Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 134 — 32. mál.
Svar
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Sighvats Björgvinssonar um kampýlóbaktersmit á Íslandi.
1. Hve mörg tilvik af kampýlóbaktersýkingum hafa greinst á Íslandi á ári sl. tíu ár?
Frá árinu 1990 til septemberloka 1999 höfðu greinst samtals 1.025 tilfelli af kampýlóbaktersýkingum á Íslandi. Kampýlóbaktersýkingar voru tiltölulega fátíðar fram til ársins 1995 en þá fór að bera á nokkurri aukningu tilfella. Árið 1998 fjölgaði tilfellum umtalsvert eða úr 93 árið 1997 í 220. Það sem af er þessu ári hafa hins vegar greinst 393 tilfelli sem er 103% aukning miðað við sama tímabil og í fyrra. Langflestir hafa smitast innan lands. Flestir þeirra sem sýkst hafa á undanförnum tveimur árum eru á aldrinum 20–39 ára.
2. Hvað má ætla að margir hafi sýkst miðað við fjölda greindra sýkinga?
Almennt er talið að fyrir hvern einn sem greinist með kampýlóbaktersýkingu megi gera ráð fyrir að tíu hafi sýkst. Þetta þýðir með öðrum orðum að á þessu ári kunna um fjögur þúsund einstaklingar að hafa sýkst af völdum kampýlóbakter.
3. Hve lengi má ætla að sýking valdi veikindum að meðaltali og hversu oft hefur kampýlóbaktersýking leitt til alvarlegs heilsuskaða eða sjúkrahúsvistar?
Úrtakskönnun á neysluvenjum og einkennum þeirra sem sýktust í ágúst sl. leiddi í ljós að veikindatíminn var að meðaltali tíu dagar. Koma þessar niðurstöður heim og saman við það sem almennt er vitað um þessa sýkingu. Algengustu einkennin fyrir utan niðurgang voru hiti, magakrampar og magaverkir en önnur einkenni voru ógleði, uppköst og jafnvel blóð í hægðum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um varanlegan heilsuskaða en samkvæmt upplýsingum frá Landspítala, Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar má ætla að níu innlagnir hafi mátt rekja til kampýlóbaktersýkinga árið 1997, 18 árið 1998 og 21 það sem af er þessu ári.
4. Hvaða matvæli á íslenskum neyslumarkaði hafa sannanlega valdið kampýlóbaktersmiti?
Erfitt er að sanna hvaða matvæli valda matarsýkingum, m.a. vegna þess að matvælum hefur oft verið fargað þegar einkenni koma í ljós. Það getur tekið allt frá einum upp í tíu daga en þó oftast tvo til fjóra daga. Einnig er oft um svokallaða krossmengun að ræða, þ.e. mengun berst úr einni tegund matvæla í aðra við meðhöndlun. Umfangsmiklar rannsóknir Hollustuverndar ríkisins á matvælum á markaði sýna að kampýlóbakter hefur eingöngu fundist í kjúklingum fram að þessu. Tekið skal fram að rannsóknir standa enn yfir og heildarniðurstöður liggja ekki fyrir fyrr en að nokkrum vikum liðnum.
5. Eru dæmi um að innflutt matvæli, svo sem kjúklingar eða annað kjöt, hafi greinst með kampýlóbaktersmit?
Innfluttar kjötvörur eru af mjög skornum skammti á Íslandi. Þegar kjúklingar eða annað kjöt er flutt inn hefur það áður verið fryst sem væntanlega dregur úr líkum á kampýlóbaktersmiti. Fylgst hefur verið með salmonellu í innfluttum kjötvörum en leit að kampýlóbakter hefur ekki verið hluti af eftirlitinu fram að þessu. Könnun sem gerð var í ágúst sl. hjá þeim sem sýkst höfðu af kampýlóbakter benti ekki til þess að neysla innfluttra matvæla kæmi þar við sögu.
6. Hvað segja þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á uppruna kampýlóbaktersmits um smithættu frá afurðum einstakra framleiðenda eða sláturleyfishafa?
Rannsóknir sem hingað til hafa verið gerðar benda til að það sé munur á tíðni kampýlóbaktersmits í afurðum framleiðanda og sláturleyfishafa. Þessum rannsóknum sem hafa verið á hendi yfirdýralæknis, Tilraunastöðvar háskólans á Keldum og Hollustuverndar ríkisins er þó enn ekki lokið og því ekki tímabært að skera endanlega úr um hlut framleiðenda og sláturleyfishafa.
7. Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til þess að verja almenning fyrir sýkingarhættu af völdum kampýlóbakter? Hvað telur ráðherra að kampýlóbaktersmit þurfi að greinast í háu hlutfalli tekinna sýna frá einstökum framleiðanda eða sláturleyfishafa til þess að grípa þurfi til aðgerða og til hvaða aðgerða ber þá að grípa? Telur ráðherra t.d. koma til greina að stöðva framleiðslu framleiðenda eða sláturleyfishafa þar sem kampýlóbaktersmit hefur greinst langt yfir eðlilegum mörkum?
