Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 139  —  29. mál.




Svar



umhverfissráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um stöðu Íslands gagnvart rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um umhverfisáhrif.

     1.      Hver var losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum árið 1998 og hvernig kemur hún út miðað við ákvæði Kyoto-bókunarinnar og miðað við viðmiðunarárið 1990?
    Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í koltvíoxíðígildum árin 1990 og 1998 kemur fram í töflunni hér á eftir. Smávægilegar breytingar geta orðið á tölum fyrir 1998 þar sem endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir. Breyting frá viðmiðunarárinu 1990 er einnig sýnd í prósentum. Ákvæði Kyoto-bókunarinnar taka ekki til ársins 1998. Fyrsta skuldbindingatímabil bókunarinnar miðast við meðallosun áranna 2008–2012. Aðildarþjóðir skulu hafa náð merkjanlegum árangri við að draga úr losun árið 2005.

1990
þús. tonna
1998
þús. tonna
Breyting frá viðmiðunarári, %
Koltvíoxíð CO2 2.147 2.494 16,2%
Metan CH4 294 280 -5,0%
Tvíköfnunarefnisoxíð N2O 126 131 4,0%
Vetnisflúorkolefni HFC 0 38
Flúorkolefni FC 304 106 -65,1%
Sexflúorbrennisteinn SF6 5 5 0,0%
Samtals 2.877 3.055 6,2%

     2.      Hvernig skiptist þessi losun eftir einstökum meginuppsprettum gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum hérlendis?
    Upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum árið 1998 eftir meginuppsprettum í þúsundum tonna koltvíoxíðígilda eru birtar í töflunni á eftir. Hlutfall einstakra uppsprettna í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda kemur einnig fram.

CO2 CH4 N2O HFC FC SF6 Samtals Hlutfall
Samgöngur 781 3 22 805 26%
Heimili 33 33 1%
Iðnaður 794 44 31 106 974 32%
Jarðhiti 94 0 94 3%
Fiskiskip 781 1 7 8 796 26%
Annað 12 276 59 5 353 12%
Samtals 2.494 280 131 38 106 5 3.055 100%


Prentað upp.


     3.      Hverju spá stjórnvöld um heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hérlendis á árunum 2000, 2005 og 2010?
    Hollustuvernd ríkissins vann 1997 spá um losun gróðurhúsalofttegunda í tengslum við aðra skýrslu Íslands til skrifstofu loftslagssamningsins. Spáin sem er birt í töflunni hér á eftir er byggð á sömu forsendum. Gerðar hafa verið smávægilegar breytingar í ljósi nýrra upplýsinga og ábendinga úttektarnefndar sem kom til landsins á vegum loftslagssamningsins 1998. Spáin tekur einungis til þeirra stóriðjuverkefna sem ákveðin hafa verið, þ.e. stækkunar Ísals í 160 þúsund tonna ársframleiðslu, fyrsta áfanga Norðuráls (60 þúsund tonn) og þriðja ofns Járnblendiverksmiðjunnar í 110 þúsund tonna ársframleiðslu.

2000
þús. tonna
2005
þús. tonna
2010
þús. tonna
Koltvíoxíð CO2 2.712 2.811 2.908
Metan CH4 283 285 292
Tvíköfnunarefnisoxíð N2O 142 149 153
Vetnisflúorkolefni HFC 48 73 120
Flúorkolefni FC 124 124 124
Sexflúorbrennisteinn SF6 5 5 5
Samtals 3.314 3.446 3.603
Breyting frá 1990 15,2% 19,8% 25,2%

