófaglærðum sem kynnu að vilja starfa í greininni?
     4.      Hver er lagaleg og fagleg staða þeirra starfsgreina sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerðinni gagnvart viðskiptavinum í viðkomandi starfsgrein ef á faglega ábyrgð reynir?
    Innan menntakerfisins hefur staða þeirra starfsgreina sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerð nr. 560/1995 ekki breyst. Starfsnám í þessum greinum hefur verið óbreytt og sveinspróf verið haldin í þeim, svo sem verið hefur.
    Ekki er kveðið á um réttindi manna til iðnaðarstarfa í lögum um framhaldsskóla heldur í iðnaðarlögum, nr. 42/1978. Meistarabréf eru einnig gefin út samkvæmt iðnaðarlögum og halda að fullu gildi sínu þótt ekki sé til reglugerð um löggiltar iðngreinar.
    Varðandi stöðu þessara starfsgreina að öðru leyti þá er kveðið á um lagalega stöðu löggiltra iðngreina í iðnaðarlögum, nr. 42/1978, sbr. 8. og 9.gr.

     5.      Hvert er nú gildi meistarabréfa sem hafa verið gefin út í þeim starfsgreinum sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerðinni áður en hún féll úr gildi?
     6.      Hvert er gildi þeirra meistarabréfa sem hafa verið gefin út eftir að reglugerðin féll úr gildi og hvert verður gildi þeirra ef og eftir að ný reglugerð tekur gildi?
    Kveðið er á um útgáfu og gildi meistarabréfa í iðnaðarlögum, nr. 42/1978, sjá 10. gr., og fellur því fyrirspurnin undir verksvið iðnaðarráðherra.
    Innan menntamálaráðuneytisins er ekki talin ástæða til að ætla annað en að almennt megi líta svo á að meistarabréf sem út hafa verið gefin af lögreglustjórum á grundvelli iðnaðarlaga séu í fullu gildi. Sama skoðun mun ríkjandi innan iðnaðarráðuneytis.

     7.      Hyggst ráðherra setja reglugerð fyrir þær starfsgreinar sem höfðu löggildingu samkvæmt reglugerð nr. 560/1995 og hvenær má þá vænta hennar?
    Ráðherra hefur staðfest reglugerð um löggiltar iðngreinar á grundvelli 16. gr. laga nr. 80/1996, um framhaldsskóla, sjá reglugerð nr. 648/1999.