Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 124 — 114. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á barnalögum, nr. 20/1992.
Flm.: Össur Skarphéðinsson, Guðmundur Árni Stefánsson,
Einar Már Sigurðarson, Ásta R. Jóhannesdóttir.
1. gr.
2. gr.
Faðernismál má höfða á heimilisvarnarþingi móður, manns sem telur sig vera föður barns eða varnaraðila, sbr. og 2. mgr.
Nú á sóknaraðili ekki varnarþing hér á landi og má þá höfða mál á varnarþingi móður barns eða þess manns sem telur sig vera föður barns, eða því varnarþingi sem annað þeirra átti síðast hér á landi ef þau eru farin af landi eða ókunnugt er hvar þau eru niður komin eða á varnarþingi þar sem með bú þeirra er farið.
Höfða má mál á varnarþingi barns ef varnarþingi hér á landi skv. 1. og 2. mgr. er ekki til að dreifa eða fyrir öðrum dómstóli hér á landi samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðuneytis.
3. gr.
Sóknaraðili faðernismáls er móðir barns, barnið sjálft eða maður sem staðhæfir að hann hafi haft samfarir við barnsmóður á getnaðartíma barns. Nú hefur móðir barns höfðað mál og hún andast áður en máli er lokið og getur þá einstaklingur eða það sveitarfélag sem við framfærslu barns hefur tekið að nokkru eða öllu haldið áfram málinu.
Varnaraðili máls er sá maður eða þeir menn sem taldir eru hafa haft samfarir við barns
Ef víst má þykja eða líklegt að fleiri hafi haft samfarir við móður á getnaðartíma barns skal stefna þeim báðum eða öllum ef móðir barns er sóknaraðili máls.
4. gr.
Meðan á meðferð faðernismáls stendur á sóknaraðili kröfu á liðsinni barnaverndarnefndar eftir því sem dómari telur þörf á.
Sóknaraðili faðernismáls skal hafa gjafsókn í héraði og fyrir Hæstarétti.
5. gr.
Aðilum máls er skylt, eftir kröfu dómara, að mæta fyrir dómi og gefa skýrslu sem þeim er unnt að gefa fyrir dómi og leggja sig eða barnið undir blóðrannsókn eða aðra sérfræðilega rannsókn sem dómari mælir fyrir um.
6. gr.
a. Í stað orðsins „varnaraðilum“ í 1. málsl. kemur: þeim manni eða þeim mönnum sem eru taldir hafa haft samfarir við barnsmóður á getnaðartíma barns.
b. Í stað orðsins „varnaraðila“ í 3. málsl. kemur: þeim manni eða mönnum sem taldir eru hafa haft samfarir við barnsmóður á getnaðartíma barns.
7. gr.
8. gr.
Greinargerð.
Faðerni barna er ákvarðað með fernum hætti samkvæmt núgildandi lögum. Í fyrsta lagi verða börn sem fæðast í hjúskap foreldra sjálfkrafa börn eiginmanns. Hér gildir svokölluð faðernisregla eða „pater-est“-reglan sem byggist á því að svo sterkar líkur séu fyrir því að barnið sé getið við samfarir konunnar við eiginmann sinn að gengið er út frá því sem reglu. Reglan er því öðrum þræði hagkvæmnisregla en hún miðar einnig að því að vernda barnið og fjölskylduna í heild meðan þau vilja sjálf una við niðurstöðu reglunnar. Í öðru lagi nær reglan einnig til barna sambýlisfólks þegar foreldrar búa saman við fæðingu barnsins en er þó bundin því skilyrði að móðir hafi lýst mann föður. Í þriðja lagi verður barn sem fæðist utan hjónabands eða sambúðar feðrað með faðernisviðurkenningu þess manns sem móðir kennir föður þess. Í fjórða lagi verður barn fætt utan hjónabands eða sambúðar feðrað með dómi í faðernismáli gangist maður sem móðirin hefur lýst föður barns ekki við faðerninu.
Réttarþróun hér á landi.
Mikilvægasta réttarheimildin á sviði feðrunar barna er að finna í barnalögum, nr. 22/ 1992, en þau eru jafnframt mikilvægasti lagabálkurinn á sviði barnaréttar. Barnalögunum má að efni til skipta í þrennt, þ.e. ákvörðun á faðerni barna og dómsmál vegna faðernis í II. og VII. kafla, um framfærslu barna í III., V. og IX. kafla og um forsjá og umgengnisrétt í VI., VII. og IX. kafla. Barnalögin frá 1992 leystu af hólmi barnalög, nr. 9/1981, sem voru fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Fyrir árið 1981 giltu lög nr. 57/1921, um afstöðu foreldra til skilgetinna barna, og lög nr. 87/1947, um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna.
Með barnalögum frá 1981 varð mikil breyting á réttarstöðu barna á Íslandi. Stigið var stórt skref í átt að því að afnema mismuninn á milli skilgetinna og óskilgetinna barna og var jafnframt leitast við að jafna félagslega stöðu barna með ákvæðum um framfærslu þeirra. Fyrir gildistöku laganna frá 1981 áttu börn ekki sjálfstæðan rétt til umgengni við feður sína né heldur áttu feður rétt til umgengni við börn sín. Það var því fyrst árið 1981 sem börn á Íslandi öðluðust sjálfstæða réttarstöðu gagnvart foreldrum sínum án tillits til stöðu þeirra. Með lögunum frá 1992 var sjálfstæð réttarstaða barns gagnvart foreldrum sínum styrkt, rétt
Árið 1989 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samning um réttindi barnsins, The Convention on the Right of the Child. Samningurinn var staðfestur fyrir Íslands hönd árið 1990. Markmið hans er að vernda börn í heiminum og byggist hann á því að börn hafi hvorki þroska til að skilgreina þarfir sínar né til að fylgja eftir réttindum sínum og þess vegna verði aðrir að gera það fyrir þau. Samkvæmt samningnum skulu börn hafa sjálfstæð réttindi óháð vilja foreldra eða annarra forráðamanna.