Fjölgun kampýlóbaktersýkinga árið 1998 varð ekki ljós fyrr en í upphafi þessa árs. Ástæðan var sú að tilfellin komu upp á mismunandi tíma, voru ekki bundin við ákveðna staði og hópsýkinga varð ekki vart. Kampýlóbaktersýkingar voru ekki tilkynningarskyldar. Þær urðu það hins vegar í febrúar sl. með reglugerð samkvæmt tillögu sóttvarnaráðs. Vandamálið var rætt í ráðinu snemma á árinu og lögum samkvæmt var boðað til fundar með fulltrúum Hollustuverndar ríkisins og yfirdýralæknis til að koma fram með tillögur til aðgerða og úrbóta, en eftirlit með matvælum og matvælaframleiðslu er í höndum þessara aðila. Þá þegar var ákveðið að mæla með því að almenningur fengi upplýsingar um vandann og til hvaða ráða mætti grípa til þess að forðast smit. Fyrirliggjandi upplýsingar bentu til þess að kampýlóbakter væri að finna í kjúklingum á markaði hér á landi og einnig var bent á að samband kynni að vera á milli sýkinga og stóraukinnar neyslu á ófrosnum eða svokölluðum ferskum kjúklingum. Reynsla annarra þjóða er einnig sú að kampýlóbakter finnst í fiðurfé en einnig í öðru kjötmeti. Einnig hefur verið bent á mengað yfirborðsvatn og ógerilsneydda mjólk sem hugsanlega sýkingarvalda en dæmi eru um að hópsýkingar hafi orðið af kampýlóbakter hér á landi á árum áður vegna mengunar vatnsbóla. Samstarf áðurnefndra stofnana hefur verið með ágætum.
Rannsóknir á árinu hafa staðfest að kampýlóbaktermengun hefur aðeins að fundist í kjúklingum á markaði hér á landi. Dæmi eru um að 50–80% af kjúklingum á markaði frá einstökum framleiðendum séu mengaðir af kampýlóbakter sem er óviðunandi. Há tíðni mengunar hefur leitt þess að Hollustuvernd ríkisins, heilbrigðiseftirlit og yfirdýralæknir hafa með sérstökum stuðningi ríkisstjórnarinnar rannsakað umfang vandans en mikilvægt er að öll viðbrögð séu byggð á réttum upplýsingum. Þær aðgerðir sem landlæknisembættið hefur gripið til í samvinnu við sýklafræðideild Landspítalans og Hollustuvernd ríkisins er að upplýsa almenning um vandamálið og um það hvernig hann getur forðast smit. Jafnframt hefur verið unnið að því að draga úr mengun í matvælaframleiðslunni að undanförnu og má ætla að nokkur árangur sé að nást þar sem fækkun tilfella var umtalsverð í ágúst og september. Þó verður að hafa í huga að tilfelli af kampýlóbakter eru flest á sumrin en færri yfir vetrarmánuðina. Markmiðið er að ná niður tíðni kampýlóbaktermengunar í kjúklingum þannig að hún verði eins og best þekkist meðal nágrannaþjóða, ekki yfir 10%.
8. Mun ráðherra beita sér fyrir því að matvæli sem greinast með kampýlóbaktersmit verði tekin af íslenskum markaði?
Ástæða þess að ekki hefur verið gripið til þess ráðs að innkalla matvörur er að kampýlóbakter er mun dreifðari í dýraríkinu og umhverfinu en t.d. salmonella og er þar af leiðandi erfiðari viðfangs. Bæta þarf innra eftirlit í eldi og slátrun kjúklinga undir opinberu eftirliti. Kampýlóbaktersmit í dýrum þarf að vera tilkynningarskylt á sama hátt og salmonellusmit. Hins vegar er ljóst að aldrei verður hægt að útiloka sýklamengun í matvælum og því er affarasælast að neytendur sjálfir séu meðvitaðir um hættuna og fari þannig með matvæli að ekki leiði til sýkingar. Einnig þurfa þeir sem reka veitingahús og skyndibitastaði að gæta ýtrasta hreinlætis við meðferð matvæla, enda er ábyrgð þeirra mikil.
Stefnan hefur því verið að gera hvort tveggja í senn að auka fræðslu til almennings um það hvernig skuli fara með matvæli og jafnframt að draga úr mengun matvæla eins og frekast er kostur. Hins vegar er óviðunandi í ljósi þess alvarlega faraldurs sem hér hefur gengið yfir að matvörur skuli vera jafnmengaðar og raunin hefur verið í sumum tilvikum. Til aðgerða verður gripið þótt ekki sé hægt að segja til um á þessari stundu hvers eðlis þær verða. Beðið verður eftir niðurstöðum úr þeim rannsóknum sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir að gerðar væru síðsumars og nú í haust.