    Í rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar er almenn skuldbinding um að heildarlosun iðnríkjanna verði ekki meiri árið 2000 en hún var 1990. Í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var 1995 er stefnt að því að losun að frádreginni nýrri stóriðju verði ekki meiri árið 2000 en hún var árið 1990. Í þeim tilgangi var gripið til almennra aðgerða til að draga úr losun og auka bindingu kolefnis með landgræðslu og skógrækt.
    Eins og fram kemur hér að ofan er því spáð að heildarlosun árið 2000 verði 3.314 þúsund tonn CO 2-ígilda. Þetta jafngildir aukningu um 437 þúsund tonn. Af því má rekja 124 þúsund tonn til nýs álvers Norðuráls, 169 þúsund tonn til stækkunar Járnblendiverksmiðjunnar og 149 þúsund tonn til stækkunar álversins í Straumsvík. Samanlagt nemur aukning sökum nýrrar stóriðju því 442 þúsund tonnum og skýrir því heildaraukninguna. Hefur þá ekki verið tekið tillit til aukinnar bindingar kolefnis með landgræðslu og skógrækt en eins og staðan er nú bendir allt til þess að markmið áætlunarinnar um að binding verði 100 þúsund tonnum meiri árið 2000 en hún var1990 náist.
    Það bendir því allt til þess að heildarmarkmið ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2000 muni nást. Þennan árangur má meðal annars rekja til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á hverja framleiðslueiningu í álverinu í Staumsvík en þar hefur tekist að draga svo úr myndun flúorkolefna í framleiðslunni að fyrirsjánaleg 160 þúsund tonna ársframleiðsla þeirra árið 2000 mun leiða af sér minni losun gróðurhúsalofttegunda en 88 þúsund tonna framleiðsla gerði 1990. Þetta átak í mengunarvörnum tengist meðal annars samningi fyrirtækisins við stjórnvöld.
    Flest bendir til þess að heildarlosun iðnríkjanna verði u.þ.b. 5% meiri árið 2000 en árið 1990 og að aðeins um helmingur þeirra nái markmiðinu og eru Austur-Evrópuríkin í meiri hluta í þeim hópi.

     4.      Hversu mikilli losun gróðurhúsalofttegunda (CO2-ígildi) má gera ráð fyrir frá:
                  a.      480 þúsund tonna álveri á Reyðarfirði,
                  b.      120 þúsund tonna viðbót við álver Norðuráls á Grundartanga,
                  c.      fjórða og fimmta ofni Íslenska járnblendifélagsins,
                  d.      50 þúsund tonna magnesíumverksmiðju á Reykjanesi?
    
Í töflunni hér á eftir er birt mat á væntanlegri losun frá framangreindum iðjuverum. Við mat á losun frá álframleiðslu er gert ráð fyrir að hún verði sambærileg við losun frá núverandi framleiðslu. Hugsanlegt er að losun á flúorkolefnum muni minnka vegna tækniþróunar. Erfitt er að meta losun frá hugsanlegri magnesíumverksmiðju vegna þess að ekki hefur verið ákveðið hvaða vinnsluaðferð verður notuð við framleiðsluna. Hér er gert ráð fyrir svonefndri skeljasandsaðferð og að brennisteinsdíoxíð verði notað sem hlífðargas en ekki sexflúorbrennisteinn. Tölurnar eru byggðar á frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum og eru hugsaðar sem nálgun og birtar með fyrirvara.

Orkufrekur iðnaður Framleiðsla
í þús. tonna
Samtals í þús. tonna,
CO2-ígildi
Álver á Reyðarfirði 480 864
Stækkun Norðuráls á Grundartanga 120 216
Stækkun ÍJ á Grundartanga 90 300
Magnesíumverksmiðja á Reykjanesi 50 380