Skylda til feðrunar.
Í íslenskum rétti er ekki að finna ákvæði sem skyldar móður til að feðra barn sitt og karlmaður sem telur sig vera föður að barni hefur engin bein lagaúrræði til að fá skorið úr um hugsanlegt faðerni sitt ef móðirin lýsir hann ekki föður. Þó má lesa úr barnalöggjöfinni þau grundvallarsjónarmið að ekki sé einungis æskilegt að börn verði feðruð heldur einnig að þau verði réttilega feðruð. Það birtist m.a. í því að ákveði móðirin að feðra ekki barn sitt öðlast hún ekki rétt til barnalífeyris skv. 14. gr. almannatryggingalaga. Öðru máli gegnir ef móður tekst ekki að feðra barn sitt þrátt fyrir tilraunir til þess. Þá öðlast hún rétt til greiðslu barnalífeyris frá hinu opinbera en hún þarf að leggja fram gögn sem sýna að ferðrun hafi ekki tekist. Þá miða mörg ákvæða barnalaganna að því að niðurstaðan í faðernismálum leiði til rétts faðernis, þ.e. að sá maður sem lagði til sæði sem náði að frjóvga egg móðurinnar verði ákvarðaður faðir barnsins. Þannig eru gerðar strangar form- og hæfiskröfur til fað
Hagsmunir barnsins af því að vera feðrað.
Barnalöggjöfin byggist á því meginsjónarmiði að barnið hafi sjálfstæða réttarstöðu gagn
Samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum eiga börn rétt til verndar og umönn
Ljóst er að börn hafa og fjárhagslega hagsmuni af réttri feðrun. Fyrir utan framfærslu föður njóta þau erfðaréttar eftir föður og föðurfrændur og þau geta öðlast skaðabótarétt fyrir missi framfæranda og lífeyrisréttindi við lát foreldris.
Rétti föður til umgengni við barn sitt verður að fullu jafnað við rétt móður.
Í réttarvitund almennings er krafan um jafnan rétt eintaklinga orðin sjálfsögð og hefur náð að lita innviði samfélagsins. Þetta hefur speglast í löggjöf Vesturlanda. Þannig hefur réttar
Rétturinn til óháðra dómstóla.
Í 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. lög nr. 97/1995, er kveðið á um að menn skuli almennt eiga rétt á að bera mál sín undir dómstóla. Takmörkun á aðgangi þeirra sem telja sig vera feður barna að dómstólum landsins gæti því verið í andstöðu við regluna sem tryggir aðgang manna að dómstólum og rétt þeirra til að fá þar úrlausn um hagsmuni sína, hvort sem er í einkamálum eða sakamálum. Rétturinn er einnig tryggður í mannréttindasáttmála Evrópu sem hefur verið lögfestur hér í heild og alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.
Í andstöðu við réttarvitund almennings.
Fjölskyldumynstrið hefur breyst ört á síðustu árum og í sífellt fleiri fjölskyldum er aðeins eitt foreldri ásamt barni eða börnum. Nú eru einstæðir foreldrar orðnir 8.665 og fara þeir með forsjá 12.479 barna. Árið 1996 fæddist 2.181 barn í sambúð foreldra en 445 börn utan sambúðar eða hjúskapar. Feðrun 2.626 barna ákvarðaðist því við faðernisviðurkenningu, dóm eða á grundvelli faðernisreglunnar eftir að móðir hafði lýst tiltekinn mann föður að barni. Kjósi móðirin að feðra ekki barn sitt er maður sem telur sig vera hinn rétta kynföður varnarlaus, hann getur ekki aðhafst og verður að una algjöru forræði móður.
Hér hefur verið bent á að reglur barnalaga miða að mörgu leyti að því að kynfaðir verði jafnframt faðir að lögum, en það er einnig stefna laganna að það gerist með sem minnstri röskun fyrir móðurina. Í seinni tíð hefur faðernismálum fækkað mjög og koma þar til örar framfarir í vísindum og tækni við rannsóknir í mannerfðafræði. Niðurstaða slíkra rannsókna kemst svo nálægt því að staðreyna rétt faðerni að nær öruggt er að dómari legði hana til grundvallar í dómi sínum. Þegar niðurstaða er fengin kemur viðurkenning oftast í kjölfarið og er dómsmál því óþarft eða fellur niður ef það hefur þegar verið höfðað. Því er vart um að ræða verulega röskun og óþægindi fyrir móður af málarekstrinum. Þá er og ólíklegt að kostn
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
2. málsl. 1. mgr. er samhljóða 2. málsl. 1. mgr. 43. gr. barnalaga. Þar er að finna reglu um fyrirsvar þegar móðir andast eftir að hafa höfðað mál og áður en niðurstaða liggur fyrir og er þá gert ráð fyrir að framfærandi barns taki við rekstri málsins.
Í 2. mgr. er í samræmi við breytingar varðandi sóknaraðila. Hér er gert ráð fyrir að móðir barns og barnið geti einnig verið varnaraðilar. Reglan um að höfða megi mál á hendur búi varnaraðila sem teljast verður líklegur faðir er óbreytt. Þá er lagt til að höfði líklegur faðir mál til feðrunar geti hann höfðað mál á hendur þeim aðila sem hefur haft með höndum fram
3. mgr. er samhljóða 3. mgr. 43. gr. barnalaga.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Um 7. gr.