Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 109  —  73. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar um aukatekjur ríkissjóðs og gjaldtöku ríkisstofnana.

     1.      Hefur farið fram sérstök endurskoðun á aukatekjum ríkissjóðs og gjaldtöku ríkisstofnana í samræmi við ályktun Alþingis frá 8. maí 1993?
    Lög um aukatekjur ríkissjóðs eru í sífelldri endurskoðun. Frá árinu 1993 hafa verið gerðar ýmsar breytingar á lögunum sem lúta einkum að því að afmarka skýrt fjárhæð gjaldsins og gjaldskylda aðila. Þannig hafa lögin ekki lengur að geyma ákvæði sem heimila ráðherra að hækka eða lækka gjöld á grundvelli laganna með reglugerð. Má því fullyrða að gjaldtakan fullnægi þeim kröfum sem gerðar eru til skattlagningarheimilda í stjórnarskrá, sbr. 77. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 15. gr. stjórnarskipunarlaga, nr. 97/1995, sbr. og 40. gr. stjórnarskrárinnar. Tvö ákvæði laganna er þó gert ráð fyrir að taka til skoðunar á þessu þingi, annars vegar ákvæði 2. mgr. 10. gr. (reglugerðarheimild sem byggist á sjónarmiðum um töku þjónustugjalda) og hins vegar 36. tölul. 11. gr. laganna, sem fjallar um önnur leyfi af svipuðum toga er valdsmenn eða Stjórnarráð gefa út.

     2.      Hefur það markmið sem lýst er í þingsályktuninni, þ.e. „að gerður verði skýr greinarmunur á skattheimtu og gjaldtöku fyrir veitta þjónustu hjá hinu opinbera“ náðst?
    Í ráðuneytinu hefur farið fram skipulögð endurskoðun á skatta- og gjaldtökuákvæðum sem eru á valdsviði þess. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að slíkt verði einnig gert í öðrum ráðuneytum. Hefur ráðuneytið í því sambandi fylgst sérstaklega með því að lagafrumvörp sem lögð eru fyrir þingið uppfylli þau skilyrði sem gilda um innheimtu skatta og þjónustugjalda.

     3.      Hefur það markmið náðst sem lýst er í þingsályktuninni að þjónustugjöld sem innheimt eru hjá hinu opinbera skuli aldrei vera hærri en sá kostnaður sem af þjónustunni hlýst?
    Gjöld eru tekin fyrir opinbera þjónustu af ýmsu tagi. Með þjónustugjaldi er átt við að sérgreint endurgjald fæst gegn greiðslu gjaldsins og miðast það við þann kostnað sem hlýst af því að veita þjónustuna eða hluta kostnaðarins. Þetta þýðir að með gjaldtökunni má ekki afla tekna umfram það sem starfsemin eða þjónustan kostar. Gjaldtakan má með öðrum orðum ekki byggjast á skattalegum sjónarmiðum um almenna tekjuöflun ríkisins.
    Þegar um er að ræða einfalda þjónustugjaldaheimild má telja að markmiðið hafi að mestu náðst. Hins vegar er alveg ljóst að gjaldtökuákvæði þarfnast sífelldrar endurskoðunar og sífellt þarf að meta kostnaðinn. Ráðuneytum ber að gæta þess að þau eða stofnanir sem undir þau heyra taki ekki hærra gjald fyrir þjónustu en rúmast innan ramma hverrar heimildar.




     4.      Gera opinberar stofnanir skýra grein fyrir því við innheimtu hver kostnaðurinn við viðkomandi þjónustu er og hversu hár „skattur“ er innheimtur umfram þjónustuna, sé um slíkt að ræða, eins og fyrir er lagt í ályktun Alþingis?
    Oft kemur fram í lagaheimildum hvaða kostnaðarþættir liggja til grundvallar gjaldtöku. Hins vegar eru gjaldtökuheimildir mismunandi nákvæmar í þessum efnum. Gera verður ráð fyrir að ráðuneyti og stofnanir geti gert grein fyrir útreikningi gjaldtökuheimilda ef eftir því er óskað af hálfu gjaldanda. Ef gjald reynist vera hærra en nemur kostnaði sem af þjónustu leiðir kann það að kalla á endurgreiðsluskyldu ríkissjóðs á grundvelli laga um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda, nr. 29/1995.