     5.      Hverjir er gert ráð fyrir að beri kostnað af aukinni losun gróðurhúsalofttegunda frá orkufrekum iðnaði, t.d. í formi kaupa á losunarheimildum, sem ekki rúmast innan ákvæða Kyoto-bókunarinnar að því er Ísland varðar?
    Um þessar mundir er unnið á vettvangi loftslagssamningsins að því að fá úr því skorið hvað ákvæði Kyoto-bókunarinnar fela í raun í sér fyrir losun frá Íslandi. Þegar Kyoto-bókunin var samþykkt á þriðja aðildarríkjaþingi loftslagssamningsins 1997 var einnig ákveðið að skoða sérstaklega hvernig bregðast bæri við miklu hlutfallslegu vægi einstakra framkvæmda á heildarlosun frá smáríkjum. Þetta er sérstakt vandamál hér á landi og var málið tekið upp að frumkvæði Íslands. Niðurstaða fæst væntanlega í það fyrir árslok 2000 eða á fyrri hluta árs 2001. Þá fyrst verður endanlega ljóst hvaða losunarskuldbindingar munu felast í bókuninni fyrir Ísland.
    Það eru þjóðríki sem taka á sig skuldbindingar um að takmarka heildarlosun gróðurhúsalofttegunda. Ef ríki sem taka á sig slíkar skuldbindingar fullnýta ekki sínar losunarheimildir er þeim hins vegar heimilt að framselja þær öðrum ríkjum. Ríkjunum er svo í sjálfsvald sett til hvaða aðgerða þau grípa til að halda losun innan markanna. Mörg ríki kanna nú möguleika á því að takmarka losun heimafyrir með kvótabindingu og að leyfa framsal á slíkum heimildum innan lands til að dreifa ábyrgðinni og til að skapa efnahagslegan hvata til að draga úr losun.
    Ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvaða leið verður farin hér á landi, enda hefur ekki verið gengið frá reglum um viðskipti með losunarheimildir á grundvelli Kyoto-bókunarinnar. Það er ekki fyrr en slík ákvörðun hefur verið tekin sem spurningin um hver bera muni kostnaðinn af hugsanlegum kaupum á losunarheimildum á alþjóðlegum markaði til að skapa svigrúm til losunar hér á landi er tímabær.

     6.      Hvaða samdráttar er að vænta í losun gróðurhúsalofttegunda, sbr. 2. lið, frá meginuppsprettum þeirra hérlendis árin 2000, 2005 og 2010?
    Upplýsingar í töflunni sem birt er í svari við öðrum lið eru byggðar á tilteknum forsendum um efnahagsþróun og aðgerðir til að draga úr losun. Eins og sjá má er gert ráð fyrir aukningu á losun allra gróðurhúsalofttegunda nema flúorkolefna og sexflúorbrennisteins.

     7.      Hvaða mótvægisaðgerðir eru fyrirhugaðar á sama tíma (2000, 2005 og 2010) og hvernig gætu þær litið út í bókhaldi Íslands samkvæmt ákvæðum rammasamningsins og Kyoto-bókuninni?
    Í kjölfar Kyoto-ráðstefnunnar kom ríkisstjórnin á fót stýrihópi ráðuneytisstjóra um loftslagsmál undir forustu umhverfisráðuneytisins. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að aðstoða ríkisstjórnina við almenna stefnumörkun, umsjón með gerð og framfylgd nýrrar framkvæmdaáætlunar til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, skipulag samningaviðræðna við önnur ríki og að fjalla um afleiðingar loftslagsbreytinga hér á landi. Í stýrihópnum sitja ráðuneytisstjórar umhverfis-, utanríkis-, sjávarútvegs-, iðnaðar-, samgöngu-, fjármála-, landbúnaðar- og forsætisráðuneytis.
    Hvaða stefna verður tekin í því að standa við skuldbindingar Kyoto-bókunarinnar hér á landi er í mótun. Núgildandi framkvæmdaáætlun rennur út á næsta ári. Næsta áætlun mun ná til ársins 2005 og mun hafa það að markmiði að merkjanlegur árangur í að draga úr heildarlosun náist. Hagfræðileg ráðgjöf og útreikningar sem Þjóðhagsstofnun hefur unnið fyrir stýrihóp ráðuneytisstjóra sýnir mikilvægi þess að grípa snemma til aðgerða til að auka hagkvæmni þeirra.
    Lögð verður áhersla á rannsóknir, þróunarstarf, upplýsingagjöf og fræðslu. Einnig þarf að endurskoða losunarspá og setja hana þannig upp að auðvelt verði að meta áhrif aðgerða. Auk þess er að fara í gang á vegum stýrihópsins greining á því til hvaða stjórnvaldsaðgerða þurfi að grípa til að ná markmiðum áætlunarinnar og er að vænta tillagna frá hópnum að nýrri áætlun sem lögð verður fyrir ríkisstjórn á síðari hluta næsta árs.